www.anna.is
ravings of a lunatic í ágúst 2007
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mold
Miðvikudagur, 01. ágúst 2007

Hann teygði sig yfir borðið eins og hann ætlaði að taka af mér gleraugun og ég færði mig til baka.

Taktu þau af. Ég sé þig ekki almennilega.

Ég hef þekkt menn sem spurðu mig af hverju ég væri alltaf með gleraugu en ég hef ekki hitt mann áður sem gengur í málið. Þegar ég færðist undan, bað hann mig að taka þau niður. Hann var eiginlega soldið skipandi, en ekki dónalegur. Eins og gleraugun færu verulega í taugarnar á honum.

Ég tók þau af og lagði þau á borðið. Fannst þetta skrítið og leið eiginlega eins og ég væri kviknakin.

Þetta er í annað sinn sem hann biður mig að taka þau af og í annað sinn sem ég geri það. Merkilegt, því ég tek gleraugun venjulega ekki af þó ég sé beðin um það. Mér finnst betra að hafa þau. Kannski af því þá sér fólk mig ekki almennilega..

Hann: þú þarft bara smá mold, það er allt sem þú þarft
Anna: mold?
Hann: já, næringu til að fæða það sem þú ert þegar byrjuð að búa til, svo það vaxi hraðar.
Anna: hvað flokkast undir mold?
Anna: þú
Hann: já
Anna: en af hverju þú?
Anna: why do you care?
Hann: þú þurftir á mér að halda, and we connect

Ég brosti.

Anna: hvað fleira er mold?
Hann: mold er hvað það sem býr til stemminguna sem fær þig til að gera það sem þú ert ánægð með. Vinna sem hentar þér, börn sem hafa trú á þér, vinir, ástvinir, landslag, yoga, áhugamál - en fyrst og fremst annað fólk
Anna: já
Hann: þegar þú sagðir við mig í gær "og svo kemur þú og gerir daginn minn góðan aftur" það er mold, tilfinningin sem þú fannst þá
Anna: ég er aldrei þannig mold fyrir þig, er það ekki ósanngjarnt?
Hann: sambönd sem ekki eru í jafnvægi endast ekki, okkar samband hefur bara vaxið
Hann: þú gerir meira fyrir mig en þú heldur

Ég brosti aftur.

Anna: það er sjaldgæft held ég að einhver hreinlega þori að sýna væntumþykju eins og þú gerir
Hann: er það?
Anna: já
Anna: mér finnst það, því þú hefur ekki alterier motive. Þú ert einlægur.
Anna: eins og þegar þú tekur utanum mig þegar þú finnur að ég þarf á því að halda, en ekki af því þú vorkennir mér eða heldur að ég komi til með að sofa hjá þér. Það er ekkert algengt
Hann: kannski ekki. það er einhvernveginn mjög bein leið á milli okkar, óvanalega svo
Anna: já það er það
Anna: gott að vita að þetta sé actually til í þessum heimi og hægt að finna þó maður sé orðin aldraður

Hann fór að hlæja.

Hann: veistu hvað lætur mér líða vel?
Anna: nei
Hann: þegar þér líður illa og ég veit að ég þarf bara að faðma þig og þér líður vel aftur

Anna: spáðu samt
Anna: ef einhver hefði alltaf gert það fyrir mig
Hann: við hefðum bara átt að kynnast mikið fyrr .. lítill tími eftir núna
Anna: já

Anna: kannski var bara ekki grundvöllur fyrr
Hann: sennilega ekki

Hann: ég verð svolítið afbrýðissamur þegar þú segir að þú hafir tengst öðrum á þennan hátt
Hann: soldið sick
--

Hann says: var að lesa færsluna þína
Hann says: þú ert glettilega góður penni
Anna says: takk
Hann says: nei.. mér finnst það ekki
Hann says: ég sagði þetta bara til að fá að sofa hjá þér
Anna says: lol


| anna | 19:19 | permalink | comments (6) |
5 km
Miðvikudagur, 01. ágúst 2007

Ég fór aldrei fimm km í gær, fór í staðinn út að hjóla í góða veðrinu.

Það er ekkert smá gaman að hjóla. Var eins og fáviti til fara, eins og lög gera ráð fyrir, í svakalega hlaupagallanum sem ég keypti mér fyrir stuttu. Hjálmurinn er samt alveg að gera sig!

Dark Helmet

Fór hinsvegar út að hlaupa í kvöld og fór fimm km.

Ég held að ég hafi gert eitthvað við lungun á mér á endasprettinum. Var eins og opnaðist fyrir eitthvað og skyndilega fékk ég svakalega mikið súrefni í líkamann. Mig svimaði. Sennilega hef ég aldrei andað áður.

Næst ráfaði ég aðeins um þarna við Sæbrautinn, eins og ég væri nýsloppin af hæli. Andaði og andaði og andaði. Fann bílinn og keyrði heim, andandi.

Þegar ég kom heim datt ég í stólinn minn og lá þar eins og slytti í smá stund - og andaði.

Dead

Ég er að spá í að hætta að anda, tekur ekkert lítið á.


| anna | 22:43 | permalink | comments (5) |
BUSTED
Miðvikudagur, 01. ágúst 2007

*censored* says: ég hef þig samt grunaða um að hafa verið að setja í uppþvottavélina
*censored* says: og örmagnast

Aha, time to fess up.

Ég hljóp ekkert í kvöld. Fór í hlaupagallann, setti í uppþvottavél og örmagnaðist..

Anna says: lol
Anna says: þeeeeeeegiðu
Anna says: ulli.jpg


| anna | 23:09 | permalink | comments (4) |
Af lífsleikni
Fimmtudagur, 02. ágúst 2007

Anna: Ég held að ég sé ekkert rosalega klár í lífsleikni.

Var að ná mér í tyggjó, sem datt ofaní heita kakóið mitt og hvarf á sama augnabliki og ég sleppti orðinu.

Anna: need I say more?


| anna | 0:06 | permalink | comments (3) |
NEEEEEEEEEEEEEEEEEEEI
Þriðjudagur, 07. ágúst 2007

gleraugu.jpg

Í beinu framhaldi af fyrri fullyrðingu um lífsleikni..

Þau eru dáin.
En það er allt í lagi, ég fór beina leið í gleraugnabúð og keypti mér ný.

Miklu flottari.


| anna | 21:06 | permalink | comments (8) |
ABC
Miðvikudagur, 08. ágúst 2007

Ég hef grun um að ég sé of dugleg að bjarga mér til að karlmanni langi að hafa aðkomu að því máli.

Hver af eftirfarandi konum skorar hæst hjá karlmönnum? Kona a, b eða c.

