www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Ást, svik og örlög
Þriðjudagur, 04. september 2007

Ég klikkaði á einu þegar ég bauð uppá orðaáheit og það var að fólk gæti valið þema sjálft. Það er of auðvelt fyrir mig að skrifa þetta inní texta þar sem ég vel sjálf þema. Fyrstu orðin sem ég fékk send voru ást, svik og örlög og í dag fékk ég akkúrat innblásturinn sem ég hef verið að bíða eftir.

Loksins.
---

Ég var á leiðinni heim úr vinnunni, gekk eftir rauða dreglinum á gólfinu, að fyrstu hurðinni og þegar ég snéri læsingunni heyrði ég einhvern segja: "á ég að opna fyrir þig?"

Ég sagði já.

Við höfðum ekki tekið mörg skref þegar við komum að annarri hurð, hann stökk framfyrir mig og opnaði hana líka. "Gjörðu svo vel Anna", sagði hann og hallaði undir flatt.

Ég brosti.

Þegar hann gerði sig líklegann til að fylgja mér niður stigann missti ég mig og spurði hvort hann væri þarna til að vernda mig. Hann sagði já. Hrikalega sætur. Það hefur einhver sagt honum hvað ég er svakalega hrædd við tröppur.

Þegar ég tók fyrsta skrefið frammaf hengibrúninni sem fyrsta þrepið er, fann ég fyrir kunnuglegum hnút í maganum. Ég veit að einn daginn mun ég missa fótana á þessu háu hælum og skella með hvelli á tröppubrún á sama tíma og höfuðið á mér splundrast. Ég hef séð það gerast í Kringlunni - OFT - og innst inni hef ég lengi vitað að örlög mín eru að deyja á stigapalli. Ég hef bara ekkert verið að auglýsa það. Geðlæknarnir segja að það sé þráhyggjuröskun - sem er RUGL.
Ég hef séð hvernig tröppur geta farið með fólk. Þær eira engu.

Sennilega er það þessi tendens sem ég hef til að lifa á brúninni sem veldur því að ég vel tröppur í staðin fyrir lyftur. Þetta er birtingarmynd masókistans í mér. Tröppur og karlmenn sem eru.. já. Þetta eru tveir af mínum stærstu veikleikum. Hvergi í mannkynssögunni eru til gögn um fólk sem hefur slasast þar sem lyfta kemur við sögu en það er ekki hægt að segja um tröppur. Við erum að tala um flísar líka, eins óhugnanlegt og það er nú allt saman - ég fæ hroll.

Hann sá hvað þetta tók á mig - þó ég reyndi eftir bestu getu að fela geðshræringu mína. Bæði upplifi ég alltaf mikinn tilfinningakvíða þegar ég geng niður stiga en svo hafði nærvera hans undarleg áhrif á hjartsláttinn, sem venjulega er enginn. Ég hef legið í rúmi við hliðiná karlmanni sem fannst vissara að taka púlsinn á mér.

Það, eitt og sér, gæti reyndar skýrt margt...

Bygons.

Af hverju fylgdi hann mér? Af hverju opnaði hann fyrir mig hurðina? Af hv..

Pappakassi sem ég er, þetta er ekkert annað en ást, maðurinn er klárlega ástfanginn af mér - það gerir engin svona lagað nema eitthvað búi að baki!

Ég greip andan á lofti! Var þetta maðurinn.. minn?

Ég komst ekki lengra með þá hugsun því við vorum komin á fyrstu hæðina. Þá rann upp fyrir mér sú nöturlega staðreynd að hann ætlaði ekkert að fylgja mér út - og heim og uppí rúm til að búa til fullt af börnum og giftast mér og lifa með mér hamingjusamur til æviloka.

Hann var á leiðinni niður í bílakjallara.

ÆTLAÐI EKKI EINU SINNI AÐ OPNA FYRIR MIG SÍÐUSTU HURÐINA!

Þvílík SVIK.

Ég fór að gráta.

Hann stundi, "Ohh.. hvað nú?"

Ég þurfti töluverðan tíma til að jafna mig áður en ég gat stunið upp á milli ekkasoga: "æ.. ætlarðu e.. e..kki að k..klára dæmið?"

"Ókey, ég skal opna síðustu hurðina fyrir þig", sagði hann, "en þú verður þá að blogga um það.

Ég sagði já.

Samt, ég er ekki vön því að karlmenn séu svona miklir herramenn..

confusing.png
---

Mér finnst eiginlega að fólk eigi að velja þemað í þessar færslur sjálft, svona þegar ég fer að hugsa útí það. Hitt er allt of auðvelt. Það skiptir engu máli hvaða orð ég fæ send, ég gæti t.d. alltaf skrifað um að ég hafi farið á stefnumót með pappakassa og hann hafi talað um.. tígrisdýr, mjaltavélar, bensínlok og brjóstahaldara.

I'm tellin' ya. Það er eiginlega ekki fair gagnvart pappakössum að kalla mann sem talar um svona steikta hluti á stefnumóti pappakassa. Þannig maður er skápur.

Sendu mér þema í kringum orðin ást, svik og örlög - ef þú vilt að þemað sé ást, svik og örlög... well.. þá mun ég skrifa það.

Ég þarf hinsvegar að fá fleiri orð send frá hinum sem hétu á mig.

Koma svo!


| anna | 23:52 | send to facebook |
comments

"Hvergi í mannkynssögunni eru til gögn um fólk sem hefur slasast þar sem lyfta kemur við sögu..."

Ó, jú. Fyrir all mörgum árum var samstarfsmaður minn kominn hálfur inní lyftu þegar hún fór af stað. Annar helmingur hans endaði á gólfinu fyrir framan lyftuna meðan hinn helmingurinn hélt áfram uppá sjöttu hæð.

