www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í lyftu - Part III
Fimmtudagur, 25. október 2007

Ég var farin úr kápunni, hafði kuðlað henni saman undir rassinn á mér því mér var orðið illt í rassinum af því að sitja á lyftugólfinu. Þrátt fyrir að hún væri töluvert mikið eldri en ég sá hún ekki ástæðu til að koma sér betur fyrir. Sennilega er ég aumingi. Undarlegt bros lék um varir hennar í örlitla stund áður en hún byrjaði að segja mér söguna.

Þetta gerðist árið 1951. Ég bjó með foreldrum mínum og systkinum á Reyðarfirði. Pabbi var sjómaður, bróðir minn háseti. Ég og móðir mín unnum við að salta síld eins og allar konur sem vetlingi gátu valdið í bænum. Þetta sumar fór Norskur togari að leggja að og skipstjórinn á þessum Norska togara var einn sá myndarlegasti maður sem ég hef á ævinni augum litið. Sumar stelpurnar settu á sig varalit þegar þessi togari var í augsýn og trúðu mér, það var ekki fyrir síldina.

Ég fór að hlæja og hún hélt áfram.

Hann var yngri en flestir hinir skipstjórarnir og töluvert mikið myndarlegri. Hávaxinn, rosalega ákveðinn með mikla persónutöfra. Menn héldu sig til hlés þar sem hann var og hlýddu honum skilyrðislaust. Ég var nýorðin sextán ára og fannst þessi maður guðdómlegur, eins og öllum hinum stelpunum. Togarinn sem hann var á var aldrei lengi í landi og hann kom sjaldan uppá bryggju. Var aðallega í brúnni að skipa mönnum fyrir sem gerðu sitt besta til að þóknast honum. Hann fór aldrei á böllinn þó einhverjir af áhöfninni hans gerðu það.

Nema eitt skipti kom hann í land. Ég stóð við tunnuna með þremur öðrum að reykja, eins og fólk gerði á þessum tíma, en þegar hann gekk framhjá okkur stelpunum brosti hann til mín. Það er ekki hægt að lýsa hvernig mér leið þegar ég horfði í þessi dökku augu. Ég veit ekki hvað gerðist en eitthvað var það og það fór ekki framhjá neinum. Stelpurnar skræktu þegar hann var farinn framhjá og stríddu mér en þegar hann kom til baka gekk hann rakleitt að mér og kynnti sig kurteislega á dönsku. Mikið ofboðslega fannst mér það flott. Ég kunni smá dönsku sjálf og náði að stama nafnið mitt og þá brosti hann aftur. Það ískraði í hinum stelpunum og hjartað í mér sló svo hratt að ég var hrædd um að hann heyrði það. Hvað maður var mikill kjáni á þessum árum.

Ég sá hvernig hún yngdist við að rifja þetta upp. Gott ef það kom ekki litur í kinnarnar - kannski var það áfengið. Ég veit það ekki. Ég brosti bara. Góð saga.

Uppfrá þessum degi kom hann alltaf í land og ef ég var ekki að salta þegar togarinn hans lagði að var alltaf einhver sem sagði mér þegar hann var á leiðinni svo ég var á staðnum, greidd og strokin. Hann kom alltaf til mín og heilsaði og stundum færði hann mér sígarettur og þó hinar stelpurnar öfunduðu mig þá slógu þær alltaf hring utanum mig þegar hann var farinn til að vita hvað hann sagði við mig í það skipti. Ég þekkti hann nánast ekki nokkurn skapaðan hlut - hafði ekki einu sinni kysst hann, en Guð minn góður hvað ég var ástfangin af honum. Ég held að mér hafi aldrei liðið svona, hvorki fyrr né síðar.

Í mánuð gekk þetta svona. Á nokkurra daga fresti kom hann í land, talaði aðeins við mig á meðan menn voru að landa og svo fór hann aftur. Allir í plássinu vissu þetta og fylgdust með. Fjölskyldan mín var ekkert yfir sig hrifin og það var aldrei minnst á þetta heima. Nema eitt skiptið kom hann í land og við vorum saman heila nótt á meðan félagar hans voru á ballinu. Um morguninn gaf hann mér þennan hring sem ég sýndi þér, sagði að hann myndi fara tvo túra í viðbót en svo færi hann aftur til Noregs. Hann bað mig að koma með sér.

Ég sagði strax já.

to be cont


| anna | 17:38 |
comments

You're in the zone...
cool

Nr. 1 | posted by: Miss G | 25.10.2007 | 18:01:47 | [+] |

Mannskaðaveður í uppsiglingu?

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 25.10.2007 | 18:04:21 | [+] |

"Mannskaðaveður í uppsiglingu?"

Örugglega. Hún hefði hent hringnum ef þetta hefði verið venjulegur pedófíll og drullusokkur.

Nr. 3 | posted by: Organistinn | 25.10.2007 | 19:12:57 | [+] |

þurftuð þið ekki að pissa?

Nr. 4 | posted by: baun | 25.10.2007 | 21:30:50 | [+] |

Ég hef alltaf sagt að það er mjög mikilvægt að kunna það helsta í dönsku!! Maður veit aldrei nema maður kynnist einum dana eða fari að vinna fyrir dönsk (nú íslensk) fyrirtæki colgate

Nr. 5 | posted by: Eddið | 26.10.2007 | 19:57:21 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web