Kona a)

Þegar ég hafði gengið frá matnum stakk maðurinn minn uppá að ég myndi fara út að hlaupa í kvöld á meðan hann myndi leggja sig í sófanum. Hann er svo mikill snillingur, mér hefði aldrei dottið í hug að fara út að æfa mig og mjög sennilega hefði ég drepið mig í hlaupinu þann 18. ágúst. Ég fór út og hljóp af stað en þegar ég var komin að landakoti fann ég alveg svakalega sáran verk í hægri kálfanum. Ég hneig niður og skall á stéttinni með tárin í augunum. Með skjálfandi hendi tókst mér að veiða símann uppúr jakkavasanum og hringja heim - segja manninum mínum að ég lægi slösuð fyrir framan spítalan í hverfinu og það væri fólk að horfa á mig. Hann var ekki nema þrjár mínútúr að koma á staðinn, taka mig í fangið og koma fyrir inní bíl. Því næst keyrði hann mig uppá slysavarðsstofu þar sem hann heimtaði að það yrði tekin mynd af fætinum á mér, þó ég væri alveg hætt að finna til í honum. En honum þykir bara svo vænt um mig og hann veit alltaf hvað er best. Á leiðinni heim keyptum við ís og svo fórum við að horfa á sjónvarpið saman í sófanum. Ég bað hann að láta mig vita þegar hann heldur að ég sé orðin nógu góð til að hlaupa aftur. Hann hló örlítið, klappaði mér svo á höfðinu, kyssti á ennið á mér og sagði "þú ert svo mikil dúlla".

Kona b)

Ákvað að fara að hlaupa í kvöld. Langar að sjá hvort ég geti hlaupið í vinnuna héðan, það eru ekki nema 4.35 km. Fór út, hljóp af stað en var ekki komin lengra en að landakoti þegar ég fann alveg svakalega sáran verk í hægri kálfanum og snarstoppaði. Ég hef örugglega grett mig ósjálfrátt og svo reyndi ég að ganga en gat það ekki. Haltraði uppað næsta ljósastaur og fór að teygja kálfann sem var alveg svakalega sárt en samt eiginlega skárra en hitt. Á meðan ég var að því fór ég að hugsa. Ok Anna, hvað gerirðu nú? Þú ert ekki að fara að panta leigubíl á þennan ljósastaur - no way. Djöfull. Ég hlýt að ná að ganga þetta úr mér. Svo gekk ég hægt og rólega af stað, hvert skref með hægri var eins og hnífsstunga í gegnum kálfann sem varð samt örlítið minna sár með hverju spori. Þegar ég var komin að Gerplu sjoppunni hefur leikið um varirnar á mér smá bros því mér fannst þetta soldið fyndið. Rjúka af stað.. haltra heim. Þarf að vera duglegri að teygja og að sjálfsögðu fer ég aftur að hlaupa á morgun. Hita bara vel upp fyrst. Fór á msn og sagði vini mínum frá því sem gerðist. Hann segir að ég eigi ekki að bjarga mér sjálf, það séu bara trukkalessur sem haga sér svona.

Kona c)

Þegar ég var búin að bora upp gardínur í allir íbúðinni ákvað ég að fara út að hlaupa í kvöld og þaut af stað. Þegar ég kom að landakoti fann ég þennan líka helvítis verk sem svoleiðis tætti í sundur kálfann á mér. Ég snarstoppaði og öskraði: AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA, svo lamdi ég í næsta ljósastaur. HÓRUR! Oh.. MOtherFUCKer! ÉG GET SVO.. HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GLÁPA Á ÞARNA HELVÍTIS PAPPAKASSI? HA? Maðurinn, sem ég hafði beint öskrum mínum að, hljóp í burtu. Sá greinilega hvað ég er brothætt og í miklu tilfinningalegu uppnámi. Ég veiddi reipi úr vasanum, beit í það og haltraði heim og annað slagið sleit ég upp runna með rótum á meðan ég öskraði AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA og grýtti honum svo útá götu. Sparkaði líka í þrjá ljósastaura en mér leið líka betur og verkurinn var næstum farinn þegar ég kom heim.


| anna | 22:57 | permalink | comments (8) |
Af uppeldi
Fimmtudagur, 09. ágúst 2007

Anna: Krakkar! Ég er komin heim - með ný gleraugu!
Frumburður: Ha? Ertu með ný gleraugu?
Anna: Já, hin brotnuðu, ég sagði þér frá því.
Frumburður: Sá það á heimasíðunni. Hélt að þú hefðir bara photoshoppað þau.
---

Þau vita ekkert hvar þau hafa mig.

Það er best þannig.


| anna | 22:23 | permalink | comments (2) |
Battle at Kruger
Fimmtudagur, 09. ágúst 2007


| anna | 23:58 | permalink | comments (2) |
Gæsin
Laugardagur, 11. ágúst 2007

Fjórir vinir voru uppá hálendinu og sáu vængbrotna gæs sem var mjög kvalin. Það var ekkert grjót nálægt og þeir höfðu engin vopn - það var annaðhvort að láta gæsina kveljast áfram eða snúa hana úr hálsliðnum. Engin þeirra vildi gera það, en eftir nokkra stund tók einn af skarið.

Ég hefði líklega snúið þessa gæs úr hálsliðnum hefði ég verið á staðnum. Ekki af því mig langaði að gera það. Mig langar ekki að meiða dýr, hvað þá drepa. Ég hefði bara ekki haft þolinmæði í að funda um hvert okkar ætti að gera þetta með gæsina sárkvalda á meðan, og ég á til að gera það sem þarf að gera.

Þegar það þarf að gera það.

Maðurinn fyrir mig, er maðurinn sem snýr gæsina úr hálsliðnum áður en ég ákveð að ganga í málið.

Hann má samt ekki vera geðveikur.

Tricky.

Myndir þú snúa gæsina úr hálsliðnum? Segja satt..


| anna | 2:00 | permalink | comments (9) |
Mér finnst þau töff
Laugardagur, 11. ágúst 2007

Anna með nýju gleraugun

Hvaða rugl er þetta, þau eru ekkert alveg eins og gömlu..

Anna með gömlu gleraugun


| anna | 12:28 | permalink | comments (7) |
What the lack of sex will do to you
Laugardagur, 11. ágúst 2007

Hann says: þú ert með of margar formótaðar hugmyndir í kollinum á þér
Anna says: já er það virkilega?
Anna says: hvaða hugmyndir eru það?
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Hann says: rífumst ... ég hef ekki rifist almennilega lengi
Anna says: já
Anna says: eigum við að rífast í síma?
Anna says: eða viltu frekar rífast á msn?
Anna says: HVAÐA FORMÓTUÐU HUGMYNDIR HEF ÉG?
Hann says: ég vil helst leðjuslag
Anna says: það er ekki svo óhreint hjá mér
Anna says: but nice try
Anna says: hvaða formótuðu hugmyndir hef ég
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Anna says: ha
Hann says: ég næ mér í kaffi svo hringi ég í þig ... hvaða númer ?
Anna says: xxx xxxx
Hann says: ég hringi eftir smá
Anna says: ok


| anna | 14:32 | permalink | comments (0) |
Strange days
Sunnudagur, 12. ágúst 2007

Hitti Ken á föstudagskvöldið og ég þekkti hann ekki án sólgleraugna! Honum fannst það bara fyndið, greip mig, lyfti mér upp af gólfinu og faðmaði. Þetta var soldið skemmtileg uppákoma - sérstaklega í ljósi þess að nokkrum mínútum áður hafði ég verið að segja viðmælanda mínum að Ken væri.. ekki til.