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 5.09.2007 | 4:23:54 | [+] |

Til hamingju með daginn um daginn Anna.
Ég er líka með tröppufóbíu, en bý upp á 5. hæð án lyftu.

Nr. 2 | posted by: Kristín | 5.09.2007 | 6:27:24 | [+] |

Ertu að segja satt Organisti? Eða ertu bara að hughreysta mig? toungue

Takk Kristín! Ég bý líka í lyftulausu húsi. Hrikalegt þegar maður hefur farið í alsherjar verslunarleiðangur en samt.. útsýnið gerir það fyllilega þess virði.

Nr. 3 | posted by: anna | 5.09.2007 | 15:38:22 | [+] |

Þetta er ekkert einsdæmi. Svipað henti í Suður Afríku fyrir ekki löngu man ég og komst í heimspressuna. Þó það nú væri. Það væri fúlt að hafa svona mikið fyrir því að geyspa golunni og ná ekki einu sinni í blöðin!

Smá Gúggl og hér er frásögnin af þessum ólánssama manni: http://www.shortnews.com/start.cfm?id=59573

Sting svo upp á 'lyfta, örlög, blóðslettur' evil

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 5.09.2007 | 17:09:26 | [+] |

Látið'ekki svona strákar. Þetta er allt rugl, hann hefur hrasað í tröppu strákurinn og fengið flís. Blasir við. toungue

Nr. 5 | posted by: anna | 5.09.2007 | 17:28:19 | [+] |

Anna, það er ekki nema sjálfsagt að hjálpa þér með stigafóbíuna. Hér er enn annað tilvik. Sýnir líka vel að bókalestur borgar sig ekki:
http://students.ou.edu/L/Stewart.E.Lane-1/story3.html

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 5.09.2007 | 20:23:41 | [+] |

Quadir Grissom-Baxter Jr: http://tinyurl.com/2qx3c3
Tucker Smith: http://tinyurl.com/38jc4x
Túkall: http://tinyurl.com/32b9ps
Ólánssamur menntaskólanemi: http://tinyurl.com/3c28f6
Andrew Polakowski: http://tinyurl.com/36htf8

Ofl: "Incidents involving elevators and escalators kill about 30 and
seriously injure about 17,100 people each year in the United States,
according to data provided by the U.S. Bureau of Labor Statistics and
the Consumer Product Safety Commission." http://tinyurl.com/3boacz melodramatic

Nr. 7 | posted by: AlanHudson | 6.09.2007 | 0:52:47 | [+] |

Satt segir þú Alan.

Svona litlar lyftur eins og eru á skrifstofunni þar sem Anna vinnur fara létt með afhausanir. Stórar lyftur eins og í nýja útibúi Glitnis í New York eru hins vegar nægilega kröftugar til að helminga fólk um miðjan búkinn.

Stigar eru miklu öruggari.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 6.09.2007 | 6:40:18 | [+] |

Það er spurning hvort ekki sé kominn tími á nýja galdradúkkuútfærslu?

Nr. 9 | posted by: AlanHudson | 6.09.2007 | 22:07:41 | [+] |

Ég var líka að velta fyrir mér hvort það væru nokkrar líkur á að Anna færi að bjóða uppá anna-punktur-is dúkkur í búðinni sinni. Þetta gæti orðið vinsæl jólagjöf fyrir miðaldra menn.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 7.09.2007 | 5:31:23 | [+] |

Og hverju ættu menn að stinga í þá dúkku? doubt

Ég legg til að fyrst verði lagt út í markaðssetningu á lyftutýpunni. Til að byrja með mætti láta netta fallöxi fylgja með hverri dúkku. Fólk gæti þá valið sjálft hvað, og hvar, væri skorið af.

Nr. 11 | posted by: AlanHudson | 7.09.2007 | 16:10:04 | [+] |

Alan: Kona eins og Anna hefur örugglega hryggbrotið marga menn, og þeir gætu haft áhuga á að stinga í svona Önnu dúkku. Við hinir mundum bara stilla henni upp í stofunni við hliðina á Rosenthal dótinu.

BTW, hvar er Anna? Er hún hætt að nenna að tala við okkur? Eða er hún kannski föst í lyftu einhvers staðar?

Nr. 12 | posted by: Organistinn | 7.09.2007 | 21:57:47 | [+] |

Hætt að nenna að tala við ykkur? Finnst þér það líklegt?

Ég hef hryggbrotið allt of marga menn, hvers vegna haldiði að ég nenni ekki á stefnumót? Mér finnst ég búin að hafna nógu mörgum karlmönnum.

Þumalputtareglan er sú að karlmenn sem ég hef ekki áhuga á finnst ég vera sú æðislegasta manneskja sem til er í öllum heiminum en þeir sem ég gæti orðið ástfangin af finnst eitthvað allt annað. Þeir eiga það reyndar sameiginlegt að vera voða hrifnir af brjóstunum á mér, but that's about it.

Og dettur ykkur í hug að ég þori að fara í lyftu framar? Ha? Það er þess vegna sem ég er svo lítið online, ég er alltaf á fricking stigaganginum að labba hingað uppá sjöttu hæð og niður aftur. Fer allur dagurinn í þetta!!! toungue

Nr. 13 | posted by: anna | 7.09.2007 | 23:26:24 | [+] |

Þetta með brjóstin er mjög skiljanlegt. Það er alla vega þannig hérna í 101 hjá mér, í kringum Laufásveginn, að það er sjaldgæft að koma höndum á góð brjóst sem eru líka ekta. Lífræn brjóst eru sennilega algengari í 105.

Nr. 14 | posted by: Organistinn | 8.09.2007 | 6:46:12 | [+] |

Blessaður vertu. Þessir menn eru shallow, kunna ekkert að meta að ég sé sílíkon free. Á meðan þetta lúkkar vel allt saman eru svona menn sáttir.

