www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Blús í G
Sunnudagur, 29. júlí 2007

Á laugardagsnóttina var ég í partíi í heimahúsi. Á staðnum var einn karlmaður að spila á bassa, annar á gítar, enn einn á trommur en laaaangflottastur var Organistinn sem var á hljómborði.

Þarf eiginlega að gera þessu betri skil seinna. Klukkan var fimm um morguninn þegar ég kvaddi manninn sem reykti half and half fyrir utan húsið og svo gekk ég brosandi heim á leið - ef tjald getur kallast heim.

Stemmarinn var blús og rokk. Eitt af lögunum sem Organistabandið tók í gærkvöldi var Blús í G eftir Magnús Kjartansson. Einn gesturinn í partíinu tók míkrafóninn og söng þetta bara helvíti vel!

Blús í G

Mánudagsmorgunn á fætur ég fer,
höfuðið á mér þunnt eins og gler.
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Hvað var ég að gera, hvar fékk ég að vera
í ókunnri borg svo fjarri þér.
Ég þrái að sjá þig – fá þig
fíla eina nótt hjá þér.

Tungan við góminn er eins og gróin,
gerbragð í munni af öldrykkju er.
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Ég horfi út um dyrnar, geng út um gluggann,
geri allt vitlaust hvar sem ég fer.
Ég þrái að sjá þig – fá þig
fíla eina nótt hjá þér.

Í hillingu heyri ég þig syngjandi sálma.
Svona ertu heilög í augum á mér
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Lagið í flutningi Mannakorna

Þeir tóku að sjálfsögðu lagið Hey Jude - veit nú bara ekki hver bað um það.. hehehe
NA-NA-NA-NANANANA!

Takk fyrir mig, þetta var æðislegt kvöld!


| anna | 22:27 |
comments

Sæl Anna, ég hef verið dyggur lesandi þinn í nokkurn tíma núna en held að ég sé bara að kommenta í fyrsta eða annað skiptið þrátt fyrir það... embarassed

En ég mátti til með að spyrja, þessi maður sem þú varst að tala við og gekk "heim" í tjaldið sitt; gæti nokkuð verið að hann sé breskur? (Ég á einmitt vin sem þessi litla lýsing passar svo vel við! winky )

Nr. 1 | posted by: Jóhanna | 29.07.2007 | 23:33:33 | [+] |

Úff fyrirgefðu, ég vona að þér sé sama að ég spyrji! embarassed

Nr. 2 | posted by: Jóhanna | 29.07.2007 | 23:34:42 | [+] |

Tony hefur ekki tekið eitt lag með bandinu?

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 29.07.2007 | 23:54:18 | [+] |

Hæ Jóhanna, gaman að sjá komment frá þér!

Já auðvitað máttu spyrja. Hann er ekki breskur, hann er íslenskur þessi - en alvöru organisti samt! wink

Alan. Því miður. Ég hefði viljað hafa allt gengið á staðnum.

Nr. 4 | posted by: anna | 30.07.2007 | 1:16:30 | [+] |

Þetta var glæsilegt gigg engu að síður!

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 30.07.2007 | 1:31:58 | [+] |

Ó já Alan! Þetta var ekkert smá flott hjá þeim! smile

Nr. 6 | posted by: anna | 30.07.2007 | 1:43:53 | [+] |

Ó Anna, þú ert nú meiri dúllan

Nr. 7 | posted by: Mokki | 30.07.2007 | 7:25:54 | [+] |

Úff, þú hefur verið á Grundarfirði? Vonandi varst þú ekki skvísan sem ældi í blómabeðið fyrir utan gluggann minn um fjögurleytið.

Nr. 8 | posted by: Æsa | 30.07.2007 | 18:30:33 | [+] |

Leiðinlegt þetta með blómin Æsa, en eins og kemur fram í færslunni var ég í partíi til klukkan fimm um nóttina og þó ég sé klárlega fjölhæf, hef ég ekki masterað að vera á tveimur stöðum í einu.

Ennþá. cool

Ég legg það líka ekki í vana minn að æla á almannafæri og mér þykir vænt um blóm. Það er líka svo auðvelt að forðast þesslags aðstæður, maður drekkur bara hóflega.

Ég reikna með að þú búir á Grundarfirði fyrst þú átt blómabeð og glugga þar. Í hvaða hverfi ert þú? Ég tilheyrði gula.