Seinna um kvöldið hittum við Ken aftur og hann kallaði: "ekki gleyma að við erum gift!" og ég kallaði til baka: "vertu góður!"
--

Ertu gift?
Ha? Neineinei.. þetta er bara Ken. Hann er ekki til í alvörunni - auk þess man ég ekki til þess að við höfum náð að gifta okkur...


| anna | 11:47 | permalink | comments (1) |
Hressandi
Mánudagur, 13. ágúst 2007

Í gær hjólaði ég í Laugar og tók æfingu. Hrikalega dugleg. Á eftir fékk ég mér boost og hjólaði svo yfir í grasagarðinn. Þar lá ég í grasinu í klukkutíma og velti fyrir mér hvort ég fyndi gæs sem þyrfti að snúa úr hálsliðnum. Sá enga sem var með brotin væng eða sýndi augljós merki þunglyndis eða lífsleiða svo ég ákvað að gera það ekki. Allt of hamingjusamar gæsir í borginni, ætli maður verði svona glaður af því að borða fransbrauð? Hjólaði Nauthólsvíkurleiðina heim á stuttermabol í köldum mótvindi og fékk ekki svo mikið sem gæsahúð - þannig að engin reyndi að snúa mig úr hálsliðnum. Mjög hressandi.

Í dag heyrði ég hinsvegar eitt fyndnasta orð sem ég hef heyrt lengi. Geldkarl. Þetta er notað um menn sem hafa ekki gengið út.

Geldkarl. Það er svona að vinna með íslenskufræðingi, þeir luma á svona gullmolum. Þegar ég var hætt að hlæja spurði ég hvort ég væri þá ekki geldkerling en nei.. því miður. Geldkerlingar eru konur sem hafa ekki gengið út, en þar sem ég á börn hrapar fólk að þeirri ályktun að ég hafi einhvertíma átt í nánum kynnum við karlmann og get því ekki talist geldkerling. Sem er rugl, RUGL segi ég.

En ef ég læt taka mig úr sambandi? Hvað með fólk sem hefur látið taka sig úr sambandi?! Eru þetta ekki geldkarlar og geldkerlingar?

Djöfull er hressandi að hlæja svona.


| anna | 12:20 | permalink | comments (3) |
Let's talk bollocks!
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007


| anna | 22:06 | permalink | comments (2) |
Seint á kvöldin..
Miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Are You Ready For A Miracle?

Are you ready for a miracle?
- ready as I can be
Are you ready for a miracle?
- the spirit will set you free
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready, Are you for a miracle

Hey!

Are you ready for a miracle?
- ready as I can be
Are you ready for a miracle?
- the spirit will set you free
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready, Are you ready for a miracle

Jesus went unto the well
and made the water wine
Raised up Lazarus from the dead
Restored sight to the blind
Jesus man of Galilee
He walked across the sea
He said Greater than this you shall do
Gave the power to you and me

I wanna know...

Are you ready for a miracle?
- ready as I can be

I wanna know!

Are you ready for a miracle?
- the spirit will set you free
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready, Are you ready for a miracle

Jesus taught the lame to walk;
destroyed the Devil's plan
Healed a leper feed five thousand
with just one command
Said, He who has ears, let him hear,
He told the multitudes
And blessed be the pure of heart
for they shall see the truth

I wanna know...

Are you ready for a miracle?
- ready as I can be

Are you ready!
Are you ready for a miracle?
- the spirit will set you free
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready?
Ready!
Are you ready, Are you ready for a miracle

Blessed be the ones who mourn
for they shall find their peace
Blessed be the ones who thirst
and blessed be the meek

Ready?
Ready?
Are you ready?
Are you ready?

Blessed be the innocent
for they shall all be free
Blessed be the miracle
that's made for you and me

Ready?
Ready?
Are you ready?
Are you ready?

Are you ready for a miracle?
- ready as I can be
Ohhhh
Are you ready for a miracle?
- the spirit will set you free
Yes I'm ready
Ready!
I'm ready
Ready!
I'm ready
Ready!
I'm ready
Ready!

Are you ready, are you ready for a miracle

Yes, yes, yes!

Ready, ready, ready, yes I am
Ready!
Yes I am!

Get ready!
Get ready!
YES I am

YES!


| anna | 21:44 | permalink | comments (3) |
Ég hleyp til góðs fyrir Hugarafl
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007

Hann: Þú ert ekkert mikið fyrir að gera lítið úr fólki
Anna: Get ekki sagt að ég fái mikið útúr því, nei
Hann: Þú færð kikk útúr því að sjá fólk blómstra

Ég brosti þegar hann sagði þetta vegna þess að það segir mér hversu vel hann þekkir mig. Ég fæ nefnilega kikk útúr því að sjá fólk blómstra og það var þess vegna sem ég ákvað að styrkja félagið Hugarafl.

Á frumkvöðlanámskeiði Impru kynntist ég konu sem heitir Elín Ebba Ásmundsdóttir sem er forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs LSH og lektor við Háskólann á Akureyri.

Eins og ég, fær Elín kikk útúr því að sjá fólk blómstra og hefur af þeim sökum barist í mörg ár fyrir því að boðið sé uppá fleiri úrræði hjá ríkinu fyrir fólk með geðsjúkdóma en lyf. Elín Ebba er líka höfundur Geðorðanna 10 sem margir hafa á segul uppá ísskáp, enda eru þetta skilaboð sem eiga erindi við allar manneskjur sem vilja lifa heilbrigðu lífi. Þó geðdeyfðarlyf séu vissulega oft lausn fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, þá eru þau í mörgum tilfellum einungis skammtímalausn ætluð til að koma fólki af stað og ættu engan veginn að vera notuð árum saman. Ég verð alltaf sannfærðari og sannfærðari um að hluti fólks sem tekur þunglyndislyf að staðaldri gæti unnið sig útúr þunglyndinu sem er að hrjá það með samtalsmeðferð eða atferlismeðferð. Þá væri tekið á orsök sjúkdómsins í stað þess að halda afleiðingunum niðri með lyfjum árum saman. Vil taka fram að ég geri mér fulla grein fyrir því að sumir geðsjúkdómar eru mjög alvarlegir og ekki hægt að lækna en hægt að halda einkennum þeirra í skefjum með lyfjum.