Nr. 15 | posted by: anna | 8.09.2007 | 11:29:47 | [+] |

Um borð í strætóinn minn kemur til dæmis stundum kona sem er mjög misbrjósta. Ég velti því stundum fyrir mér hvort hún fái ekki í bakið út af þessu. Ég þykist hafa fræðilegan brjóstaáhuga.

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 9.09.2007 | 1:10:29 | [+] |

Eins og þú hefur eflaust tekið eftir Alan, þá eru brjóstin sjaldnast algerlega symmetrísk. Og stundum getur verið töluverður munur eins og virðist vera á þessari sem fer í strætóinn með þér. Hljómar eins og það gæti farið illa með bakið á henni ef hún færi með Ferðafélaginu á Hvannadalshnjúk.

Það er líka möguleiki að þessi kona hafi farið í brjóstastækkunaraðgerð sem misheppnaðist öðrum meginn. Þar sem hún fer ferða sinna í strætó, má vera að hún hafi ekki haft efni á að láta laga brjóstið aftur eftir að silkónið var tekið út. Kannski hefur hún ákveðið að brjóst sé mikilvægari en einkabíll og er að safna fyrir aðgerð.

Aukabrjóst er annar athyglisverður varíant sem er alls ekki svo sjaldgæfur. Hefur þú einhverja reynslu af slíku?

Nr. 17 | posted by: Organistinn | 9.09.2007 | 3:24:10 | [+] |

Nei ég hef enga reynslu af aukabrjóstum, bara þessum venjulegu sem koma í nokkuð samstæðum pörum.

Það getur líka verið að konan hafi ekki haft efni nema á öðru brjóstinu og sé að safna sér fyrir stækkun á hinu. Nú eða minnkun. Hvað veit maður, það eru örugglega allskonar dílar í gangi í þessum bisniss.

Þetta með aukabrjóstið er annars áhugavert. Það er augljós galli á sköpunarverkinu að við skulum bara hafa tvö þegar flest önnur spendýr hafa mun fleiri. Það hlýtur að teljast mun kynþokkafullt á einhverjum bænum.

Nr. 18 | posted by: AlanHudson | 9.09.2007 | 4:04:50 | [+] |

Nei ég hef enga reynslu af aukabrjóstum, bara þessum venjulegu sem koma í nokkuð samstæðum pörum.

Það getur líka verið að konan hafi ekki haft efni nema á öðru brjóstinu og sé að safna sér fyrir stækkun á hinu. Nú eða minnkun. Hvað veit maður, það eru örugglega allskonar dílar í gangi í þessum bisniss.

Þetta með aukabrjóstið er annars áhugavert. Það er augljós galli á sköpunarverkinu að við skulum bara hafa tvö þegar flest önnur spendýr hafa mun fleiri. Það hlýtur að teljast mun kynþokkafullt á einhverjum bænum.

Nr. 19 | posted by: AlanHudson | 9.09.2007 | 4:05:37 | [+] |

Sjaldan er góð vísa of oft kveðin.

Nr. 20 | posted by: AlanHudson | 9.09.2007 | 4:06:52 | [+] |

Ha? Útí hvaða móa eru þið komnir?

Nr. 21 | posted by: anna | 9.09.2007 | 10:55:15 | [+] |

Þetta eru intellectual umræður eins og þær gerast bestar, en konur fá venjulega ekki að heyra af.

Nr. 22 | posted by: AlanHudson | 9.09.2007 | 19:11:25 | [+] |

Jejeje.

Nr. 23 | posted by: anna | 9.09.2007 | 23:25:34 | [+] |

Anna: fyrirgefðu að við erum farnir að ræða spendýr almennt hérna á síðunni þinni.

Alan: þetta er rétt hjá þér, og aukabrjóst hjá konum eru venjulega á stað sem samsvarar brjóstastað í öðrum spendýrum. http://en.wikipedia.org/wiki/Accessory_breast Darwin hafði sennilega rétt fyrir sér. Og blessaður vertu ekki að stressa þig þó þín eina reynsla af margbrjósta konum komi frá öðrum spendýrategundum. Það sýnir bara að þú ert þjóðlegur; þetta er jú sá tími ársins sem einmanna bændur og bændasynir fá uppáhaldsrollurnar sínar aftur eftir sumarvist á fjöllum.

Nr. 24 | posted by: Organistinn | 11.09.2007 | 6:45:35 | [+] |

Það hafa varðveist þjóðsögur í munnlegri geymd hvar sagt er frá því þegar aðframkomnir afdalabændur á útmánuðum sáu margbrjósta konur í hyllingum, ódrukknir.

Nr. 25 | posted by: AlanHudson | 11.09.2007 | 17:00:33 | [+] |

Hér eru menn loksins farnir að tala mannamál.
Eruði búnir að fara í réttir í haust strákar?
Bæta framsóknartútturnar?
Keyra Zetor?
Taka slátur?

Nr. 26 | posted by: Harpa | 12.09.2007 | 1:24:05 | [+] |

Harpa, thetta er bara cruel ad minna mig a thessa hluti.

Eg fae ekkert her nema hrisgrjon, tofu og annan soy mat. Og her sjast aldrei kindur eda Zetorerar.

Gaefi mikid fyrir heitt slatur med roum i kvold.

En hvad eru framsoknartuttur?

Nr. 27 | posted by: Organistinn | 12.09.2007 | 7:44:16 | [+] |

Framsóknartúttur hljóta að vera hliðstæður kynbótagimbranna hans Guðna. Sumsé ungir kvenþingmenn Framsóknarflokksins. Í þann flokk féll Dagný Jónsdóttir sællar minningar.

Birkir hlýtur þá að vera Zetor - en nú sárvantar sérfræðinginn á því sviði.

