Miðvikudagur, 17. október 2007
Um daginn skrapp ég í heimsókn til nágranna míns á neðri hæðinni. Hann sýndi mér heillandi bók sem heitir því lýsandi nafni "K Y N L Í F" og kom fyrst út árið 1931. Það leynir sér ekkert.
Höfundur bókarinnar, Fritz Kahn, er mikill spekingur og tjáir sig óhindrað um öll mál tengd kynlífi. Nú veit ég ekki hvernig bókin er á frummálinu en hann Jón G. Nikulásson sem gefur bókina út (og ég reikna með að hafi þýtt hana líka) kann svo sannarlega að koma fyrir sig orði.
Bókinni er skipt í númeraðar málsgreinar og afgreiðir hver málsgrein eitthvað tiltekið "vandamál" eða efni. Þegar ég fór að rýna í bókina varð mér fljótt ljóst að þessa bók yrði ég að eignast. Hvað haldiði.. Hugi hafði keypt tvö eintök; eitt fyrir mig, og eitt fyrir sig - vegna þess að hann vissi.. að ég yrði að eiga eina svona bók. Maðurinn er svo mikill snillingur, ég var ekkert smá ánægð!
Hér er smá sampl úr bókinni - en þessi bók er sannkallað meistaraverk.
199. Stúlkan, sem "verður að giftast".
Læknar þekkja einnig vel þá sérstöku tegund kvenna, sem "verða að giftast". Stúlka, sem þannig er ástatt um, þjáist af öllum mögulegum og ómögulegum kvillum: tíðarkvillum, klæðaföllum (útferð), bakverk, svefnleysi, morgunþreytu, hún getur ekki unnið heilan dag í einu, hún er utan við sig og erfið í umgengni. Hún hefur slæman litarhátt, höfuðverk og sitthvað fleira. Alltaf er það eitthvað nýtt, sem er að. Þessa stúlku vantar ekkert nema reglulegar samfarir og kynferðislega fullnægingu.
232. Hin skaðlegu áhrif á heilsu karlmannsins.
Hjá karlmanninum birtast hin skaðlegu áhrif stöðugra utanfallssamfara annað hvor sem allsherjar taugaþreyta (neurasthenia), eða sem sérstök kyntaugabilun. Einkenni hinnar almennu taugaþreytu eru þessi: tíður höfuðverkur, þreyta við störf, önuglyndi, ofnæmi fyrir hávaða, drungi, bakverkur, þreytutilfinning í fótum, meltingakvillar, óreglulegur svefn, óþægindi fyrir hjartanu o.þ.h.
169. "Forleikurinn".
Þegar loks er komið að augnarbliki samfaranna, verður maðurinn að sýna mikla háttvísi. Hann má ekki ráðast að konu sinni eins og rándýr, sem stekkur á bráð sína. Þessa þótt verður hann að bæla fýsnir sínar og leggja frekar stund á að líkjast lækni, sem kominn er ilt þess að hjálpa þeim er þjáist.
Þessi síðasta er tekin úr seríunni "brúðkaupsnóttin" og skv. þessu þá er það í eina skiptið sem karlmaður þarf að leggja stund á þennan "forleik". hehehe