Það sem vakti áhuga minn við starf Elínar Ebbu var hversu mikla áherslu hún lagði á að skjólstæðingar sínir fengju að halda reisn og upplifa einhvern tilgang. Ég held að það sé ekkert meira niðurdrepandi andlega fyrir einstakling en að upplifa sig engum til gagns né gamans og að það skipti í raun engu máli hvort þú lifir eða deyrð.

Ég hringdi í Elínu þegar ég ákvað að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis og spurði hvaða félag ég ætti að styrkja til að hlúa að því starfi sem hún hefur sinnt svo ötullega. Hún sagði mér að Hugarafl væri rétta félagið. Það er félag sem hjálpar fólki með geðsjúkdóma að blómstra.

Heimasíða félagsins er www.hugarafl.is

Ég hef oft grínast með að kjarni lesenda minna séu miðaldra karlmenn og nú leita ég til ykkar, ásamt annarra lesenda. Með ykkar hjálp getur þetta hlaup skipt miklu máli fyrir fólk sem á um sárt að binda.

Hjálpið mér að láta hvert einasta skref skipta máli og ef (þegar) löngunin um að leggjast í jörðina og deyja grípur mig veit ég að það er ekki option. Skráið áheit, sama hver upphæðin er, þetta telur allt!

Allir þeir sem heita fimm þúsund krónum eða meira á mig geta að loknu hlaupi sent mér inn þrjú orð að eigin vali og ég skrifa færslu á síðuna utanum þau. Það gæti orðið áhugavert.

Ég mun að sjálfsögðu einungis gefa upp kommentanafn viðkomandi.


| anna | 1:57 | permalink | comments (14) |
Spurning dagsins..
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007

wtf!

Hvað er Anna að gera á þessari mynd?


| anna | 4:06 | permalink | comments (20) |
Svar við spurningu dagsins
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007

Ég var bara að gera það sem vörður laganna stakk uppá að ég myndi gera fyrir all nokkru síðan.

Hysja upp um mig buxurnar - tungan ber vott um hvað ég er að vanda mig mikið þarna.

Gerði þetta samt ekki á þann hátt sem viðkomandi hefði helst kosið.

Annars datt mér í hug lag þegar ég sá þessa mynd.

You're once, twice, three times a lady..


| anna | 19:31 | permalink | comments (0) |
Skráning, afhending gagna og áheit
Föstudagur, 17. ágúst 2007

Búið er að loka fyrir skráningu í Reykjavíkurmaraþon Glitnis í gegnum Internetið en það er ennþá hægt að skrá sig í öll hlaup og ná í skráningargögn í Laugardalshöll í dag frá klukkan 12:00 - 21:00.

Tekið er á móti áheitum á hlaupara til miðnættis, sunnudaginn 19. ágúst á www.marathon.is.


| anna | 9:36 | permalink | comments (2) |
Are you ready for the marathon?
Föstudagur, 17. ágúst 2007

Þegar ég fór úr skónum áðan gaus upp þessi líka svaka táfýla, þvílík og önnur eins stybba. Ég hef aldrei fundið annað eins og er ég þó oft í lokuðum skóm heilu og hálfu dagana og samt lykta tærnar á mér eins og morgundögg í rósagarði!

Nei. Það er ekki fyrr en ég fer í sérstaka íþrótta sokka og íþrótta skó sem ég fer að framleiða fýlu sem ég huga að gæti drepið mann - jafnvel fleiri en einn.

Ég vinn við að sitja á rassinum alla daga við tölvu en í dag var ég að vinna í Laugardalshöll við að skipuleggja og afhenda gögn til starfsmanna og viðskiptavina Glitnis. Við erum tvær sem sitjum venjulega við tölvur en höfum séð um stóran hluta innri markaðssetningar maraþonsins hjá Glitni og vinnum mjög vel saman. Gott team. Við stóðum báðar uppá endann í allan dag eða vorum hlaupandi um að redda þessu og hinu. Um kvöldmatarleytið var göngulagið hjá okkur báðum eins og eftir 24 tíma törn af verulega hressilegum refsingum. Ég er ekki að grínast. Við ræddum meira að segja um að verða okkur útum göngugrind fyrir hlaupið - en ég er miklu betri núna.
10 km á morgun og ég er í banastuði!

Var að kíkja á áheitasíðuna mína. Níu manns eru búnir að heita á mig og þar af eru fjögur orðaáheit! Það þýðir að fjórir hafa fjárfest í bloggfærslu á anna.is - og hjálpað mér í leiðinni að styrkja Hugarafl. Ég hitti einmitt nokkra félagsmenn þegar ég var að afhenda skráningargögn, þvílíkt hressar og skemmtilegar konur.

Orðaáheit virka þannig að þeir sem heita á mig fimm þúsund krónum eða meira senda mér þrjú orð og ég skrifa færslu utanum þau sem ég hef ákveðið að verði að vera meira en 500 orð. Ég hlakka nú soldið til að sjá hvaða orð fólk kemur til með að senda mér og mun að sjálfsögðu vanda mig við að skrifa færslurnar. Ég mun skrifa færslurnar í þeirri röð sem fólk sendir mér orðin sín.

Núna ætla ég hinsvegar að fara í langt, heitt bað og svo ætla ég að fara að sofa svo ég verði úthvíld fyrir hlaupið á morgun.

Kærar þakkir þið sem hafið sent inn áheit, ég mun ekki klikka á morgun - og ef þú vilt heita á mig er það ennþá hægt og verður hægt til miðnættis á sunnudag!

SJÁUMST HRESS Í HLAUPINU Á MORGUN! BOOJAH!


| anna | 22:49 | permalink | comments (0) |
Rétt næ að skella þessu inn..
Laugardagur, 18. ágúst 2007

..áður en ég fer út að borða.

1:16:42 Anna Helgadóttir

Fór held ég fimm sinnum út að hlaupa að æfa mig og fór lengst sjö km en í fimmta skiptið sem ég ætlaði að æfa mig náði ég ekki einum km áður en ég tognaði. Gat ekkert æft mig eftir það vegna þess að mér var ráðlagt að hlaupa ekki og þegar ég var orðin góð var mér ráðlagt að hlaupa ekki því það voru bara tveir dagar í hlaupið.

Það segir mér að næst muni ég fara þetta á undir klukkutíma.


| anna | 18:59 | permalink | comments (2) |
Why bother?
Sunnudagur, 19. ágúst 2007

Ég var búin að vera í röð í klukkutíma á Vegamótum þegar ég áttaði mig á tveimur hlutum.

a) þetta var fullkomið waste of time
b) það sem var inni á skemmtistaðnum var eitthvað sem ég hafði ekki áhuga á

Fór út að borða með maraþonhópnum og afrekshlaupurunum sem komu til landsins fyrir hlaupið, hrikalega var gott að borða svona góðan mat. Á eftir fór ég í partý með vinnufélaga þar sem við ræddum hin ýmsu mál - og pappakassa. Þegar partíið var búið hefði ég átt að fara heim, en.. ég fór í bæinn. Beið í klukkutíma í biðröð til að komast inná Vegamót, var innan við mínútu þar inni þar sem liður b í upptalningunni hér að ofan reyndist réttur. Ég og samstarfskona mín fórum á B5 þar sem við drukkum einn mohito og dönsuðum áður en við fórum og náðum okkur í leigubíl.