Er annars eitthvað hæft í því að Zetorinn sé kominn á túttur síðan á síðasta kjörtímabili?

Nr. 28 | posted by: AlanHudson | 12.09.2007 | 14:30:03 | [+] |

Sennilega er fjölbrjósta fenólógía það sem bíður okkar. Amk var ég að horfa á Rah band syngja Clouds across the moon (með betri verkum tónlistarsögunnar í síðari tíð) og þar sýndist mér að aðal söngkonan skartaði hvassyddu þríbrjósti. Ansi harðbrjósta og óárennileg að sjá satt að segja.

Nr. 29 | posted by: AlanHudson | 13.09.2007 | 5:18:50 | [+] |

Alan, já ég sé ekki betur en að hún hafi þrjú. Og þau eru greinilega ekki jafn mjúk og Önnu brjóst, ef marka má myndina hér að ofan.

En ansi ertu vel að þér í innanbúðarmálum Framsóknarflokksins. Ertu í miðstjórninni?

Kannski getur þú hjálpað mér, en ég hef verið að lesa dálítið um Jesús og fór að velta fyrir mér hvort hann hafi verið Vinstri-Grænn eða Framsóknarmaður. Hvað heldur þú?

Nr. 30 | posted by: Organistinn | 13.09.2007 | 6:00:02 | [+] |

Þetta kallar á dálitla umhugsun. Síðasta kvöldmáltíðin bendir sterklega til að hann sé Vinstri-grænn, því þar er allt á síðasta snúningi, að verða búið eða á hraðferð til helvítis ef ekki er gert eins og þeir leggja til. Hins vegar mettaði Jesú fjölda fólks með örfáum fiskum og nokkrum brauðum sællar minningar. Það bendir til þess að hann hafi ofurtrú á því sem land og lögur gefa af sér, sem aftur gæti bent til Framsóknarflokksins. Svo var það musterisæðið, það bendir til Vg, en verður að hafa í huga að það var gert í unggæðisæði (UVg). Sennilega var hann meira Vg en framsóknarmaður. Ég sé síðan ekkert sem bendir til að hann hafi verið sjálfstæðismaður.

Minnist Biblían annars nokkurs staðar á brjóst?

Nr. 31 | posted by: AlanHudson | 13.09.2007 | 14:32:55 | [+] |

Jesú í VG?? Höldum okkur á jörðinni. Fyrir það fyrsta var Jessi gamli hlynntur víndrykkju og svo vildi hann horfa á sjónvarpið í lit. Auk þess færi ég ekki að leggja lag mitt við VG mann og hrópa nafn hans í rúminu mínu öll kvöld og allar helgar. Come on.

Ég man ekki eftir að það hafi verið skrifað um brjóst sérstaklega í Biblíunni en á einum stað er talað um framsóknartúttur - eru það ekki gúmmískór?

Harpa. We need a ruling on this.

Nr. 32 | posted by: anna | 13.09.2007 | 14:50:07 | [+] |

Þetta er einhver Personal Jesus sem þú átt í samskiptum við. Svo frétti ég af því að einhver viðskiptavinur Melabúðarinnar hefði verið að tala um ónæði í húsinu hjá þér öll kvöld og allar helgar. Ég held að þú ættir að skipta þessum Jesús út og fá þér annan sem heyrir betur.

Nr. 33 | posted by: AlanHudson | 13.09.2007 | 19:25:57 | [+] |

Heyrir betur? Minn Jesú hefur ekki eyru en ég trúi á kraftaverk.

Nr. 34 | posted by: anna | 13.09.2007 | 20:06:21 | [+] |

Ég ætla að rannsaka brjóstin í biblíunni, sem krefst dálítillar vinnu. En þangað til bendi ég á brjóstabiblíuna sjálfa sem hefur ýmsan fróðleik, sumt sem hefur þá þegar komið fram hér á síðunni: http://tinyurl.com/26yby9

Merkilegt Anna að þú skulir hrópa nafn hans í rúminu því sumir fræðimenn halda að hann hafi verið hommi. Jesús var jú ógiftur og hékk með 12 öðrum strákum.

Jesús hafði að mörgu leyti yfirbragð framsóknarmanns, en djúpt niðri var hann augljóslega VG. T.d. var hann klárlega einn fyrsti feministinn. Og ekki má gleyma senunni sem hann gerði þegar hann rústaði borðum í musterinu í Jerúsalem. Svo hikaði hann ekki við að ráðleggja fólki að gefa upp veraldleg auðæfi sín. Þannig má lengi telja atvik þar sem hann var að framfylgja stefnu VG.

Anna, ég er sammála þér með framsóknartútturnar. Þetta hefði ég átt að vita.

Nr. 35 | posted by: Organistinn | 13.09.2007 | 23:52:59 | [+] |

Ég þarf klárlega að finna eitthvað annað nafn. Það sem þú hefur skrifað er svo mikið turnoff að ég er ekki viss um að ég komi til með að stunda neina sjálfsafgreiðslu á næstunni.

Látum liggja á milli hluta að maðurinn hafi verið hommi, ég hef grun um að ég hafi átt a.m.k. 1 þannig kærasta, en VG! FEMÍNISTI! Þar fórstu langt yfir strikið.

Annaðhvort þarf ég að fara að díla beint við þann sem ræður, finna annað nafn sem virkar - eða hreinsa út þennan ósóma sem þú hefur skrifað og lifa í afneitun.

Nr. 36 | posted by: anna | 14.09.2007 | 0:02:09 | [+] |

ps. Lesa menn eins og þú cosmopolitan?

Nr. 37 | posted by: anna | 14.09.2007 | 0:04:21 | [+] |

Les ég Cosmo, he,he...nei venjulega ekki. En þessi grein er góð.

