Mánudagur, 10. september 2007
Astrópía er snilld, það er bara þannig og þetta var góð helgi.
Fór í keilu í dag með The Dude. Ákváðum að taka þrjá leiki og hann byrjaði á að rúlla mér upp tvisvar. Þegar þriðji leikurinn var um það bil að fara að hefjast bauð hann mér double or nothing fyrir síðasta leikinn. Ég rúllaði honum upp svo þetta telst jafntefli. Ekki dónalegt að gera jafntefli við The Dude.
Það er eitthvað við að spila keilu sem er bara gaman. Veit ekki hvað það er, kannski er það skórnir.
Á laugardagskvöldið var ég á leiðinni í matarboð með Huga en ég var svo þreytt að ég var að leka niður. Sat hér við tölvuna klukkutíma fyrir brottför og heyrði hann spila á píanóið niðri. Þremur mínútum síðar stóð ég fyrir framan útidyrahurðina hans, tilbúin fyrir matarboðið og sagði: má ég liggja í lazyboy stólnum þínum og hlusta á þig spila þangað til við förum?
Mér leið svo vel í stólnum á meðan hann var að spila að ég steinsofnaði.
Ég fór á klikkaða útgáfutónleika á föstudagskvöldið, mikið hrikalega var gaman. Ég var sífellt að gleyma að þetta væru 17 og 18 ára strákar - og eftir tónleikana..
Við fórum baksviðs að hitta strákana enda var ég þarna með mömmu söngvarans sem ljómaði af stolti og mátti sko alveg gera það! Á leiðinni aftur fram í sal missteig ég mig í stiganum og náði að grípa í ungan mann sem bjargaði mér frá því að detta og drepa mig. Sigga glotti.
Þegar við vorum komnar aðeins frá spurði ég Siggu hvort þetta hefði ekki virst raunverulegt. Ég er nefnilega að æfa damsel in distress dæmið en þessi strákur var full ungur fyrir mig. Fannst engum furðulegt þegar ég gekk mjög öruggum skrefum í burtu á tólf cm hælunum eftir að hafa misstigið mig svona hrikalega í stiganum og dottið niður?
I'm a pro - og þegar ég hitti rétta manninn mun ég hrasa og detta beint í fangið á honum - úr stiga.
Annars langar mig svo að gera drastískar breytingar á hárinu á mér þessa dagana að það er ekki fyndið.
Mig langar í stutt hár.