Nú skulum við átta okkur á nokkrum staðreyndunum.

Í dag hljóp ég 10 km í fyrsta skipti á ævinni. Var komin heim klukkan tvö. Fór í bað og lagðist uppí rúm í tíu mínútur. Klæddi mig. Tók á móti konunni sem þrífur íbúðina mína. Fór í kringluna og þaðan í smáralind, fataði mig upp og keypti meðal annars leðurstígvél sem ég féll fyrir on sight. Fór heim og klæddi mig í það sem ég keypti mér og leit hrikalega vel út. Fór út að borða en þar var fyrst móttaka og ég stóð í lappirnar (á nýju stígvélunum) í hálftíma. Borðaði. Fór í partý. Stóð fyrir utan húsið (í nýju stígvélunum) að bíða eftir leigubíl í hálftíma, beið í röð á Vegamótum í klukkutíma (í nýju stígvélunum), fór ég B5 og dansaði (í nýju stígvélunum), labbaði (í nýju stígvélunum) í leigubílaröðina. Fór heim.

Þetta eru ekkert smá góð stígvél sem ég keypti mér, finn ekki fyrir að ég hafi verið í nýjum skóm í allt kvöld. Ætti eiginlega að kaupa mér annað par á morgun þar sem mig grunar að ég komi til með að nota þau mikið í vinnunni.

Þó maraþonið sé búið er vinnan í kringum það ekki alveg búin en mér líður samt eins og ákveðnum áfanga sé lokið. Á von á símtali í fyrramálið og þarf að vinna eitthvað aðeins á morgun - og - í vinnunni bíða öll hin verkefnin sem fóru á hold fyrir maraþonið, svo ég hef nóg að gera.

Þegar ég var að fylgjast með þessum pöddufullu pappakössum niðrí bæ áttaði ég mig á því ég nenni þessu ekki. Djöfull nenni ég þessi ekki. Á B5 sagði samstarfskona mín mér sögu af vinkonu sinni sem er nýskilin og á fullu að deita og ég nenni því ekki. Ég er orðin svo þreytt á að sama hversu efnilegur maður sýnir mér áhuga.. hef ég engan. Þoli það ekki lengur.

Það er líka ógeðslega þreytt að fara í bæinn og vera álitin real doll með púls af pappakössum sem þurfa að losa fyrir svefninn. Ég veit að þetta eru engin ný sannindi og stundum er ágætt að fá áminningu svo maður sé með þetta alveg á hreinu.. það er ekkert eigulegt á djamminu.

Reikna fastlega með því að ég verði rúmliggjandi á morgun en eftir nokkra daga byrjar skólinn hjá börnunum og lífið fer í ákveðinn farveg. Þetta verður skrítinn vetur þar sem frumburðurinn er að flytja að heimann tímabundið svo ég og einkasonurinn verðum bara tvö hérna.

Í vetur hef ég hinsvegar ákveðið að fara í Laugar þrisvar í viku (hvernig sem ég fer að því að koma því inní tímaplanið) og í hlaupahóp 1x í viku. Líklega er spandex ávanabindandi. Ég hef allavega meiri áhuga á að klæða mig í spandex 1x í viku og hlaupa en að standa í biðröð við skemmtistað niðrí bæ.

Að hlaupa er einfaldlega að gera meira fyrir mig en skemmtistaðir - og auðvitað spandexið..

Eins dauð og ég var eftir hlaupið í morgun finnst mér ótrúlegt að ég finn ekki fyrir líkamlegri þreytu. Ég er hinsvegar gjörsamlega búin á því úr syfju.

Over and out.


| anna | 3:30 | permalink | comments (8) |
Fyrstu orðin komin!
Sunnudagur, 19. ágúst 2007

Sex orðaáheit eru komin og ég er búin að fá fyrstu þrjú orðin fyrir fyrstu bloggfærsluna, sem á greinilega að vera drama því orðin eru..

ást
svik
örlög

Þessi orð koma frá lesanda sem vill halda algjörri nafnleynd.

Er að bíða eftir auglýsingastofunni og velta fyrir mér á meðan hvaða vinkil ég á að taka á þessa færslu. Er þetta um ást mína á spandex? Lifur? Stevie Wonder? Jesú!

Kemur í ljós.

Ég er svolítið hölt. Ökklinn á vinstri er í einhverju messi en þar fyrir utan, ég er ekki að grínast, finn ég ekki fyrir að ég hafi verið að gera nokkurn skapaðan hlut í gær. Er ekki einu sinni með harðsperrur.

Ljóta ruglið maður.

Ég viðurkenni að ég komst svolítið við í hlaupinu að sjá allt þetta fólk sem var að hlaupa til að styrkja góðgðerðarfélag. Leigubílstjórinn sem keyrði mig heim hljóp 10 km með fatlaðan vin sinn í hjólastól fyrir sitt góðgerðarfélag. Ég tek aftur þátt á næsta ári. Ekki spurning. Og það er búið að framlengja áheitunum, það verður hægt að heita á fólk til miðnættis á mánudagskvöldið.


| anna | 12:23 | permalink | comments (0) |
Þreytt
Sunnudagur, 19. ágúst 2007

Þegar ég var búin að uppfæra lagðist ég uppí rúm. Sofnaði.

Þegar ég vaknaði aftur var ég ekki með verk í ökklanum lengur, en ég er ennþá þreytt.

Maðurinn sem hefur verið til staðar fyrir mig síðustu vikur er að flytja af landi brott um mánaðarmótin. Hann er ekki nafn sem bætist við listann af karlmönnum sem ég hef sofið hjá. Hann er nafn sem bætist við annan lista. Karlmenn sem þótti vænt um mig og reyndu aldrei að sofa hjá mér. Hann er að fara að gifta sig.

Ég á eftir að sakna hans mjög mikið.

Ég á eftir að sakna Jóhönnu mjög mikið.

Karlmenn sem kvarta yfir því að ég sé ekki nógu hjálparlaus, kunna ekki að veita mér þá hjálp sem ég þarf.

Eða vilja það ekki.


| anna | 22:42 | permalink | comments (0) |
Sönnunargagn A
Mánudagur, 20. ágúst 2007

hlaupumsaman.png

Ég og Snorri hlupum saman í hlaupinu. Rétt áður en við beygðum inní Lækjargötu vildi ég aðeins labba en hann greip í höndina á mér og dró mig áfram "þú getur andað seinna" og ég hélt að ég væri að deyja alla leiðina inní Lækjargötu í markið og heyrði Snorra segja "hægðu á þér, hægðu á þér, hægðu á þér, hægðu á þér"

Ég á til að fara of hratt. Hann veit að ég sprengi mig þannig.