Þú gætir endurskýrt hann Júdas. En sennilega líkar viðskiptavinum Melbúðarinnar betur að heyra nafn Jesús stunið upp á kvöldin.

Nr. 38 | posted by: Organistinn | 14.09.2007 | 0:29:08 | [+] |

Þegar maður fer að setja hlutina í aðeins víðara samhengi þá blasir við að opinberunarbókin er nánast hliðstæð ýmsum skrifum fulltrúa Vg þegar litið er til heimsendaspádóma og almennrar svartsýni. Ég held að það sé engum vafa undirorpið að Jesús hafi verið Vg.

Er anna.is ekki bara laumuvinstrigræn eftir allt saman?

Nr. 39 | posted by: AlanHudson | 14.09.2007 | 18:12:44 | [+] |

Ekki segja svona ljótt Alan - ég fer að gráta.

Skoðaðu innihald sendingarinnar sem þú færð innan örfárra daga og reyndu svo að halda því fram að ég sé VG.

wink

Nr. 40 | posted by: anna | 14.09.2007 | 18:17:44 | [+] |

Það hryggir mig að þú skulir ekki vera Vg, því það gerir úti um eftirfarandi rökfærslu (sem ég var að vona að væri sönn):

Anna er Vg
Jesús er Vg
=> Anna er Jesús.

Þetta er harður heimur.

Nr. 41 | posted by: AlanHudson | 14.09.2007 | 18:34:14 | [+] |

Ég hef aldrei haldið því fram að ég sé Jesú.

Ég er Guð.

tíhíhí

Nr. 42 | posted by: anna | 14.09.2007 | 18:36:16 | [+] |

Ó guð! melodramatic

Nr. 43 | posted by: AlanHudson | 14.09.2007 | 18:44:16 | [+] |

yes?

Nr. 44 | posted by: anna | 14.09.2007 | 19:27:25 | [+] |

Alan, fræðimenn eru víst almennt sammála um að Jesús hafi í raun verið apocalyptic gyðingur (sem vekur upp þá augljósu spurningu, Anna, hvort þinn persónulegi Jesús sé ekki örugglega umskorinn?? Ef ekki, þá er samband þitt við Guð ekki kosher) þó þeir sem skrifuðu guðsspjöllin mörgum árum seinna hafi ekki lagt áherslu á það. Þetta styður auðvitað að Jesús hafi verið Vinstri-Grænn: ef við förum ekki betur með náttúruna og umhverfið þá er heimsendir í vændum.

Anna, on second thought, kannski ættir þú að endurskýra hann Judas. Þannig ertu kominn í samband við Sjálfstæðismann. Þess utan hlýtur sex með Judasi að vera meira naughty og spennandi en sex við Jesús. Skítt með viðskiptavini Melabúðarinnar.

Nr. 45 | posted by: Organistinn | 15.09.2007 | 21:02:07 | [+] |

svo er sagt að konur flæki málin...

toungue

Nr. 46 | posted by: anna | 15.09.2007 | 21:47:52 | [+] |

Það þarf að fá botn í þetta Guð/Jesús mál. Flýturðu?

Nr. 47 | posted by: AlanHudson | 17.09.2007 | 5:03:22 | [+] |

Þið eruð að misskilja þetta. Móses var VG enda var hann mikill besservisser og vildi að allt færi að sínum vilja, meira að segja náttúruöflin. Hann var líka með endalausar reglur, boð og bönn. Sagði fólki hvernig það átti að haga sér. Týpískur VG.
Jesú hefur hins vegar klárlega verið Sjalli eða jafnvel Frjálslyndur. Á móti skattheimtu, einokunarverslun og vildi láta einkavæða (stundaði t.d. einkavædda heilsugæslu). Á móti kerfinu in general. Svona minimal state dude.
Haldið svo áfram að tala um brjóstin á Önnu, mig grunar að það gleðji hana mjög toungue

Nr. 48 | posted by: Hugz | 17.09.2007 | 11:52:48 | [+] |

Já brjóstin, hvernig í ósköpunum duttu þau út úr umræðunni?

Nr. 49 | posted by: AlanHudson | 17.09.2007 | 13:51:30 | [+] |

Ég fór heim að gubba í hádeginu.

Nr. 50 | posted by: anna | 17.09.2007 | 14:40:14 | [+] |

Móses var svona eins og frekur leiðsögumaður í Ferðafélagi Íslands eða Alpaklúbbnum á stórum jeppa. Heilsugæsla Jesús var öll frí -- ekki beint það sem ungsjallarnir eru að tuða þegar þeir tala um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Og Jesús var besti vinur skattheimtumannanna, sem allir aðrir hötuðu.

Anna, ertu ófrísk eftir Jesú?

Nr. 51 | posted by: Organistinn | 17.09.2007 | 15:41:30 | [+] |

Væri það nú ekki týpískt.

Nr. 52 | posted by: anna | 17.09.2007 | 15:47:00 | [+] |

Eru frekir leiðsögumenn í Ferðafélaginu ekki einmitt stofnfélagar í VG ??
Jesús gerði ekkert ókeypis, þú átt að trúa á hann í staðinn fyrir kraftaverk.
Anna, það er spurning hvort er ekki bara best að viðurkenna strax að þú ert ólétt eftir þennan 18 ára hlutverkaleikjaspilara sem þú hittir í Nexus ...

Nr. 53 | posted by: Hugz | 17.09.2007 | 16:28:07 | [+] |

"Ég fór heim að gubba í hádeginu."

Það verður nú ekki á þig logið, tillitssemin alltaf!

Nr. 54 | posted by: AlanHudson | 17.09.2007 | 16:33:20 | [+] |

Hvað meinarðu Alan?

Hvaða hlutverkaleikjaspilara? Ha?

