Miðvikudagur, 11. júlí 2007
Í gærkvöldi leið mér eins og ég væri falleg. Samt var ég ekkert tilhöfð því hann kom þegar ég var ennþá í baði. Var með handklæði utanum mig þegar ég opnaði dyrnar og vatnið lak úr hárinu á mér.
"Jesss, ég var að vona að ég næði þér nákvæmlega svona" sagði hann og glotti.
Padda. Ég sagði honum að ég ætlaði í bað og hann kom hálftíma of snemma.
Hann kemur samt einhvernvegin þannig fram við mig að mér líður eins og ég sé falleg. Ekki af því ég er svo vel máluð eða greidd, enda var ég það ekki. Og það er ekki vegna þess að hann kom með vín og mat eða af því hann eldaði fyrir mig ljúffengan mat. Nei. Honum finnst ég vera falleg og.. svo miklu meira en það. Honum finnst ég frábær - og ég finn það. Dem hvað það er góð tilfinning.
Einhverra hluta vegna þekkir hann mig. Vel, og mér stendur ekki ógn af honum því ég veit að það er ekkert á milli okkar sem kemur til með að þróast lengra. Við erum bæði mjög meðvituð um það.
Það sveif hratt á mig af víninu og þegar Bobby Darin söng "Call me irresponsible" bað ég hann að dansa við mig. Ég átti ekki von á að hann segði já. Mér leið eins og ég hefði ferðast í tímavél aftur um tugi ára og það var góð tilfinning - eins og við værum í öðrum heimi en þessum. Í heimi þar sem menn hafa integrity og eru.. gentlemen. Galant.
Það hefur engin komið svona fram við mig áður en mér leið samt eins og ekkert væri eðlilegra. Honum fannst ekkert eðlilegra.
Ég sagði honum að vinkonur mínar segðu að ég sé eins og Mrs Solice og hann fór að hlæja.
Ja, það stemmir nú eiginlega ekki. Ég er ekki unglingur, ekki garðyrkjumaður og bý ekki hjá foreldrum mínum.
Sem er hálfgert stílbrot fyrir mig, sagði ég. Hann hló. Svo er ég ekki gift heldur.
Þú ert ekki eins og Mrs Solice, Anna. Þú ert meira eins og.. predator. Menn sjá ekki hvað þú ert hættuleg fyrr en of seint.
There's something out there waiting for us - and it ain't no man?
Já. Enda ertu kona.
Ég er ekki svona hættuleg.
Ég veit.
Demit.
Ég var með verk í bakinu og hann nuddaði á mér bakið þangað til verkurinn var að mestu horfinn, svo lagðist hann hjá mér og hélt utanum mig þangað til ég sofnaði.
Hann er basically.. já. Góður við mig.
Það er eiginlega nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér að það væri.
Bara betra.