Ég lá uppí rúmi snemma í morgun þegar ég heyrði lagið "bear nessessities" úr myndinni Jungle Book. Var að fikta í símanum mínum í matarboðinu í gær og hef breytt sms tóninum í þetta lag. Tók mig smá tíma að átta mig á að þetta var í símanum mínum. Í sms-inu stóð "Brunch?"
Hann sótti mig stuttu síðar.
Þetta er í fyrsta skipti sem hann er á þessum bíl og.. ég.. meina.. eins bílkynheigð og ég er..
Hraði er í raun ekki að gera neitt fyrir mig heldur. Það er hröðunin sem nær mér.
Samt.. Oh.. ohh.. men.
Ég fæ hjartslátt við að hugsa um alla hröðunina sem er í gangi í þessu myndbandi. Þó ég sjái ekki the performer fyrr en í lokin. Það gerir þetta eiginlega enn meira.. erotic.
Þessi bíll er basically hrein illska. Á hjólum.
Þetta er ljón, sem ekur um á hreinni illsku.. á hjólum.
Hann er farinn að vinna. Ég er að fara að vinna líka en er að spá í að horfa á þetta myndband nokkrum sinnum í viðbót. Áður en ég fer að vinna.