Sunnudagur, 19. ágúst 2007
Sex orðaáheit eru komin og ég er búin að fá fyrstu þrjú orðin fyrir fyrstu bloggfærsluna, sem á greinilega að vera drama því orðin eru..
ást
svik
örlög
Þessi orð koma frá lesanda sem vill halda algjörri nafnleynd.
Er að bíða eftir auglýsingastofunni og velta fyrir mér á meðan hvaða vinkil ég á að taka á þessa færslu. Er þetta um ást mína á spandex? Lifur? Stevie Wonder? Jesú!
Kemur í ljós.
Ég er svolítið hölt. Ökklinn á vinstri er í einhverju messi en þar fyrir utan, ég er ekki að grínast, finn ég ekki fyrir að ég hafi verið að gera nokkurn skapaðan hlut í gær. Er ekki einu sinni með harðsperrur.
Ljóta ruglið maður.
Ég viðurkenni að ég komst svolítið við í hlaupinu að sjá allt þetta fólk sem var að hlaupa til að styrkja góðgðerðarfélag. Leigubílstjórinn sem keyrði mig heim hljóp 10 km með fatlaðan vin sinn í hjólastól fyrir sitt góðgerðarfélag. Ég tek aftur þátt á næsta ári. Ekki spurning. Og það er búið að framlengja áheitunum, það verður hægt að heita á fólk til miðnættis á mánudagskvöldið.