www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dead serious
Þriðjudagur, 21. ágúst 2007

Sumir héldu að ég væri að grínast með að ég ætlaði að giftast Glitni.

Nú er ég komin með tvo skjái. 19" skjáinn og nýjan 22" breiðtjaldsskjá.
Setupið hérna er að verða gott - fyrir það sem ég kem til með að gera í vetur.

Ég vinn mikið. Kannski er það ástæðan fyrir því að ég finn ekkert gagnvart neinum af hinu kyninu, ég veit að það er engin grundvöllur fyrir því. Ég veit að ef ég myndi eignast kærasta þá færi stór hluti af orkunni minni í hann. Sem væri kannski ekki vandamál ef karlmenn væru ekki oft verri en ungabörn þegar kemur að athygli. Þegar þeir eru uppteknir má ekkert trufla en svo, allt í einu, þegar þeir þurfa athygli þá svífast þeir einskis. Bombarda mann með sms-um, hringja, liggja á bjöllunni en bjallan mín er sem betur fer biluð svo það er ekki option.

Þegar karlmaður þarf athygli er hann vís með að gera hvað sem er til að fá hana, alveg sama þó þú þurfir að gera eitthvað annað, breytir engu fyrir hann. Það eru örugglega til svona konur líka. Oft er það þannig, að þegar karlmenn hafa fengið athyglina sína, þá fara þeir bara að gera eitthvað annað. Dettur ekki í hug að gera eitthvað í staðinn. Ha? Þú? Þarf þú athygli? Áttu ekki vinkonur? Ég er upptekinn, ég þarf að.. horfa á sjónvarpið/skafa undan nöglunum/whatever.

Ég elska starfið mitt. Það er satt að segja meira rewarding en nokkur karlmaður hefur reynst vera in the long run og þangað til ég finn mann sem gefur mér meira en starfið.. verð ég gift Glitni.

Við grínumst ekki með svona mál hér á anna.is - ég ætti eiginlega að setja upp hring.

Ég er að vera mjög ósanngjörn í þessari færslu því ég veit að það eru ekkert allir karlmenn svona miklir pappakassar. Ég veit hinsvegar líka að ekkert samband myndi ganga upp á meðan ég vinn eins og ég geri og ég er ekki tilbúin að hætta því. Mér finnst bara of gaman í vinnunni.

Vinkonur mínar segja að rétti maðurinn komi til með að breyta því.

Hann er hinsvegar fastur í traffík einhverstaðar og já, ÞAÐ ER ÞESSI TÍMI MÁNAÐARINS!


| anna | 1:01 |
comments

Góðir skjáir eru mun mikilvægari en karlmenn. Ég myndi amk aldrei skipta mínum út fyrir einhvern gaur.

Og til hamingju með hlaupið!

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 21.08.2007 | 4:09:07 | [+] |

Alan, thu ert enntha lifandi. A sama stad eda fluttur?

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 21.08.2007 | 6:49:15 | [+] |

Rafræn ást þér reynist vel,
raun er það að vita.
Fátt get sagt en fram þó tel,
ég færi meiri hita. really sad

Nr. 3 | posted by: Mr. Man | 21.08.2007 | 10:00:21 | [+] |

Já ég tóri, með herkjum þó. Þeir segja að rétt handan við hæðina sé sæluhús.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 21.08.2007 | 14:26:34 | [+] |

Takk Alan.

Mr. Man. Þetta var nú ekki fallega gert því ég er forvitin og ef þú rippaðir þetta ekki off einhverstaðar þá kanntu bragfræði.
Það finnst mér mjög áhugavert.

Nr. 5 | posted by: anna | 21.08.2007 | 22:52:54 | [+] |

Alan: Ég mun fylgjast með Mogganum. Þeir munu væntanlega greina frá því þegar Hudson staulast inní sæluhúsið.

Anna: Þú ert að kvarta undan gagnlausum karlmönnum og svo snarfellur þú fyrir íslenskum bragfræðingi. Þú gætir verið ólæknandi tilfelli.

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 22.08.2007 | 0:26:12 | [+] |

Hver sagði að ég væri fallin fyrir honum?

Nr. 7 | posted by: anna | 22.08.2007 | 0:27:57 | [+] |

"...ég er forvitin...mjög áhugavert...". Það fer ekki á milli mála að þú myndir svara bjöllunni ef hann hringdi.


Nr. 8 | posted by: Organistinn | 22.08.2007 | 1:11:29 | [+] |

hehehe, þú gleymir. Bjallan er biluð. cool

Nr. 9 | posted by: anna | 22.08.2007 | 1:13:08 | [+] |

Þú getur prófað "Asio Mr. Man". Annars finnst mér það saklaust að girnast hagyrðinga, miðað við að þú gekkst um miðbæinn með englavængi fyrir ári síðan, tiltölulega ódrukkin að eigin sögn melodramatic.

Annars er frú Hudson að tala um að heimsækja strandhéruðin í fyllingu tímans. Hana langar á togara. Býður Organistinn í kaffi?

Nr. 10 | posted by: AlanHudson | 22.08.2007 | 1:40:58 | [+] |

Alan: Að sjálfsögðu, og með pönnukökum ef Organistafrúin verður á staðnum. Gefðu mér bara smá fyrirvara svo ég verði ekki í miðri löndun eða á hljómleikaferð þegar þið komið.

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 22.08.2007 | 2:05:22 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web