Nr. 9 | posted by: anna | 30.07.2007 | 18:55:13 | [+] |

Haha nú jæja, þetta hefur þá ekki verið sá sami! wink Ég er samt alveg viss um að hann hafi verið frábær organisti þrátt fyrir það! wink

Nr. 10 | posted by: Jóhanna | 30.07.2007 | 20:06:41 | [+] |

Ég veit að smámunasemin er alveg að drepa mig, en að sjá þig og fá þig eru í öfugri röð í næst-neðsta versinu.

Þó svö að röðin skipti örugglega ekki miklu máli í raunveruleikanum smile

Nr. 11 | posted by: Þór | 30.07.2007 | 21:04:45 | [+] |

Hm. Hvaða gítaleikari lét Organista outshina sig?

Nr. 12 | posted by: DonPedro | 30.07.2007 | 21:55:09 | [+] |

Organistinn var með pípu. Menn keppa ekki svo glatt við svoleiðis.

Nr. 13 | posted by: anna | 30.07.2007 | 22:33:40 | [+] |

Ég var helgargestur á Grundó eins og þú, var einmitt í originalnum af þínu partýi á föstudagskvöldinu, og þekki því lýsingarnar. Sami organisti, sömu slagarar, engin æla. Svo "svaf" ég í herberginu við hliðina á ykkur á aðfaranótt sunnudags. Vel gaulað hjá ykkur. Ég var of hás til að endurtaka leikinn.

Konan sem heimsótti blómabeðið fyrir utan gluggann brá sér aftur í partýið, svo tímasetningarnar gætu vel passað - en ég kýs að trúa þér!

Nr. 14 | posted by: Æsa | 31.07.2007 | 16:54:54 | [+] |

Þér er óhætt að trúa mér og ég kalla þig góða að hafa náð að sofa í gegnum þetta, það verð ég að segja!

Ætlarðu aftur á næsta ári? Endilega hóaðu í mig ef það verður annað svona skemmtilegt partí, ég verð á svæðinu! wink

Nr. 15 | posted by: anna | 31.07.2007 | 18:07:37 | [+] |

ps. netfangið sem þú gefur upp virkar ekki Æsa, langaði að sýna þér soldið..

Nr. 16 | posted by: anna | 31.07.2007 | 18:12:08 | [+] |

Gjössovel, hér er það rétta. Já, þetta var mikið stuð og gestrisni Grundfirðinga með eindæmum. Bláókunnugur maður, nágranni konunnar sem við gistum hjá vildi endilega bjóða okkur hjónum í lambalæri og þegar við afþökkuðum með eymdarsvip og sögðumst vera að sjóða fiskisúpu kom hann yfir með kassa - KASSA - af risa humarhölum til að skella í súpuna. Meira svona í Reykjavík. Ekki spurning að maður fer aftur á næsta ári, Þjóðhátíð hvað?

Nr. 17 | posted by: Æsa | 31.07.2007 | 18:21:45 | [+] |

Fólkið sem ég er hjá þegar ég fer þarna, þau eru svo gestrisin að maður þekkir ekki annað eins. Alveg yndislegt fólk. Ég fór náttúrlega eins og lúði til fara í hlaupabuxunum og um klukkan eitt þessa nótt sat ég að sötra kók í stofunni hjá þeim þegar húsbóndinn á heimilinu sagði: "Jæææja Anna, nú færð þú þér bjór, ferð úr þessum hryllilegu buxum sem þú ert í og kemur með okkur í partý!"

Ég þorði ekki öðru en að hlýða og sá sko ekki eftir því. Setti á mig gloss og alles! hehehe

Ég vona reyndar að þetta verði ekki jafn stórt og þjóðhátíð. Finnst þetta svo gott svona. Ekkert of mikið at - enda fer ég með krakkana mína með mér - endilega ef þú ert með hljómsveit á svæðinu eða partí með skemmtilegu fólki, hóaðu í mig!

Mér fannst svo gaman í þessu partíi að þegar þau fóru í annað partí vildi ég ekki fara með þeim og varð eftir. Þá glotti maðurinn sem hatar hlaupabuxurnar mínar því hann hélt að nú hefði ég séð eitthvað karlkyns sem mér litist á. Ég hafði reyndar gert það - en gerði ekkert í því.

Sem voru líklega mistök þar sem mér var sagt að Guð búi á Grundarfirði og við vitum öll að þar sem Guð heldur sig er Jesú aldrei langt undan..

Nr. 18 | posted by: anna | 31.07.2007 | 19:47:30 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web