www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
It's official
Mánudagur, 22. október 2007

Það er ágætt að ég er komin á bíl sem mér finnst gaman að keyra og hefur functional geislaspilara. Á næstu vikum kem ég nefnilega til með að aka meira en ég hef gert undanfarið, þar sem ég er verðandi vefstjóri hjá Marel. Z GERMAN kemur sterkur inn, þar sem höfuðstöðvar Marels eru í nærsveitum.

Skilnaður er óhjákvæmilegur.

Djöfull helst mér illa á eiginmönnum.

Glitnir er nú engu að síður besti vinnustaður sem ég hef unnið á to date og ég hef lært mikið á þessum tíma hjá bankanum. Ég á eftir að sakna þess góða fólks sem ég hef unnið með bæði á Kirkjusandi og á Lynghálsi. Flestir hafa óskað mér til hamingju þegar þeir frétta þetta - líka maðurinn sem ég hef unnið mest með á Lynghálsi, en hann orðaði þetta svona: "farðu í rassgat svikari, ég ætla aldrei að tala við þig aftur". Ég elska hann líka.

En svona að ölllu gríni slepptu.. þá hefur þetta verið góður tími.

Mjög góður tími.

Stundum fær maður bara tilboð sem ekki er hægt að hafna og ég held að Marel verði góður tími líka.


| anna | 11:25 |
comments

Auðvitað verður Marel góður tími. Innilega til hamingju. Það hríslast um mig montfílingurinn fyrir þína hönd. Og það er góður fílingur.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 22.10.2007 | 11:37:44 | [+] |

Til hamingju frú Anna vefstjóri! colgate

Nr. 2 | posted by: Sigga | 22.10.2007 | 12:35:21 | [+] |

Til hamingju!

Nr. 3 | posted by: Elías Halldór | 22.10.2007 | 12:53:24 | [+] |

Takk, takk! smile Þetta er ennþá að sink in, en mikið hlakka ég til að gera þetta.

Nr. 4 | posted by: anna | 22.10.2007 | 13:42:27 | [+] |

0 Marel heppnir!
Það er umtalað að vefurinn þeirra er ekki nógu góður. Hlakka til að sjá breytingar smile

Nr. 5 | posted by: Ásta | 22.10.2007 | 14:22:53 | [+] |

Til hamingju, þú átt eftir að rúlla þessu upp.

Má annars ekki nota eitthvað af þessum sundurlimunarvélum þeirra til að gera að væntanlegri veiðibráð?

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 22.10.2007 | 15:29:08 | [+] |

Selja þeir ljónahamflettivélar svona ef þú hefðir áhuga á að stoppa upp eitt slíkt ? evil

Nr. 7 | posted by: Hugz | 22.10.2007 | 15:46:04 | [+] |

Takk, takk. smile

Voðalega er þér illa við þetta ljón toungue

Nr. 8 | posted by: anna | 22.10.2007 | 20:02:41 | [+] |

Stort tillykke med det nye job, det blir da rigtig spændende colgate

Nr. 9 | posted by: Elín | 22.10.2007 | 22:31:13 | [+] |

Til hamingju Anna. Þú ert á hraðri leið uppá við. Kjúklingasalat, BMW, og nú flutningur frá Glitni til Marels.

Organistinn er gamall roðflettari og flakari ef þú þarft einhver ráð í nýja starfinu.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 22.10.2007 | 22:48:21 | [+] |

Takk Elín! colgate

Ertu að gera grín að mér Organisti? toungue

Nr. 11 | posted by: anna | 22.10.2007 | 23:07:46 | [+] |

Nei, Anna, alls ekki, þetta eru innilegar hamingjuóskir. Ég bara get aldrei verið alvarlegur.

Þú mátt ekki taka flippant comment mín alvarlega.

Nr. 12 | posted by: Organistinn | 23.10.2007 | 0:21:46 | [+] |

Ég veit Organisti. happy

Nr. 13 | posted by: anna | 23.10.2007 | 8:51:47 | [+] |

óska þér innilega til hamingju smile

Nr. 14 | posted by: baun | 23.10.2007 | 13:08:37 | [+] |

Til hamingju með nýja starfið.
Hef kíkt hér inn í þó nokkurn tíma og setti þig svo loks inn á minn linka lista. Vona að það sé í fínu lagi þín vegna winky

Nr. 15 | posted by: Syngibjörg | 23.10.2007 | 20:41:10 | [+] |

Takk, takk stelpur og þó það nú væri Syngibjörg! Það er alveg kominn tími á að uppfæra minn linkalista líka wink

Nr. 16 | posted by: anna | 23.10.2007 | 20:48:27 | [+] |

Mér er ekkert illa við ljón. Ég er ljónavinur.

Hins vegar er í tísku núna að stoppa upp þau ljón sem eru VEIDD ...

Nr. 17 | posted by: Hugz | 24.10.2007 | 12:57:02 | [+] |

Ég veiddi ekkert þetta ljón. cool

Nr. 18 | posted by: anna | 24.10.2007 | 13:42:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web