Mánudagur, 13. ágúst 2007
Í gær hjólaði ég í Laugar og tók æfingu. Hrikalega dugleg. Á eftir fékk ég mér boost og hjólaði svo yfir í grasagarðinn. Þar lá ég í grasinu í klukkutíma og velti fyrir mér hvort ég fyndi gæs sem þyrfti að snúa úr hálsliðnum. Sá enga sem var með brotin væng eða sýndi augljós merki þunglyndis eða lífsleiða svo ég ákvað að gera það ekki. Allt of hamingjusamar gæsir í borginni, ætli maður verði svona glaður af því að borða fransbrauð? Hjólaði Nauthólsvíkurleiðina heim á stuttermabol í köldum mótvindi og fékk ekki svo mikið sem gæsahúð - þannig að engin reyndi að snúa mig úr hálsliðnum. Mjög hressandi.
Í dag heyrði ég hinsvegar eitt fyndnasta orð sem ég hef heyrt lengi. Geldkarl. Þetta er notað um menn sem hafa ekki gengið út.
Geldkarl. Það er svona að vinna með íslenskufræðingi, þeir luma á svona gullmolum. Þegar ég var hætt að hlæja spurði ég hvort ég væri þá ekki geldkerling en nei.. því miður. Geldkerlingar eru konur sem hafa ekki gengið út, en þar sem ég á börn hrapar fólk að þeirri ályktun að ég hafi einhvertíma átt í nánum kynnum við karlmann og get því ekki talist geldkerling. Sem er rugl, RUGL segi ég.
En ef ég læt taka mig úr sambandi? Hvað með fólk sem hefur látið taka sig úr sambandi?! Eru þetta ekki geldkarlar og geldkerlingar?
Djöfull er hressandi að hlæja svona.