www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
..... ljónshjarta
Laugardagur, 10. nóvember 2007

Í gær fór ég og færði ljónastráknum mat sem hann reif í sig með frönskum og tómatsósu. Hann var búinn að vera veikur og ljón eiga til að verða svöng. Á eftir talaði hann um hvað börn koma subbuleg í heiminn. Börn geta verið sóðar, það eru engar ýkjur.

Ljónastrákurinn er búinn að vera ofboðslega góður við mig. Þegar ég var lítil og blá vegna þess að ég var að hætta hjá Glitni sagði hann mér að koma til sín. Þegar ég kom, tók hann mig í fangið og hélt utanum mig. Strauk mér um hárið. Sagði awwwww, svona, svona. Þetta verður allt í lagi.

Þegar hann hafði haldið þannig utanum mig í smá tíma og mér leið miklu betur sagði hann: "annars skil ég ekki yfir hverju þúrt að blúsa. Flott staða, hærri laun.."

Ég fór að hlæja. Ég var líka ekki að blúsa yfir nýju vinnunni, en mér þótti svo vænt um að hann huggaði mig, var soldið hissa því ég reiknaði aldrei með því að hann vildi gera svoleiðis fyrir mig.

Ég á eftir að sakna þess að kúra við þennan ljónastrák. Ég á eftir að sakna þess þegar hann bítur mig í rassinn líka. Ég á eftir að sakna þess þegar hann setur skeifu á munninn og horfir á mig með ljónaaugunum sínum. Mér þykir vænt um hann.

Og ég var mjög heppin að finna hann. Hann kenndi mér að það eru til strákar sem finnst gott að vera góðir við mig, finnst gott að halda utanum mig, finnst gott að hafa mig hjá sér, geta actually sofið með mig í rúminu og skilja að ég geti verið lítil og blá þó ég hafi skrítnar ástæður fyrir að vera það. Þetta er eitthvað sem ég þurfti að vita að væri til og hann kom mér á óvart þarna því hann er töffari. Ég hef satt að segja aldrei verið með svona töff strák áður. Hann hefur hinsvegar meiri þroska en hann gefur sjálfum sér kredit fyrir.

Auðvitað fór mér að þykja of vænt um hann.
Ég færi ekki að klikka á svoleiðis grundvallaratriðum.

Anna says: hey settir þú komment?
Ljónastrákur says: jamm
Anna says: þú ert svo sætur
Ljónastrákur says: wink
Ljónastrákur says: sæt kisa btw.
Ljónastrákur says: lolkisa
Ljónastrákur says: smile
Anna says: ég held uppá hana
Anna says: já ég fann hana einhverstaðar á lol síðu
Ljónastrákur says: amm
Anna says: hún er eins og ég
Anna says: ég er bara kisa en mig langar að vera ljón
Anna says: annars hefði ég ekki tekið þetta starf
Anna says: það er bara fyrir ljón
Ljónastrákur says: pff
Ljónastrákur says: þú ert ljón
Anna says: nei ég er bara kisa
Ljónastrákur says: ljón
Anna says: er ég ljón?
Ljónastrákur says: já þúrt ljón
Anna says: inní mér finnst mér ég samt bara vera kisa
Ljónastrákur says: falleg, gáfuð og já, ljón
Anna says: awwwww
Ljónastrákur says: það finnst víst mörgum ljónum það.. innst inni.. að þau séu bara kisur
Ljónastrákur says: en þau eru samt ljón

Ég á kannski eftir að heimsækja ljónastrákinn í útlöndum.

Við erum ekkert hætt að þekkjast og hann er búinn að bjóða mér að koma.

Hann er líka búinn að stríða mér á því hvað ég er rosalega dugleg í bloggpásunni minni. Eins og ég vissi að hann myndi gera. Mér finnst það sætt.

Ekki gleyma samt.. einhvern daginn, þegar þú situr á ströndinni í ljósu jakkafötunum þínum með sólgleraugun og hattinn. Einhvertíma þegar þér líður alveg rosalega vel..

..mundu þá að sumir góðir hlutir hafa engan endi.


| anna | 18:40 |
comments

ljónastrákurinn hljómar svo...vel.

Nr. 1 | posted by: baun | 10.11.2007 | 19:10:26 | [+] |

Ég... veit.

Nr. 2 | posted by: anna | 10.11.2007 | 19:42:09 | [+] |

Hljómar vel? Hann virðist ekki hafa neitt fyrir þessu. Húkking öpp á að vera erfitt.

Nr. 3 | posted by: Organistinn | 11.11.2007 | 7:45:26 | [+] |

Af hverju á það að vera erfitt?

Nr. 4 | posted by: anna | 11.11.2007 | 11:39:44 | [+] |

Ég er nýbúinn með námskeið um Dostoevsky og þar lærði ég að redemption er bara möguleg í gegnum erfiða reynslu og þjáningar. Ég held að það sé eins með góð sambönd; a.m.k. annar aðilinn þarf að þjást verulega áður en sambandið kemst á.

Nr. 5 | posted by: Organistinn | 12.11.2007 | 9:50:56 | [+] |

Já. Ég held að þetta sé kjaaaaaaftæði.

Ég er komin á þá skoðun að ást eigi ekki að vera sársaukafull.

Hvernig er hægt að meiða með kærleika?

Nr. 6 | posted by: anna | 12.11.2007 | 14:42:44 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web