Í dag keypti ég mér bíl.
Mánudagur, 15. október 2007
Mér finnst hann ofboðslega fallegur og mig langaði í nýtt dót - annað en skó.
Þá kaupir maður bíl.
Það er líka langt síðan ég keypti mér bíl síðast og aðdragandinn var pínulítið eins og í langdreginni ástarsögu. Ég hafði séð þennan bíl oft og mörgumsinnum - var það ekki Hannibal Lecter sem sagði að maður fer að girnast það sem maður sér á hverjum degi?
Held það.
Ég sá bílinn reyndar ekkert á hverjum degi, stundum þrjá daga í röð og svo ekkert í mánuð - en eitthvað var það við þennan bíl sem fékk mig til að muna eftir honum. Lærði meira að segja númerið. Ég læri ekki númer á bílum nema á þeim sem ná athygli minni.
Auðvitað náði hann athygli minni. Þessi bíll er svo hrikalega illilegur að ég kikna pínulítið í hnjáliðunum þegar ég er nálægt honum. Nú fyrst ég á hann neyðist ég til að snap out of it, annars klessi ég hann á korteri. Iss.. fer létt með það. Ég er hönnuð til að keyra á svona illsku, það sér hvert mannsbarn.
Um daginn frétti ég að eigandi bílsins væri að hugsa um að selja hann. Næstu daga lá ég í valkvíðakasti dauðans sem endaði á því að í morgun fór ég uppá Lyngháls, inn í Hugbúnaðardeild Glitnis, gekk föstum skrefum upp að einum forritaranum og spurði hvort hann ætti svarta *censored* fyrir utan.
Hann sagði já.
Þá rétti ég honum blað með tölu sem ég gef ekki upp hér, og sagði "ég ætla að kaupa hann af þér".
Hann haggaðist ekki, sem mér þótti skrítið miðað við aðstæður, tók við blaðinu og þegar hann hafði skoðað það aðeins leit hann á mig, tók því næst pennan sem ég hafði sett á borðið hjá honum og skrifaði undir. Ég setti öryggið á riffilinn og lét hann síga. Ég er alveg hætt að fara útúr húsi nema með þennan riffil, hef aldrei vitað um neitt tól sem liðkar jafn mikið til í samskiptum við fólk. Fæstir eru samt svona rólegir eins og þessi maður. Sennilega hefur hann verið giftur. Lengi.
Hann ætlar að láta mig fá bílinn annað kvöld, en ég frétti að seinnipartinn næsta dag er hann að flytja af landi brott. Vona að það sé ekki útaf því sem ég sagðist myndi gera við hann með yddara - ef eitthvað í bílnum klikkar. Nei andskotinn, ég trúi því ekki. Sennilega er hann bara illa giftur. Sætur strákur, ég hefði kannski átt að fá hann til að gera eitthvað fleira en að skrifa undir þegar ég hugsa útí það...
Ég ætlaði að fá mér einkanúmerið Z GERMAN, þegar ég komst að því að það mega bara vera sex stafir í einkanúmerum. Mér datt strax í hug DEMIT, en það fer þessum bíl bara svo illa.
Bíllinn fær ekki einkanúmerið sem hann átti að fá en hann mun ganga undir nafninu Z German.

SJÁIÐI HVAÐ HANN ER DÁSAMLEGA ILLILEGUR !!!
Jesús...