Ég kem af fjöllum. Ólétt? Ég? Oneeee.

Nr. 55 | posted by: anna | 17.09.2007 | 19:03:49 | [+] |

"Flýturðu?"

Alan, áttu við hvort Jesús fljóti?


Nr. 56 | posted by: Organistinn | 17.09.2007 | 19:53:35 | [+] |

Jebb, hann flýtur.

Nr. 57 | posted by: anna | 17.09.2007 | 20:10:33 | [+] |

Anna: Áður fyrr þá fóru menn ekki bæjarleið til að æla heldu létu nærstadda njóta þess ef svo bar undir.

Organisti: Já gerði hann það ekki? Kannski var hann með brjóst, adipose vefurinn er jú eðlisléttur - það þyrfti að endurlesa Nýja testamentið með þetta í huga.

Nr. 58 | posted by: AlanHudson | 17.09.2007 | 20:14:21 | [+] |

Ef þið haldið áfram að tala svona dót sem ég skil ekki en hljómar coherent..

..bara strákar ekki láta svona. Ég fer að gráta. Vitiði hvað ég er viðkvæm?

Nr. 59 | posted by: anna | 17.09.2007 | 20:24:24 | [+] |

"Jebb, hann flýtur."

En ef þú lætur batteríin í?

Nr. 60 | posted by: Organistinn | 17.09.2007 | 21:04:37 | [+] |

Það er nú málið.. ég nota aldrei batterí.

Nr. 61 | posted by: anna | 17.09.2007 | 21:05:43 | [+] |

Misbrjósta konan hálf hrasaði í strætó í morgun, og við það tækifæri þá kallaði hún ´Jesús´ til viðstaddra. Ég er enn að reyna að skilja hvað var á seyði, en takmarkaður skilningur minn á veikara kyninu stendur innihaldsríkum ályktunum fyrir þrifum.

Nr. 62 | posted by: AlanHudson | 20.09.2007 | 19:09:50 | [+] |

Steig hún á stóra brjóstið?

Nr. 63 | posted by: Organistinn | 20.09.2007 | 22:45:35 | [+] |

Ég var upptekinn við að horfa á önnur brjóst svo aðdragandinn fór framhjá mér.

Nr. 64 | posted by: AlanHudson | 20.09.2007 | 23:06:06 | [+] |

Það er ekki annað hægt en að elska menn eins og ykkur.

Þið eruð frábærir.

Nr. 65 | posted by: anna | 20.09.2007 | 23:11:06 | [+] |

Ég þarf ráðgjöf.

Fyrir nokkrum vikum réðum við nýjan ritara hér í sókninni. Þetta er afskaplega hugguleg kona á miðjum aldri. Á CVinu hennar kom fram að hún hafði varið síðustu tveimur árum í að sjá um veika móður sína, og samhliða því vann hún sem sjálfboðaliði með presti í annarri sókn. Eitt það fyrsta sem hún gerði var að setja upp stóra fjölskyldumynd á borðið sitt við hliðina á tölvunni, sem sýnir að hún er vel gift og á hamingjusama fjölskyldu. Þetta er svona amerísk fjölskyldmynd þar sem vantar bara geislabaugana yfir börnin. Konan er afskaplega ljúf í öllum samskiptum, eins og hún sé í nánu sambandi við Guð, og talar með vott af Suðurríkjahreim sem gerir hana enn yndislegri.

Hún hefur aðstöðu í svona litlum ferhyrningi þar sem er bara pláss fyrir stólinn hennar við skrifborðið og tölvuna. Þegar Organistinn kemur að leggja fyrir hana verkefni, þá kemur hann upp að henni á vinstri hlið þar sem ferhyrningurinn er opinn. Ég stend. Hún situr.

Hér er vandamálið. Af einhverjum ástæðum er hún í mjög flegnum og víðum peysum þannig að þegar ég lít af skerminum af tölvunni, eða af nótum á skrifborðinu, í áttina að andliti hennar, svona til að sjá viðbrögðin við því sem ég er að segja, þá kemst ég ekki hjá því að sjá oní peysuna eða skyrtuna. Og þá festast augu mín ósjálfrátt á mjög fallegum brjóstum. Ekki stórum, heldur bara vel formuðum brjóstum, sem hafa haldið sér gífurlega vel þrátt fyrir barnseignir (kannski var hún ekki með börnin á brjósti).

Sjálfur roðna ég, en hún aftur á móti virðist annaðhvort ekki taka eftir þessu eða algerlega halda ró sinni. Kannski þorir hún bara ekki að láta á neinu bera því ég er jú organisti og hún ritari sem vinnur fyrir mig. Það má vel vera að ég sé að særa blygðunarkennd hennar.

Alla vega, þetta er dálítið erfitt mál því þó ég reyni að forðast að horfa þá er það nánast ekki hægt. Mundu, ég stend og hún situr. Þetta mætti leysa ef ég gæti sest við hlið hennar til að fara yfir verkefnin, en því miður er ekki pláss fyrir annan stól þannig að ég þarf að standa við opið á ferhyrningnum.

Það eina sem mér hefur dottið í hug er að fara fram á við hana að hún mæti í vinnuna í rúllukragapeysum. Er í lagi fyrir mig að fara fram á það?

Nr. 66 | posted by: Organistinn | 1.10.2007 | 9:44:13 | [+] |

Ég veit ekki hvað þú getur gert í þessu máli. Stendurðu mikið?

Það eina sem ég finn er gleði yfir því að brjóstin á konu á miðjum aldri geti hreyft við lífsreyndum rokkara eins og þér. Veit að þú hlýtur að vera umkringdur sílíkonum alla daga þarna í sókninni.

En þú ert kannski dying breed.

