www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gæsin
Laugardagur, 11. ágúst 2007

Fjórir vinir voru uppá hálendinu og sáu vængbrotna gæs sem var mjög kvalin. Það var ekkert grjót nálægt og þeir höfðu engin vopn - það var annaðhvort að láta gæsina kveljast áfram eða snúa hana úr hálsliðnum. Engin þeirra vildi gera það, en eftir nokkra stund tók einn af skarið.

Ég hefði líklega snúið þessa gæs úr hálsliðnum hefði ég verið á staðnum. Ekki af því mig langaði að gera það. Mig langar ekki að meiða dýr, hvað þá drepa. Ég hefði bara ekki haft þolinmæði í að funda um hvert okkar ætti að gera þetta með gæsina sárkvalda á meðan, og ég á til að gera það sem þarf að gera.

Þegar það þarf að gera það.

Maðurinn fyrir mig, er maðurinn sem snýr gæsina úr hálsliðnum áður en ég ákveð að ganga í málið.

Hann má samt ekki vera geðveikur.

Tricky.

Myndir þú snúa gæsina úr hálsliðnum? Segja satt..


| anna | 2:00 |
comments

Ég hefði bakkað yfir hana á fjallajeppa. Alveg dagsatt.

Nr. 1 | posted by: Bavarianjoe | 11.08.2007 | 8:47:36 | [+] |

Beat me to it. Nákvæmlega það sem ég hefði gert.

Nr. 2 | posted by: DonPedro | 11.08.2007 | 9:24:26 | [+] |

Ah en þeir voru ekki á fjallajeppa. Þeir voru fótgangandi.

Hvað þá?

Nr. 3 | posted by: anna | 11.08.2007 | 11:41:21 | [+] |

Jeps alveg sammála þér ég hefði gert það med det samme... ekkert að ræða málin neitt...

Nr. 4 | posted by: Elín | 11.08.2007 | 13:58:20 | [+] |

Farið með hana beinustu leið til dýralæknis og losað mig um leið úr þessum urðargrjótslabbitúr sem ég skil ekki hvernig ég hefði getað látið plata mig í ...

Nr. 5 | posted by: Ásgeir H | 11.08.2007 | 14:05:15 | [+] |

Pff.. Hefði ekki verið lengi að snúa villibráðina úr hálsliðnum og plokka hana á staðnum. Síðan boðið öllum í veislu um kvöldið. Ekki spurning!

Nr. 6 | posted by: Sindri | 11.08.2007 | 17:58:21 | [+] |

Ef ég mætti ét'ana, ekki málið. Myndi ekki skammast mín fyrir það.

En ef ég mætti ekki ét'ana, þá er ég ekki viss... það myndi ekki flokkast undir þörf, gæsin ÞARF ekki að láta drepa sig. Ég hefði ekki viðljað láta einhvern oflátung koma og snúa mig úr hálsliðnum þegar ég lág sárkvalinn og viðbeinsbrotinn í götunni. Ef það hefði labbað upp að mér ljón og sagt við mig 'ég er svangur', þá hefði ég alveg skilið það hefði það étið mig.

Alveg satt.

Það er jú einusinni það sem lífið snýst um á endanum - að éta eða vera étinn smile

Nr. 7 | posted by: Þór | 11.08.2007 | 22:22:18 | [+] |

Skal vera sú fyrsta til að viðurkenna að ég er skræfa og gæti ekki snúið hana úr hálsliðnum þó ég vissi að það væri best fyrir hana. Skræfa. Það er ég.

Nr. 8 | posted by: Sigga | 12.08.2007 | 11:51:01 | [+] |

Ég hefði sennilega ekki snúið hana úr hálsliðnum, frekar að ég hefði stjórnað aðgerðum úr öruggri fjarlægð, enda alþekktur fyrir óþolandi afskiptasemi.

Ef ég hefði sjálfur þurft að standa í þessu, og engra undankomu auðið, þá hefði ég helst kosið að gefa dýrinu kvalastillandi og lesa svo fyrir það úr einhverri bók eftir Thor Vilhjálmsson uns yfir lyki. Það hefði ekki orðið langt dauðastríð.

Nr. 9 | posted by: Alan Hudson | 12.08.2007 | 12:03:27 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web