Mánudagur, 03. september 2007
Hann: þú ert 101% kona
Anna: 101% kona?
Hann: þú ert svo mikil kona að ég myndi setja mynd af þér í google undir "kona"
Anna: hvaðan kemur þetta eina prósent?
Hann: þú ert bara svo mikil kona að skalinn dugar ekki
Anna: djöfull er lélegt að sprengja skalann með einum, það heitir að rétt slefa uppfyrir - en taktu eftir, mér finnst ekkert eðlilegra en að vera vera yfir 100
Hann: sjáðu, akkúrat þetta gerir þig, að 101% konu
Anna: taktu upp dropateljarann
Hann: the fact that you complained about it
Ég fór að hlæja.
Anna: þú ert svo góður með þennan dropateljara!
Anna: það eru ekki allir sem hefðu getað þetta
Anna: þú? slam dunk í einni setningu
Hann: hvaða helvítis dropateljara ertu alltaf að tala um ??!!
Anna: stundum þarf að gefa mér hlutina inn í litlum skömmtum
Anna: mjöööög litlum
Anna: hægt, eins og þú gerir svo vel
Hann fór að hlæja.
Anna: stundum er ekki nóg að gefa mér hluti inn með teskeið og þá þarf dropateljara
Anna: það er þetta 1 prósent sem veldur þessu
Anna: ég er svo svakalega flókin
Hann - ennþá hlæjandi.
Anna: en samt er ég svo simple
Hann: yndislega flókin
Hann: eins og listaverk sem ég á aldrei eftir að skilja - I love it
Anna: en.. þú skilur mig, betur en margir
Hann: simple, sem gerir þetta flókna listaverk ennþá flóknara
Anna: ég ætti að sætta mig við það - ég mun líklega aldrei finna mann sem skilur mig alveg
Anna: en ég væri reyndar sátt við mann sem er willing to try. allavega makes an effort
Hann: ég veit ekki hvort þú munt nokkurntíman finna þig sem skilur þig
Anna: þú hefur nú verið helvíti duglegur að útskýra það fyrir mér
Anna: og það meikar allt sense - eins og ÞÚ segir það
Hann fór aftur að hlæja.
Hann: þessvegna þarftu mann sem skilur þig upp að vissu marki, getur haldið þér beint áfram
Anna: þetta minnir mig á myndina as good as it gets þegar konan spyr Jack
Anna: "How do you write women so well?" og horfir á hann með stjörnur í augunum
Anna: og hann segir..
Anna: "I think of a man, and I take away reason and accountability. "
Hann hélt áfram að hlæja.
Hann: ég elska konur
Anna: gott að einhver gerir það