Takk Snorri, þú ert besti hlaupafélagi sem ég hef haft!
- og sá eini, en það er aukaatriði.

H says: þú ert dáldið svona
H says: desperatehousewifesleg
H says: með þessi sólgleraugu
Anna says: hvað meinarðu?
H says: hum .. get ekki alveg útskýrt það
H says: kannski frekar eins og Ms Solice
H says: nema hún hefði verið í bleiku


| anna | 13:35 | permalink | comments (7) |
Ég er ekki að grínast með veðrið á laugardaginn
Mánudagur, 20. ágúst 2007

klikkadvedur.png

Þvílík og önnur eins blíða.


| anna | 14:57 | permalink | comments (3) |
Nýtt stöff
Mánudagur, 20. ágúst 2007

Það er allt að verða ónýtt á þessu allsnægtarheimili og ekki gengur að eiga ekki sumt dót svo maður fer og kaupir nýtt.

Klárt merki um öldrun er þegar maður nennir ekki að setja sig inní græjur sem maður kaupir - eða hefur ekki tíma til þess.

Þetta á við um..

DVD spilara
Þráðlaus heyrnatól
22" skjái
Brauðristar

Ég vil að þessir hlutir virki þegar ég er búin að stinga þeim í samband. Það er ekki alltaf tilfellið eins og þegar maður kaupir sér DVD spilara. Maður þarf að byrja á að finna crack á vefnum til að opna hann fyrir öllum kerfum. Ég verð að gera þetta, enda kaupi ég megnið af mínu dvd efni á amazon.com. Þeir sem ekki vita það þá þarf ekki að kaupa sérstaka spilara sem eru opnir. Það er hægt að crack-a alla DVD spilara svo þeir spili öll kerfi.

Sem betur fer eru einstaklingar á heimilinu sem eru ennþá nógu ungir til að græja svona mál.

Ef ég ætti hinsvegar eiginmann sem myndi svoop in og redda málunum.. christ alive hvað hann myndi vera afslappaður þegar hann fer að sofa það kvöld.


| anna | 18:40 | permalink | comments (3) |
Dead serious
Þriðjudagur, 21. ágúst 2007

Sumir héldu að ég væri að grínast með að ég ætlaði að giftast Glitni.

Nú er ég komin með tvo skjái. 19" skjáinn og nýjan 22" breiðtjaldsskjá.
Setupið hérna er að verða gott - fyrir það sem ég kem til með að gera í vetur.

Ég vinn mikið. Kannski er það ástæðan fyrir því að ég finn ekkert gagnvart neinum af hinu kyninu, ég veit að það er engin grundvöllur fyrir því. Ég veit að ef ég myndi eignast kærasta þá færi stór hluti af orkunni minni í hann. Sem væri kannski ekki vandamál ef karlmenn væru ekki oft verri en ungabörn þegar kemur að athygli. Þegar þeir eru uppteknir má ekkert trufla en svo, allt í einu, þegar þeir þurfa athygli þá svífast þeir einskis. Bombarda mann með sms-um, hringja, liggja á bjöllunni en bjallan mín er sem betur fer biluð svo það er ekki option.

Þegar karlmaður þarf athygli er hann vís með að gera hvað sem er til að fá hana, alveg sama þó þú þurfir að gera eitthvað annað, breytir engu fyrir hann. Það eru örugglega til svona konur líka. Oft er það þannig, að þegar karlmenn hafa fengið athyglina sína, þá fara þeir bara að gera eitthvað annað. Dettur ekki í hug að gera eitthvað í staðinn. Ha? Þú? Þarf þú athygli? Áttu ekki vinkonur? Ég er upptekinn, ég þarf að.. horfa á sjónvarpið/skafa undan nöglunum/whatever.

Ég elska starfið mitt. Það er satt að segja meira rewarding en nokkur karlmaður hefur reynst vera in the long run og þangað til ég finn mann sem gefur mér meira en starfið.. verð ég gift Glitni.

Við grínumst ekki með svona mál hér á anna.is - ég ætti eiginlega að setja upp hring.

Ég er að vera mjög ósanngjörn í þessari færslu því ég veit að það eru ekkert allir karlmenn svona miklir pappakassar. Ég veit hinsvegar líka að ekkert samband myndi ganga upp á meðan ég vinn eins og ég geri og ég er ekki tilbúin að hætta því. Mér finnst bara of gaman í vinnunni.

Vinkonur mínar segja að rétti maðurinn komi til með að breyta því.

Hann er hinsvegar fastur í traffík einhverstaðar og já, ÞAÐ ER ÞESSI TÍMI MÁNAÐARINS!


| anna | 1:01 | permalink | comments (11) |
Dream come true
Þriðjudagur, 21. ágúst 2007

Tveir skjáir - loksins!


| anna | 18:22 | permalink | comments (7) |
250 orð fyrir Organistann
Þriðjudagur, 21. ágúst 2007

Ef ég man rétt var ég ennþá að blúsa yfir bókaranum þegar þú varst hér síðast. Ég hætti því. Fór á bólulyf sem var martröð í helvíti, leit út eins og fricking monster í u.þ.b. hálft ár og fór helst ekki útúr húsi. Skáldaði upp kærasta á blogginu sem er valdasjúkur geðsjúklingur og sláandi líkur Jude Law. Hélt uppá 35 ára afmælið mitt með grímuballi þar sem þessi uppdiktaði maður mætti á svæðið á Ford GT sem hann gaf mér. Þetta er löng saga, en lang skemmtilegasta afmæli sem ég hef haldið.

Stuttu síðar fékk ég símtal out of the blue í vinnuna frá hugbúnaðardeild Glitnis og ég var spurð að því hvort ég væri að hugsa um að skipta um starfsvettvang. Hélt að einhver væri að djóka í mér. Markaðsdeildin stal mér á endanum af hugbúnaðardeildinni og ég byrjaði að vinna hjá Glitni um áramótin. Er í markaðsdeildinni en með annan fótinn í hugbúnaðardeildinni. Ég kann mjög vel við mig hjá Glitni.

Heyrðu já og ég hitti Jude Law í Reykjavík! Djöfull var það skrítið.

Ég verð stundum einmana en vil vera ein á meðan ég finn ekki það sem ég þarf. Er hætt að leita að því sem ég vil, ég þarf það ekki.

Basically gengur mér vel hvernig sem á það er litið. Það er stundum erfitt að go it alone og láta allt ganga upp, finna tíma fyrir allt sem þarf að gera - en það gengur.

Næst þegar þú ert á hljómleikaferðalagi, hef ég eitt request.

