www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nýji uppáhalds maturinn minn
Sunnudagur, 14. október 2007

kjuklingasalat.png

Var í Eymundsson um daginn og keypti bók sem heitir Fast Healthy Food - in 30 minutes or less, sé ekki eftir því.

Uppáhaldsrétturinn minn úr þessri bók, so far, er kjúklinga og avocado salat með heitri balsamik dressingu.

Hrikalega einfalt að búa til, hollt og gott.

Það sem þarf til að gera þetta er

3 msk extra virgin olive oil
2 hvítlauksrif
300 g kjúklingur (ég notaði fyrst kjöt af leggjum en svo bringur)
2 msk glært hunang
1 msk balsamic vinegar
1 msk grófkorna sinnep
tvö slice af reyktu kjúklingaáleggi, skorið í litla bita
salt og pipar

Í salatið:

Lambhagasalat
2 avocado
safi úr hálfri sítrónu
nokkrir cherry tómatar teknir í tvennt
1 lítill rauðlaukur, skorin þunnt

Það tekur korter að undirbúa, tíu mín að elda þetta.

Þú byrjar á að útbúa salatið. Rífur salatblöðin niður, skerð tómatana í tvennt og rauðlaukinn í þunnar ræmur. Skerð avocado niður og hellir safanum úr sítrónunni yfir til að það verði ekki dökkt.

Þú skerð næst hvítlaukin smátt niður, hitar olíu á pönnu og brúnar laukinn í 30 sek eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Hendir smátt skornum kjúklingabitum útá og steikir í 2 - 3 mín, eða þangað til kjúklingurinn verður gullbrúnn.

Þá bætirðu hunanginu, edikinu og sinnepinu við og blandar öllu vel saman. Að lokum bætirðu reykta kjúklingaálegginu við og steikir í u.þ.b. mínútu. Saltar og piprar.

Ég veiði kjúklinginn svo af pönnunni og kem fyrir ofaná salatinu og svo er það bara.. gjöriði svo vel!

ps. Ég bæti reyndar alltaf niðursoðnum ætiþistlum við, af því mér finnst þeir svo hrikalega góðir.


| anna | 18:58 |
comments

Þetta lítur ofsalega flott út á myndinni. Kom þetta svona út hjá þér eða er myndin úr bókinni?

Anna, þú ert orðinn svo sófistikeruð í matargerð, bílasmekk og öðru síðan þú byrjaðir að vinna í banka. Það gera sennilega jakka dragtirnar og vel greiddu verðbréfaguttarnir sem hanga í kringum þig í vinnunni.

Maður fer bara hjá sér enda er ég hottintotti þrúh and þrúh. Svo man ég best eftir þér með skiptilykil eða skrúfjárn í hönd að vinna við pípulagnir eða bílaviðgerðir.

Varstu að búa þennan rétt til fyrir ljónið eða ertu búinn að dömpa honum?

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 15.10.2007 | 5:32:45 | [+] |

Myndin er úr bókinni.

Hottintotti? Hver segir að ég sé ekki með skiptilykið í annarri og skrúfjárn í hinni þegar það þarf?

Ég bjó til þennan rétt fyrir mig og krakkana. Svo fór ég að hitta ljónið. Ég hef enga ástæðu til að dömpa ljóninu á meðan það heldur áfram að vera gott við mig.

Er hægt að dömpa einhverjum sem er ekki kærasti?

Nr. 2 | posted by: anna | 15.10.2007 | 7:52:59 | [+] |

Ég var nú bara að stríða þér.

Nr. 3 | posted by: Organistinn | 15.10.2007 | 8:38:55 | [+] |

Nú? Ég fór að gráta.

Nr. 4 | posted by: anna | 15.10.2007 | 8:39:52 | [+] |

Já, það er hægt að dömpa öllum. Þú getur m.a.s. dömpað tannlækni og jafnvel heilu bifreiðaverkstæði. En ég ráðlegg þér samt að gera slíkt ekki í gegnum síma, það þykir kaldranalegt. Og alls ekki með sms.

Nr. 5 | posted by: Kristín | 15.10.2007 | 8:54:10 | [+] |

Jájá. Ég ætla ekkert að vera að spá í dömp núna þegar allir eru kátir og refsiglaðir. smile

Nr. 6 | posted by: anna | 15.10.2007 | 9:16:02 | [+] |

rétt hjá Kristínu. og heldur ekki með msn.

hei, við gætum skrifað bók: how not to dump a lion...

Nr. 7 | posted by: baun | 15.10.2007 | 9:16:17 | [+] |

Ég ætla ekkert að dömpa ljóninu! Hvað er þetta!

Nr. 8 | posted by: anna | 15.10.2007 | 9:26:12 | [+] |

nei, einmitt. bókin fjallar um það. how NOT to dump a lion cool

Nr. 9 | posted by: baun | 15.10.2007 | 10:54:26 | [+] |

hmmm glært hungang?? Er ss hunang ekki bara hunang??? En ég er nú bara ljóshærð og veit ekki neitt hjálpaðu mér hérna!!!! lol

Þetta lítur ss MJÖÖÖG girnilega út og ég verð að prófa þetta. colgate
kv Ásta

Nr. 10 | posted by: Ásta | 15.10.2007 | 19:21:54 | [+] |

Ég var að bæta við link í færsluna við glæra hunangið svo þú vitir hvað ég er að tala um wink

Nr. 11 | posted by: anna | 15.10.2007 | 19:45:15 | [+] |

Gleymdi MSN því ég hef ekki svoleiðis sjálf. Nenni sko ekki að skrifa neina dömp or not dömp bók. Mun skrifa um eitthvað mun óhugnalegra ef ég sest einn daginn niður.
Mikið er ég fegin að fá skilgreiningu á glæru hunangi, gleymdi alveg að spyrja um það í gær. Og til hamingju með bílinn.

Nr. 12 | posted by: Kristín | 16.10.2007 | 11:26:14 | [+] |

Iss það stóð glært hunang og ég reikna með að það sé svona. Ég hef ekkert vit á þessu, geri bara það sem mér finnst líklegt að sé rétt og þetta virkaði. wink

Nr. 13 | posted by: anna | 16.10.2007 | 11:37:51 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web