Miðvikudagur, 24. október 2007
Ég gretti mig þegar ég tók fyrsta sopann úr koníaksglasinu, hafði blandað þetta alltof sterkt. Hún gretti sig hinsvegar ekki.
Skál.
Ég fór úr skónum og við héldum áfram að þegja aðeins saman. Klukkan var rúmlega tvö um nótt. Við vissum báðar að sennilega myndu líða margir klukkutímar þangað til einhver yrði var við að lyftan væri biluð og þangað til sátum við uppi með hvora aðra. Það var eins og við værum báðar að reyna að ná utanum þessa staðreynd í sitthvoru lagi og finna út hvernig við ætluðum að kópa við það.
Ég horfði á hana velta vökvanum rólega í glasinu á milli þess sem hún fékk sér sopa - grettulaust. Ég lét mér detta í hug að þetta væri massa alki sem myndi geðbilast á þremur glösum og fara að grenja. Classic. Hún leit samt ekki út fyrir að vera væluskjóða. Frekar vel klædd, smekklega miðað við aldur - eiginlega smart, nema um hálsinn, á milli brjóstanna, hafði hún einn þann ljótasta karlmanns hring klump sem ég hef á ævinni séð. Hann var algjörlega úr takt við allt annað og ég varð að spyrja hvað þetta væri sem hún var með um hálsinn. Forvitnin mun sennilega verða minn bani einn daginn.
Þegar ég spurði tók hún utanum klumpinn, eiginlega eins og ósjálfrátt, og setti hann innundir skyrtuna þar sem hann átti greinilega að vera. Svo horfði hún í augun á mér og spurði hvort ég væri gift. Ég sagðist vera fráskilin. Sagði henni að ég væri sennilega 100% öryrki þegar kæmi að því að velja karlmenn.
Hún fór að hlæja - ég á nú bágt með að trúa því.
Þetta er satt.
Við kláruðum drykkina. Ég lyfti tómu glasinu og horfði spyrjandi á hana, hún kinkaði kolli og ég blandaði aftur í glösin.
Eftir tvo sopa af blöndu númer tvö lagði hún glasið frá sér á gólfið, losaði keðjuna og veiddi klumpinn uppúr skyrtunni. Hún velti honum aðeins á milli fingranna áður en hún rétti mér hann. Það var eitthvað við hvernig hún bar sig að sem gerði mér ljóst að þessi forljóti gripur skiptir hana miklu máli. Fingurinn sem þessi hringur var gerður fyrir hefur verið stór og á e.k. plötu framaná var eitthvað merki sem ég gat ekki meikað sense úr. Hann er orðinn svo máður, sagði hún og rétti fram höndina til að taka hringinn aftur. Hann skiptir þig greinilega miklu máli, maðurinn sem bar þennan hring. Hún tók glasið sitt og fékk sér annan sopa. Já.
Ég gat ekki látið þetta í friði: var það maðurinn þinn?
Konan var klárlega ekki vön svona framhleypni en sennilega hefur áfengið verið farið að svífa á hana því eftir smá þögn spurði hún mig hvort ég vildi heyra söguna um hvernig þessi hringur komst í hennar vörslu.
Endilega, en bara ef hún er krassandi. (Trúi ekki ennþá að ég hafi sagt þetta!)
Ég veit auðvitað ekki hvað er krassandi á þinn mælikvarða, en fyrir mig var þetta.. já sennilega má orða það krassandi. Hún fékk sér sopa. Drottinn minn, það er svo langt síðan ég hef sagt þessa sögu. Veit ekki hvort ég man þetta ennþá.
Það reyndist nú ekki vera allskostar rétt.
to be cont