Play misty for me.


| anna | 23:55 | permalink | comments (6) |
I have died
Fimmtudagur, 23. ágúst 2007

and gone to heaven

skjairnir.png

19" túbuskjár fæst gefins gegn því að vera sóttur..


| anna | 12:14 | permalink | comments (12) |
Mér finnst krípí
Föstudagur, 24. ágúst 2007

hvað mér búy'st oft afð afrar íþ threesome


| anna | 2:23 | permalink | comments (0) |
Magnúst Kjartasndssorn
Föstudagur, 24. ágúst 2007

ÉG sá Matgnús Kjartansson í kvöld og hnann tók uppáhalds labið tmitt.

þvtílíkur sntillingur.

vekið mig þegar steravie wonder kemur til langdrinsds.


| anna | 2:25 | permalink | comments (0) |
Finale
Föstudagur, 24. ágúst 2007

Í gær sat ég með þremur öðrum starfsmönnum Glitnis útí sal í Háskólabíói að horfa á áheitaafhendingu Reykjavíkurmaraþons Glitnis.

Það eina sem klikkaði í skipulagi maraþonsins var að mæta á afhendinguna með eitthvað til að þurrka tárin þegar rúmar fjörutíu milljónir voru afhentar til góðgerðarmála, ég er ekki að grínast. Við fjórar sem sátum saman vorum hálf snöktandi á köflum. Þarna sást heldur betur í mína hjálparlausu hlið en auðvitað var engin karlmaður að fylgjast með. Classic.

Eftir afhendinguna var uppskeruhátíð maraþonhópsins.

Ég hef nú bara aldrei farið í svona skemmtilegt starfsmannapartý. Varð líka svona svakalega falleg, eins og síðustu tvær bloggfærslur bera vitni um, en var nú samt sem áður ekki fulli kallinn í partíinu.

Ég þefaði hinsvegar af eyranu á fulla kallinum.
Hann hafði nú bara gott af því.

hehehe


| anna | 16:34 | permalink | comments (0) |
Málið er..
Sunnudagur, 26. ágúst 2007

Ég gæti alveg lifað án þess að hafa tvo 22" skjái.

Ég bara þarf þess ekki.

Þessi helgi var góð. Á föstudagskvöldið kom vinur minn í heimsókn sem er að flytja af landi brott og við spjölluðum fram á morgun. Á laugardagskvöldið fór ég í tvöfalt fimmtugsafmæli þar sem ég skemmti mér konunglega. Ég var samt svo þreytt að ég fór snemma heim, á bíl, og svaf til klukkan þrjú í dag - eins og engill. Djöfull hafði ég gott af því að sofa svona.

Er loksins búin að setja upp mixmeister forritið fyrir tónlistina mína. Búin að gefast endanlega upp á iTunes.

Þetta er allt að falla in place hérna.


| anna | 19:38 | permalink | comments (2) |
Strangely.. honored?
Mánudagur, 27. ágúst 2007

Hann bað mig að leggjast hjá sér í sófanum og ég gerði það. Tók utanum mig og strauk á mér hárið. Ef ég væri köttur hefði ég malað. Frænkur mínar gerðu þetta við mig þegar ég var lítil og ég var búin að gleyma hvað mér finnst rosalega gott að láta strjúka mér um höfuðið/hárið.

Við vorum búin að liggja þarna í smá stund þegar hann sagði
ég þarf að láta búa til dúkku líkan af þér í fullri stærð.

Ég settist upp - come again?

Já, það er ekkert smá gott að halda utanum þig. Þú er í fullkominni stærð.

Ég hef aldrei hitt mann áður sem vill eiga mig í dúkkulíki og veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að taka því. Maðurinn sem um ræðir er nefnilega ekki Denny Crane.

Mér finnst stundum óborganlega fyndið hvað líf mitt getur verið öfgafullt. Ég varð ástfangin af manni sem fannst hreinlega óþægilegt að hafa mig í fanginu og vildi ekki hafa mig í rúminu sínu nema rétt á meðan hann var graður.

Næst fann ég gæludýr sem leyfði mér að hringa mig utanum sig og sofa í fanginu á sér - en hann var meira að gera það fyrir mig, því hann getur ekki sofið nema hann sé einn í rúminu svo hann var alltaf algjörlega ósofin daginn eftir. Soldið sætur.

Svo kynnist ég manni sem finnst svo gott að halda utanum mig.. að hann vill eiga dúkku sem er nákvæm eftirlíking af mér til að geta haft mig í fanginu þegar honum hentar. Af því hann veit að ég verð ekki til staðar.

Ég verð ennþá soldið skrítin á svipinn þegar ég hugsa um þetta - en finnst gott að vita að það eru til menn sem finnst gott að halda utanum mig.

Það er nefnilega ekkert varið í að eiga mann sem vill ekki hafa þig hjá sér.


| anna | 12:11 | permalink | comments (4) |
Armageddon
Mánudagur, 27. ágúst 2007

Þegar ég var að setja inn svörin við Armageddon spurningunni í movie hall of fame klúðraði ég og eftirfarandi nöfn voru ekki birt strax.

Þetta hefur verið leiðrétt og ykkur hefur verið bætt við í movie hall of fame!

• Rato:
"i don't want to close my eyes, i don't want to fall asleep
cause i miss you baby,and i don't want to miss a thing, - ostastund í Armageddon"

• Zelig:
"Armageddon og lagið "Leaving on a jet plain" spilað undir."

• Sunna:
"Armageddon"

• Maggi G:
"Þetta mun vera Armageddon með Brús Wyllis í aðalhlutverki.
Þarna sést Ben Afflekk meðhöndla Livv Tæler."

• Farfuglinn:
"Liv Tyler og einhver lúði í Armageddon"

• Spörri:
"Þetta hlýtur að vera Armageddon"
---

Þetta eru alveg hárrétt svör down to the last detail. Ben Affleck er lúði.


| anna | 13:41 | permalink | comments (0) |
Ég er lítil, blá.. kúla?
Mánudagur, 27. ágúst 2007

Samtal sem átti sér stað á milli mín og frumburðarins um mitt síðasta ár.

Anna: Karlmenn virðast oft hræddir við mig, af hverju eru þeir það? Er ég svona hræðileg?
Frumburður: Nei, þú ert bara sérstök, þeir finna það á sér og vita að þeir geta ekki höndlað það. Hafa ekki nógu mikinn þrótt í það.
Anna: ..hvað meinarðu þegar þú segir þrótt?
Frumburður: Úthald, þolinmæði
Anna: Þarf eitthvað sérstakt úthald og þolinmæði til að umgangast mig?
Frumburður: Neinei. Þeim sýnist þú vera svo flókin og halda að það sé svo mikið verk að læra inná þig að þeim fallast hendur - alveg eins og þegar ég var að læra utanað allar samtengingarnar og allar forsetningar og sá að það var langur listi af smáu letri og ég nennti því ekki. Þú ert bara öðruvísi mamma, og það er framandi og skerí og þeir höndla það ekki og verða hræddir.
Anna: Merkilegt.
Frumburður: Þegar þessir karlmenn sem þú segir að séu hræddir við þig, hvenær eru þeir að umgangast þig?
Anna: Á netinu - en það er bara vegna þess að ég fer aldrei út, ég get hrædd karlmenn alveg hægri vinstri in person líka
Frumburður: og hvernig vita þeir hvernig þú ert ef þú ert að tala við þá á síðunni þinni?
Anna: nú vegna þess að ég skrifa á síðuna
Frumburður: og skrifar þú alveg eins og þú myndir gera face to face
Anna: stundum
Frumburður: akkúrat, þeir þora ekki að treysta að þú sért þannig og finnst þú grunsamleg
Anna: Ég er sérstök, erfið og.. grunsamleg.

