Every breath you take..
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Í gær áreitti ég mann kynferðislega sem vinnur með mér þegar ég sagði að það væri synd að hann myndi ekki hlaupa í spandex af því hann væri með svo flottan rass. Í dag stóð ég mig að því að segja öðrum manni sem ég vinn með að hann væri sexý með skegg.
"Já þú ert ein", sagði hann, "komin með breglaða sýn á karlmenn".
Ég þorði ekki öðru en að ræða við yfirmann minn og bað hann að láta mig vita ef honum fyndist ég ganga of langt í þessum kynferðislegu ofsóknum mínum á samstarfsmenn. Hann horfði lengi á mig áður en hann svaraði..
"ég ætlaði nú alltaf að minnast á það, geturðu nokkuð lagt bílnum þínum fyrir neðan húsið hjá mér þessi kvöld þegar þú ert að stalka mig. Það eru ekki það mörg stæði þarna fyrir ofan og ég er með matarboð í kvöld."