Nr. 67 | posted by: anna | 1.10.2007 | 15:08:32 | [+] |

Organisti: Þetta er óskemmtileg staða sem þessi suðurríkjafrú hefur komið þér í. Þetta er í rauninni kynferðislegt ofbeldi með öfugum formerkjum og enn eitt dæmið um hvernig komið er fyrir körlum í dag. Það væri eðlilegast ef þú einfaldlega hefðir máls á þessum velsköpuðu brjóstum og hrósaðir henni fyrir hversu vel hún hefði haldið sér þrátt fyrir barneignir og sjúkrahjálp, en það gæti endað illa. Hún er jú úr suðurríkjunum, og sumt af því fólki er vopnað. Miðað við að hún situr og þú stendur þá gæti ýmislegt líka verið í hættu sem gott og gaman væri að halda í sem bestu lagi fram eftir aldri, ef hún fer að skjóta út í loftið.

Þú verður sennilega að grípa til annarra aðgerða.

Eitt sem mér dettur í hug væri að fá sér svona miniklappstól sem kæmist fyrir inni í ferningnum. Ég hef séð slíka smástóla til sölu í SkyMall blöðunum sem boðið er uppá í innanlandsfluginu þarna í sókninni þinni. Þeir nýtast líka sem göngustafir, svo þetta væri góð fjárfesting upp á síðari tíma. Svona stól-stafur yrði líka gagnlegur ef svo illa færi að konan drægi upp marghleypu og færi að skjóta á þig þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir. Einfaldasta lausnin væri samt að fá sér dökk sólgleraugu þannig að það sjáist ekki hvert þú ert að horfa. Sumum konum finnst það líka ákaflega aðlaðandi þegar tónelskir menn á miðjum aldri ganga um með sólgleraugu. Sjáðu bara Rollingana!

Nr. 68 | posted by: AlanHudson | 1.10.2007 | 19:41:54 | [+] |

Já - það þarf ekki einu sinni Rollingana sem dæmi, Tony dugar!

Nr. 69 | posted by: AlanHudson | 1.10.2007 | 19:43:40 | [+] |

Þú þarft klárlega að gera eitthvað Organisti. Mér líst vel á klappstóladæmið. Eða vera duglegur að gefa henni hálsklúta. Trefla? Teppi?

Nr. 70 | posted by: anna | 1.10.2007 | 20:53:42 | [+] |

Hugsanlega er eina lausnin á þessu vandamáli að ráða karlmann í starfið. Hann þarf vitaskuld að vera kominn yfir stærsta hormónahjallann.

Nr. 71 | posted by: AlanHudson | 1.10.2007 | 22:03:07 | [+] |

Anna: Nei, ég stend ekki mikið. Við organistar sitjum mest við hljóðfærið. Það er einna helst að ég standi um helgar ef ég er beðinn um að spila á kúabjölluna. Og oft finnst mér gott að standa við Hammondinn þegar ég spila í giftingaveislum, barmitzvum og batmitzvum. Fiðlarann á þakinu spila ég alltaf standandi, enda er þá komið mikið fjör í mannskapinn.

Alan: Alltaf ert þú úrræðagóður; ég er búinn að panta klappstólinn -- það mun þrælvirka. Nei, þessi kona er of ljúf til að bera skotvopn.

Anna: Við Allan erum ekki óvenjulegir brjóstaáhugamenn. Ég fór á sýningu á SFMOMA í síðustu viku, og þessi verk vöktu athygli mína (það er greinilegt að aðrir hafa tekið eftir brjóstum):
http://collections.sfmoma.org/OBJ256.htm
http://collections.sfmoma.org/Obj213$1
http://collections.sfmoma.org/Obj107$1
http://collections.sfmoma.org/Obj8509$1535
http://collections.sfmoma.org/Obj229$40169

Alan: Það kemur ekki til greina að ráða karlmann í þetta starf. Við eigum vonandi eftir að ræða það nánar, en brjóstamyndun hjá karlmönnum er ekki svo óalgeng. Það væri nú ljóta helvítið ef ég þyrfti að horfa á karlmannsbrjóst. Anna heldur sig auðvitað við folöldin þannig að hún hefur sennilega aldrei deitað karlmann með brjóst.

Nr. 72 | posted by: Organistinn | 2.10.2007 | 1:22:08 | [+] |

Já við nánari umhugsun þá blasir það við að karlmaður gæti aldrei sinnt þessu starfi með sama árangri og brjóstgóð miðaldra kona. Það væri sérlega óviðkunnanlegt að að lenda í því að gjóa augunum óvart niður í hálsmálið á brjóstmiklum karlmanni og sjá bringuhár. Þó þetta hafi ekki þótt tiltökumál í Austur Þyskalandi á síðustu öld hjá báðum þá eru aðrir hárlausari tímar í dag og gerðar meiri kröfur til fólks.

Nr. 73 | posted by: AlanHudson | 2.10.2007 | 23:08:14 | [+] |

Það er kaldhæðni örlaganna að með aldri stækka brjóst karlmanna meðan brjóst kvenna minnka. Gröfin skerast oft um sextugsaldurinn; þá er eiginmaðurinn kominn með stærri brjóst en eiginkonan. Það er t.d. mjög líklegt að Davíð Oddsson sé með stærri brjóst en konan hans, þó ég viti það ekki fyrir visst.

Mér sýnist þó á myndinni af Önnu að hún sé ekki í mikilli hættu -- að enginn maður geti náð hennar brjóstastærð, jafnvel þó Anna nái háum aldri.

Þetta sem þú segir um hárið minnti mig á annað verk á SFMOMA:
http://collections.sfmoma.org/Obj111059$9419

Nr. 74 | posted by: Organistinn | 2.10.2007 | 23:34:50 | [+] |

Jafnvel þó hvað?