Anna: Finnst þér erfitt að umgangast mig?
Frumburður: Nei, en ég þekki þig
Anna: En heldurðu að það sé erfiðara fyrir karlmann að umgangast mig en aðrar konur?
Frumburður: Já.
Anna: Af hverju heldurðu það?!
Frumburður: Af því að allt mitt líf hef ég borið mömmu mína saman við aðrar konur og mömmur og fundist mamma mín vera öðruvísi en þær.
Anna: Að hvaða leyti?
Frumburður: Þú ert flókin
Anna: Hvað meinarðu? Hvernig þá?
Frumburður: Þegar ég lít á aðrar mömmur þá líta þær út fyrir að vera einfaldar og nice

Anna: Ertu að segja að ég sé flókin og vond?
Frumburður: Nei, en þú lítur út fyrir að vera öðruvísi
Anna: Öðruvísi?
Frumburður: Já og framandi
Anna: Framandi? hvað er svona framandi við mig?

Frumburður: Þú ert blá kúla meðal hundrað rauðra
Anna: Ég hef ekki grun um hvað þú ert að tala um - EN ég hef ákveðið að taka því sem MIKLU hrósi. Og ég er mjög ánægð. Var þetta ekki annars hrós?
Frumburður: Nei, þetta var útskýring. Þú veist að ef þú horfir á hundrað rauðar kúlur og það er ein blá á meðal þeirra, þá sker hún sig úr.

Anna: Þannig að ég þarf að finna hina bláu kúluna?
Frumburður: Já, þú fúnkerar samt alveg með rauðum en þær eru hræddar við þig því þær eru hræddar við það sem er öðruvísi. Ég held að þú þurfir einhvern sem er fjólublár.



| anna | 14:26 | permalink | comments (5) |
Suspended in time
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007

Hann: manstu þegar ég var að reyna að komast að því "hver þú værir" ?
Anna: já
Hann: ... og svo fann ég eitthvað svar
Anna: sem þú gast samt ekki sagt mér
Hann: núna finnst mér ég vera búinn að tapa því aftur ...
Hann: ... mér finnst ég vita minna um þig núna en þá
Anna: það er vegna þess að ég er svo
Anna: FLÓKIN
Anna: hahahaha
Hann: hehehe
Anna: told'yah

Hann: ... ég var að spá í hvað ég ætti að gefa þér í afmælisgjöf, og gat ekki fundið nema einn hlut
Hann: sem þig myndi langa í
Anna: BENTLEY
Anna: VÚHÚ
Hann: hehe, nei
Anna: ohh demit
Anna: hehehehe
Hann: KARLMANN!!!
Anna: ég þarf ekkert þannig rugl
Anna: I'm IMMUNE

Soldið fyndið að hann skuli vera búinn að tapa því hver ég er, þegar hann er sá sem hefur haldið uppi spegli fyrir framan mig undanfarnar vikur og sýnt mér svo margt um hver ég er - en vissi ekki að ég væri.
---

Hann: ætla að spyrja þig spurningar sem ég veit að þú átt eftir að hata að heyra ... því ég hata hana líka
Anna: nú?
Hann: ... hvað viltu í afmælisgjöf?
Anna: BENTLEY
Anna: neinei
Anna: ég vil frið á jörð
Anna: bólusetningu gegn krabbameini
Anna: og bíddu
Anna: mig langar í eitthvað eitt í viðbót
Hann: ... lol
Hann: ég ætla þá að gefa þér þetta eina, og það verður þá bara að vera nógu gott fyrir þig
Anna: mig langar í brúðarmynd af þér og *censored* þar sem þú ert ekki eins og hræddur pappakassi á svipinn
Hann: hahahaha
Anna: smile
Hann: considder it done
Hann: og..
Hann: ... til hamingju með afmælið!
Anna: hey já!
Anna: 00:01 ég er orðin 36!
Anna: I rule!


| anna | 0:07 | permalink | comments (11) |
Óborganlegur
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007

doggydog.png

Ég er í kasti hérna, takk Hugz - PADDA!

hehehehe


| anna | 12:58 | permalink | comments (0) |
36 ára
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007

Þessi dagur er búinn að vera frábær. Í vinnunni eru allir búnir að kyssa mig til hamingju, sms-um, msn-um og tölvupóstum rignir yfir mig og þegar ég kom heim til mín í dag lá pakki ofaná póstkössunum bundinn í rós og bláa og fjólubláa blöðru.

Er þetta allt fiction?

Mér líður stundum eins og ég lifi í skáldsögu, en það er ekki þannig.

Á kortinu sem fylgdi með pakkanum stendur: "Til hamingju með afmælið Anna mín". Inní honum fann ég nokkur rósablöð og eitt A4 blað sem hafði verið brotið saman. Á blaðinu var ljóð..

Til Önnu

lítið barn í hörðum heimi
þú stóðst sjálf á eigin fótum

viðkvæm sál mótuð af hörku
hert hjarta, týnd sál

öldur lífsins skoluðu þér til
en þú hélst haus og komst á þurrt

ein í friði, með ómældum dugnaði
þú finnur þig aftur, viðkvæma

fögur kona
fagurt líf

á sólríkum degi
þú situr í kyrrðinni
og finnur aftur
lítið barn

----

Hann var með mér á þessum sólríka degi.

Hann kemst hinsvegar ekki í kvöld. Ég er að fara út að borða með nokkrum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa með einum eða öðrum hætti haft bein áhrif á hvaða stefnu líf mitt hefur tekið.

Það mun reyndar vanta fleiri en hann. Hann er nefnilega ekki sá eini sem hefur haldið uppi spegli fyrir mig undanfarið eða haft bein áhrif á hvaða stefnu líf mitt hefur tekið.

Þegar þessum degi er lokið tekur við mikilvægt verkefni í vinnunni og ég verð sjálfsagt lítið hér í nokkra daga.

Ég er hinsvegar ekki farin langt.

Takk fyrir allar kveðjurnar og fyrir að gera afmælið mitt svona skemmtilegt!


| anna | 17:35 | permalink | comments (11) |
Hrikalega góður dagur
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007


| anna | 0:56 | permalink | comments (6) |

ravings í ágúst 2007
monthly archive

links
blogs
links - web