www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
ABC
Miðvikudagur, 08. ágúst 2007

Ég hef grun um að ég sé of dugleg að bjarga mér til að karlmanni langi að hafa aðkomu að því máli.

Hver af eftirfarandi konum skorar hæst hjá karlmönnum? Kona a, b eða c.

Kona a)

Þegar ég hafði gengið frá matnum stakk maðurinn minn uppá að ég myndi fara út að hlaupa í kvöld á meðan hann myndi leggja sig í sófanum. Hann er svo mikill snillingur, mér hefði aldrei dottið í hug að fara út að æfa mig og mjög sennilega hefði ég drepið mig í hlaupinu þann 18. ágúst. Ég fór út og hljóp af stað en þegar ég var komin að landakoti fann ég alveg svakalega sáran verk í hægri kálfanum. Ég hneig niður og skall á stéttinni með tárin í augunum. Með skjálfandi hendi tókst mér að veiða símann uppúr jakkavasanum og hringja heim - segja manninum mínum að ég lægi slösuð fyrir framan spítalan í hverfinu og það væri fólk að horfa á mig. Hann var ekki nema þrjár mínútúr að koma á staðinn, taka mig í fangið og koma fyrir inní bíl. Því næst keyrði hann mig uppá slysavarðsstofu þar sem hann heimtaði að það yrði tekin mynd af fætinum á mér, þó ég væri alveg hætt að finna til í honum. En honum þykir bara svo vænt um mig og hann veit alltaf hvað er best. Á leiðinni heim keyptum við ís og svo fórum við að horfa á sjónvarpið saman í sófanum. Ég bað hann að láta mig vita þegar hann heldur að ég sé orðin nógu góð til að hlaupa aftur. Hann hló örlítið, klappaði mér svo á höfðinu, kyssti á ennið á mér og sagði "þú ert svo mikil dúlla".

Kona b)

Ákvað að fara að hlaupa í kvöld. Langar að sjá hvort ég geti hlaupið í vinnuna héðan, það eru ekki nema 4.35 km. Fór út, hljóp af stað en var ekki komin lengra en að landakoti þegar ég fann alveg svakalega sáran verk í hægri kálfanum og snarstoppaði. Ég hef örugglega grett mig ósjálfrátt og svo reyndi ég að ganga en gat það ekki. Haltraði uppað næsta ljósastaur og fór að teygja kálfann sem var alveg svakalega sárt en samt eiginlega skárra en hitt. Á meðan ég var að því fór ég að hugsa. Ok Anna, hvað gerirðu nú? Þú ert ekki að fara að panta leigubíl á þennan ljósastaur - no way. Djöfull. Ég hlýt að ná að ganga þetta úr mér. Svo gekk ég hægt og rólega af stað, hvert skref með hægri var eins og hnífsstunga í gegnum kálfann sem varð samt örlítið minna sár með hverju spori. Þegar ég var komin að Gerplu sjoppunni hefur leikið um varirnar á mér smá bros því mér fannst þetta soldið fyndið. Rjúka af stað.. haltra heim. Þarf að vera duglegri að teygja og að sjálfsögðu fer ég aftur að hlaupa á morgun. Hita bara vel upp fyrst. Fór á msn og sagði vini mínum frá því sem gerðist. Hann segir að ég eigi ekki að bjarga mér sjálf, það séu bara trukkalessur sem haga sér svona.

Kona c)

Þegar ég var búin að bora upp gardínur í allir íbúðinni ákvað ég að fara út að hlaupa í kvöld og þaut af stað. Þegar ég kom að landakoti fann ég þennan líka helvítis verk sem svoleiðis tætti í sundur kálfann á mér. Ég snarstoppaði og öskraði: AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA, svo lamdi ég í næsta ljósastaur. HÓRUR! Oh.. MOtherFUCKer! ÉG GET SVO.. HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GLÁPA Á ÞARNA HELVÍTIS PAPPAKASSI? HA? Maðurinn, sem ég hafði beint öskrum mínum að, hljóp í burtu. Sá greinilega hvað ég er brothætt og í miklu tilfinningalegu uppnámi. Ég veiddi reipi úr vasanum, beit í það og haltraði heim og annað slagið sleit ég upp runna með rótum á meðan ég öskraði AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA og grýtti honum svo útá götu. Sparkaði líka í þrjá ljósastaura en mér leið líka betur og verkurinn var næstum farinn þegar ég kom heim.


| anna | 22:57 |
comments

ekki er ég karlmaður, en engu að síður líkar mér nú best við lýsingu á þeirri síðustu. gæti verið helv.gaman að fara með henni í bíó á hvort heldur sem er skemmtilega eða leiðinlega mynd. gæti rifið upp nokkur sæti í hlénu if boring og hent þeim í poppvélina frammi. Ef við værum í Háskólabíói væri poppið líka brimsalt og ætti það líka bara svo vel skilið! Djöf,andsk,helv, FÁVITAR í bæjarleyfi.

Ég myndi svo reyna að fá hana til að afhenda mér bíllyklana svo ég geti skutlað okkur heim pirate

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 9.08.2007 | 1:16:08 | [+] |

hehehehe

Nr. 2 | posted by: anna | 9.08.2007 | 9:39:03 | [+] |

C hún er svo mennsk

Nr. 3 | posted by: jói | 9.08.2007 | 10:07:55 | [+] |

Hehehe... þetta var fyndin lesning. Af einhverjum undarlegum orsökum sá ég alltaf fyrir mér týpuna sem Helga Braga leikur í Byko auglýsingunum meðan ég las C colgate ég er kjelling svo ég svara ekki spurningunni hins vegar.

Nr. 4 | posted by: Sigga | 9.08.2007 | 10:42:55 | [+] |

AHAHAHAHA, totally er sú síðasta með aðeins eitt tól í verkfærakassanum: reiði. Í miðjunni auðvitað heilbrigðust, sú fyrsta bara pussy.

Nr. 5 | posted by: Guðrún | 9.08.2007 | 14:57:37 | [+] |

b) IMHO

Nr. 6 | posted by: beggi dot com | 10.08.2007 | 10:45:54 | [+] |

Ég óttast afleiðingarnar ef ég segi ekki : b)

Nr. 7 | posted by: Hugz | 10.08.2007 | 10:51:38 | [+] |

Æ ég veit ekki...

Sennilegast væri einhversstaðar á milli a og b.

Við viljum auðvitað að konur standi á eigin fótum, en alveg eins og konum þykir ómunalega gaman að "kyssa á bágtið", þá eigum við okkar stundir líka þegar við viljum vera riddarinn á hvíta hestinum sem kemur þeysandi og bjargar málunum, ha ?

Er það ekki bara svolítið sanngjarnt ? smile

Nr. 8 | posted by: Þór | 10.08.2007 | 22:22:12 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web