Nr. 75 | posted by: anna | 3.10.2007 | 1:59:12 | [+] |

Organistinn hefur þarna aðeins slegið feilnótu í fimmtu sinfóníunni. Við skulum reyna að beina umræðunni að áhugaverðari hliðum á þessu máli.
Því er oft haldið fram að konur hrífist mjög af vöðvastæltum karlmönnum, og þá er meðal annars vísað til tignarlegra brjóstvöðva. Að sama skapi er manni sagt að konur hrífist lítið af brjóstmiklum karlmönnum. Hvernig getur staðið á þessum mun?

Nr. 76 | posted by: AlanHudson | 3.10.2007 | 16:04:17 | [+] |

Eg spila, og spila, og slae margar feilnotur. Thad versta er ad eg hef enga tilfinningu fyrir hljomnum. Thannig er thad i thessu tilfelli, eg attadi mig alls ekki a ad thetta vaer folsk nota. Thad er slaemt ad hafa laglausan organista.

Nr. 77 | posted by: Organistinn | 3.10.2007 | 21:55:25 | [+] |

Karlmenn með brjóst eru eitt það óhugnanlegasta sem ég veit. Held ég hafi samt aldrei séð mann sem hefur stærri brjóst en ég.

Ég fíla líka ekki heldur að vera með manni sem hefur minni rass en ég. Það er bara eitthvað svo... rangt.

Annars grunar mig að ljónið sé hrifnara af rassinum á mér en brjóstunum. Um daginn þegar við vorum saman fór ljónið að urra og beit mig svo í aðra rasskinnina.

Þetta er svo mikið villidýr.

Sem betur fer vorum við ekki í bíó þegar þetta gerðist.

Nr. 78 | posted by: anna | 3.10.2007 | 23:17:52 | [+] |

Þetta var nú bara pínu aðeins annar tónskali. Atónal sýnist mér. Það þarf vel menntaða organista til að slá um sig með slíku!

En mér finnst þessi rassathugasemd dálítið fróðleg. Það er nefnilega mikið úrval af rassstórum karlmönnum í strætónum mínum. Ég hef að vísu ekki horft mikið á þá, skiljanlega, enda margt betra í boði alla jafna. En undanfarið hef ég verið að gefa þeim gætur í laumi svo lítið beri á, svona í rannsóknaskyni. Aðar augngotur hafa auðvitað líka verið í rannsóknaskyni.

Sumir þessara rassstóru karlmanna eru dálítið myndarlega vaxnir, og eiginlega fýsíkst útilokað að hafa af þeim augun, nema hreinlega snúa sér við í sætinu (og þá er viðbúið að reka augun í annan enn myndarlegri).

En þetta er nú ekki það sem ég ætlaði að ræða. Mér virðist nefnilega að það sé afar sterk fylgni (jafnvel R>1!) á milli botnstærðarinnar brjóstanna sem þeir státa oftast líka af. Ég held jafnvel að sumir þeirra gætu slegið Önnu út í brjóstmáli.

Þess vegna held ég að þessi krafa um að sumir líkamshlutar séu stærri, en aðrir minni, geti verið erfið að uppfylla.

Og meira af strætó; ég hef ekki séð misbrjóstgóðu konuna í nokkurn tíma og sakna hennar svolítið. Það læðist að manni sá grunur að hún hafi hreinlega hryggbrotnað einhversstaðar á lífsleiðinni síðan ég sá hana síðast. Það væri ekki ótrúlegt miðað við vaxtarlagið, en við vonum auðvitað það besta.

Nr. 79 | posted by: AlanHudson | 4.10.2007 | 20:01:52 | [+] |

Og svo verð ég að lýsa ánægju minni með hvernig þessi þráður er að þróast. Brjóst og rassar, hvað getur maður farið fram á meira? smile

Nr. 80 | posted by: AlanHudson | 4.10.2007 | 22:01:55 | [+] |

Afturendinn á konum getur verið mjög sexí, því er ekki hægt að neita.

Eins og Anna gefur í skyn þá er smekkur karla fyrir kvenrössum erfðafræðilega ákvarðaður síðan við hoppuðum um á fjórum fótum og við okkur blasti rassinn á hinu kyninu. Þýska ljónið (eða er sá þýski annar maður en ljónið?) stendur því undir nafni og virðist vera spendýr sem er minna þróaður en við Allan sem göngum um á tveimur og beinum sjónum okkar meira að börmum kvenna.

Beit hann fast?

Nr. 81 | posted by: Organistinn | 5.10.2007 | 6:43:44 | [+] |

Nei hann beit mig akkúrat mátulega. Ég beit hann á háls stuttu seinna svo við erum even.

Ljónið er ekki þýskt og fyndið því þýska ljónið er að fara til Afríku að hitta önnur ljón í safarí.


Það virðast þrjár tegundir af mönnum skv minni reynslu

a) brjóstamenn
b) rassa og mjaðmamenn
c) leggjamenn

Hefur ekkert með þróun að gera held ég.

Nr. 82 | posted by: anna | 5.10.2007 | 10:41:50 | [+] |

Ég held að þessir þrír flokkar ráðist oft af hæð. Margir byrja sem leggjamenn, þróast svo út í rassa- og mjaðmamenn (þekkjast m.a. á gífurlegum áhuga á kúk- og pissbröndurum á því skeiði) og enda svo sem brjóstamenn.

Á þessu eru auðvitað undantekningar því það þekkist að menn festist á hinum ýmsu skeiðum út æfina, og sýni æðri líkamshlutum lítinn áhuga.

Nr. 83 | posted by: AlanHudson | 5.10.2007 | 14:31:30 | [+] |

Anna, hvað er leggjamaður? Hvernig hegða þeir sér?

Nr. 84 | posted by: Organistinn | 6.10.2007 | 7:42:00 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web