www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The Rose
Föstudagur, 20. júlí 2007

Some say love it is a river
that drowns the tender reed
Some say love it is a razor
that leaves your soul to bleed

Some say love it is a hunger
an endless aching need
I say love it is a flower
and you; it's only seed

It's the heart afraid of breaking
that never learns to dance
It's the dream afraid of waking
that never takes the chance
It's the one who won't be taken
who cannot seem to give
and the soul afraid of dying
that never learns to live

When the night has been too lonely
and the road has been too long
and you think that love is only
for the lucky and the strong

Just remember in the winter
far beneath the bitter snows
lies the seed
that with the sun's love
in the spring
becomes the rose
--

Ég vona það.

Þetta er búin að vera alveg mögnuð vika, ofboðslega skemmtileg og mikið að gera. Á morgun fer ég í brúðkaup hjá tveimur yndislegum manneskjum sem hafa ákveðið að eyða ævinni saman. Ég hlakka svo til.

Þetta er ungt par, þau sem eru að gifta sig á morgun. Töluvert mikið yngri en ég, og ég öfunda þau.

Það er alveg sama hvað ég spyr gæludýrið mitt um, það hefur upplifað það með annarri konu. Samt er það yngra en ég. Að hluta til finnst mér þetta svo dapurt hjá fólki á mínum aldri. Það er ekkert nýtt lengur og ekkert sem við komum til með að uppgötva saman. Þó við gæludýrið séum ekki par og komum ekki til með að verða það, kem ég aldrei til með að hitta mann sem getur gert neitt fyrir mig, sem einhver annar hefur ekki gert áður.

En - svo fattaði ég. Það er alveg hellingur sem ég hef aldrei upplifað með karlmanni. Þó ég hafi upplifað að vera kysst, á Þjóðarbókhlöðunni af öllum stöðum, þannig að hnén gáfu sig, þá vildi hann ekki taka það lengra. Og þó ég hafi upplifað brúðkaupsdag þar sem ég gaf loforð um að vera trú í gegnum súrt og sætt, stuttu seinna, gerðust atburðir sem urðu til þess að mig langaði ekki að standa við það lengur.

Ég hef aldrei upplifað að kikna í hnjáliðunum og fá að halda því. Ég hef ekki upplifað að einhver lofi mér að eyða með mér ævinni, og standi við það.

Ég er sek um að trúa að ástin sé bara fyrir þá heppnu og ég er líka sek um að þora ekki að taka sénsinn. En stundum verð ég líka einmana og þreytt á að standa ein og vera sterk endalaust.

Þá hugsa ég um hvað mig langar að hafa einhvern hjá mér. Einhvern sem getur og finnst gott að kyssa mig þannig að hnén gefa sig. Einhvern sem er ekki hræddur við að vera svo einlægur að halda í höndina á mér. Einhvern sem heldur fast utanum mig þannig ég heyri hjartsláttinn hans og finn hitann frá líkamanum hans. Einhvern sem veit hvað þarf til að fá mig til að brosa, og hvað hann þarf að segja ef ég er þreytt og uppgefin. Einhvern sem vill vera hjá.. mér.

Ég held að fólk sem er eitt, tapi með aldrinum hæfileikanum til að finna til kærleika. Alveg eins og börn tapa sakleysi sínu þegar þau kynnast hvað heimurinn getur verið ljótur. Ég öfunda fólk sem þorir að trúa og tekur sénsinn. En það er ekki ég. Ennþá.

Og þessi tilfinning líður hjá.

Having said that, kemur kannski á óvart.. að á morgun fer ég í brúðkaup hjá fólki sem ég trúi í alvöru að komi alltaf til með að vera saman.

Skrítið.


| anna | 21:10 |
comments

Ha, bíddu, er heimurinn ljótur?! Síðan hvenær??!?

Nr. 1 | posted by: Elías | 20.07.2007 | 22:51:55 | [+] |

Æ.. horfðu á fréttir einhvertíma.

Nr. 2 | posted by: anna | 21.07.2007 | 11:13:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web