Á Spáni er alveg rosalega mikið af flottu kvenfólki og það fór ekkert framhjá Bob Moran sem fannst gaman að horfa á stelpurnar. Ég horfði ekki á þær, en það sem ég horfði á fékk mig oft til að slefa. Maður orðin þurfandi og svona.
Eitt kvöldið fórum við út að borða og á meðan við vorum að borða eftirréttinn var Bob Moran að taka upp hreyfimynd af mér á símann sinn. Sem ég vissi ekki. Svo skemmtilega vildi til að á meðan ég var að gæða mér á eftirréttinum, sem var nú eiginlega meira eins og fullnæging borin fram með súkkulaðisósu, sá ég..
..ja hvað sá ég?
Bob gerði þetta móment ódauðlegt og ég reyndi að klippa þetta þannig að stemmingin, og það sem gerðist, kæmist sem best til skila.
Pump up the volume.
(Þetta er smá stórt og betra að leyfa því að hlaðast inn til að losna við hökt - nema þú hafir þess betri tengingu. Hljóðið er möst)
Annars var þessi helgi mjög.. áhugaverð. Geri því betur skil seinna..
| anna | 0:04 |
comments
ALLT þetta út af einhverri járndollu á hjálum, jédúddamía.
Nr. 1 | posted by: Maggi G |
9.07.2007 | 2:24:25 | [+] |
*hehehe* það var og. Annars langar mig sárt í útlönd, sól og ís eftir að hafa horft á þetta
Þetta er reyndar ekki nákvæmlega bíllinn sem ég sá (creative licence) en þetta http://www.youtube.com/watch?v=4E4odx_wKlI var eina myndin sem ég fann með myndefni sem mér fannst nógu töff til að nota.
Oh já Sigga. Ég skil það mjög vel!
Nr. 3 | posted by: anna |
9.07.2007 | 11:56:18 | [+] |