Miðvikudagur, 17. október 2007

Doddi: "þú keyptir réttan bíl mamma, hann er cool"
Anna: "hann rúlar"
Doddi: "henn er samt ekki jafn flottur og bíllinn hans Kenneth Bentley"
Anna: "nei.. það eru sennilega fáir bílar jafn flottir og hann"
Doddi: "en okkar er samt flottastur á eftir honum"
Þetta fannst mér fyndið, engin smá viðmið sem eru notuð á þessu heimili!
Usss
Varð að taka mynd af þeim saman. Ljónið hefur reynst mér vel en þetta er bara no contest.
Það sér hver maður.
Áður en börnin sáu bílinn með eigin augum voru þau að malda í móinn, vildu ekki að ég hætti að eiga ljónabílinn. Einkasonurinn skipti snarlega um skoðun þegar hann settist inní Z German og frumburðurinn mun sjá ljósið á næstu dögum. Ég sá hvernig glampa hún fékk í augun þegar ég gerði henni grein fyrir að þetta væri sennilega bíllinn sem hún mun æfa sig að keyra á - eftir.. korter.
Djöfull á maður rígfullorðin börn, það er bara þvæla.