Allt hefur sínar skýringar..
Miðvikudagur, 19. september 2007
..og nú veit ég loksins af hverju ég hef verið með svona mörgum fjöldamorðingjum.
Ég hélt að þeir væru ógeðslega klárir forritarar!
Meina.. getur þú séð muninn?
Viðurkenni að það voru alltaf viss vonbrigði að komast að því að þeir þyrftu að drepa fólk svona on the side. Reyndar fannst einum nóg að drepa dverga, en sumir segja að dvergar séu fólk. Það er sjálfsagt smekksatriði. Þessir ógeðslega kláru menn í lífi mínu sem reyndust vera fjöldamorðingjar áttu reyndar allir erfitt með að tjá tilfinningar, væntumþykju og svoleiðis - en ég skildi alveg þegar þeir grýttu einhverju í gólfið eða öskruðu á mig þó ég stæði við hliðiná þeim. Þeim þótt bara svona vænt um mig.
Líka þegar þeir báðu mig stundum um að fara - það var ekki vegna þess að þeir vildu ekki hafa mig nálægt sér, þeir vildu bara að ég myndi halda lífi.
Þessar elskur.