www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekki kærasti, heldur ljón
Laugardagur, 06. október 2007

"Ég er ekki að leita að eiginmanni. Ég er ekki að leita að föður fyrir börnin mín. Ég er ekki að leita að fyrirvinnu eða manni sem kaupir handa mér endaraðhús í Grafarholti. Það sem ég þarf er ljón, fyrir mig."

Og hann er allt sem ég þurfti. Allt sem ég óskaði mér.

Það sem ég þarf mun auðvitað breytast. Það sem hann þarf mun breytast líka. Ég hef ekki tíma fyrir meira en ljón núna og hann hefur ekki tíma fyrir meira... en konu sem hefur ekki tíma.

Mikið ofboðslega er ég glöð að ég hitti hann.

Sennilega er ég ekki eiginkonu material. Skilnaðir virðast liggja fyrir mér.


| anna | 19:27 |
comments

0 0 úúúúúhhh! colgate

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 7.10.2007 | 0:19:32 | [+] |

Já. Whjat i f god was all of us.

Nr. 2 | posted by: anna | 7.10.2007 | 2:39:34 | [+] |

Eiga ljón vini ?

Nr. 3 | posted by: Hugz | 7.10.2007 | 2:45:24 | [+] |

Já ljón eiga vini. Af hverju?

Nr. 4 | posted by: anna | 7.10.2007 | 11:39:45 | [+] |

Anna, ég veit ekki hvort það eru einhver tengls hér, en þeir á dv.is eru búnir að vísa á myndband sem sýnir hvernig fer fyrir þeim sem girnast ljón:

http://www.dv.is/myndbond/spila/pw9y40fl5irxcs7kw97jrxtwghj1

Nr. 5 | posted by: Organistinn | 7.10.2007 | 21:30:18 | [+] |

Þetta er hátíð miðað við aðferðir sem karlmenn beita í sínum árásum.

Þar fyrir utan mun þessi staða, að ljónið neiti að sleppa mér, ekki koma upp.

Nr. 6 | posted by: anna | 7.10.2007 | 22:22:49 | [+] |

Ha, þú hefur orðið fyrir verri árás frá karlmanni. Hverngi væri að blogga um það.

En hvernig er það annars með þessa menn, eins og þann þýska og ljónið, svo maður tali nú ekki um þá hryggbrotnu -- af hverju láta þeir aldrei sjá sig í commentakerfinu? Gengur þú undir öðru nafni í raunheimum og þeir hafa ekki hugmynd um að þú ert að blogga um þá? Eða hvað?

Nr. 7 | posted by: Organistinn | 7.10.2007 | 23:08:40 | [+] |

http://www.helium.com/tm/106016/friend-kindly-novel-christmas

Nr. 8 | posted by: a | 8.10.2007 | 7:52:06 | [+] |

Í fullkomnum heimi ráðast menn ekki á konur. anna.is er fullkominn heimur.

Ég heiti Anna í raunheimum og þeir vita af síðunni.

Veit ekki af hverju menn eru ekkert að trana sér mikið fram hérna. En það er samt alveg hægt að finna t.d. ljónið ef þú lúslest síðuna.

Kommentin sem eru svona: "hrikalega er þetta ógeðslega leiðinleg heimasíða" eru frá fyrrverandi kærastanum mínum. Hann er ekkert bitur eða neitt þannig. Hann bað mig að hætta að blogga á meðan við vorum saman. Hann var ekki alveg að höndla það. Ég held að ég hafi ekki verið nógu venjuleg fyrir hann.

Segðu mér Organisti. Myndir þú meika að eiga konu sem bloggar eins og ég?

Nr. 9 | posted by: anna | 8.10.2007 | 11:41:00 | [+] |

Já ég myndi alveg meika það að eiga konu sem bloggar eins og þú. Ég veit að þú ert alls ekki jafn laus á hjörunum og gæti virst í fljótu bragði fyrir þá sem þekkja þig ekkert fram yfir þessu síðu. Þú heldur ýmsu eftir, og skáldar töluvert á milli, þannig að þú ert ekki mjög hættuleg sem blogg eiginkona.

Organistinn myndi hins vegar ekki meika það að eiga konu sem bloggar eins og Jónína Ben.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 8.10.2007 | 18:43:52 | [+] |

Argh! wave

Nr. 11 | posted by: Ljónið | 8.10.2007 | 18:59:49 | [+] |

hahahaha þú klikkar ekki Organisti.

Hæ ljón wave

Nr. 12 | posted by: anna | 8.10.2007 | 23:08:27 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web