www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Carlos
Sunnudagur, 01. júlí 2007

Þegar ég átti einungis eftir fjóra daga í hitanum á Spáni eignaðist ég "vin".

Carlos.

Það var hálf neyðarlegt hvernig leiðir okkar lágu saman fyrst. Ég var á salerni og hann hreinlega óð inná mig. Sem betur fer var ég búin að hysja upp um mig nærbuxurnar þegar hann ruddist inn. Ég varð allt annað en kát og honum brá. Held að hann hafi orðið skíthræddur - allavega sagði hann fátt og var fljótur að forða sér.

Daginn eftir sá ég hann aftur og var í aðstöðu til að fylgjast með honum úr fjarlægð í smá tíma. Ég þurfti ekki langan tíma til að átta mig á að þarna var komin þessi rólega týpa, hægar ákveðnar hreyfingar, serious and professional. Ekki sá fallegasti, en.. padda. Það var bleedin' obvious. Svo var hann líka svakalega brúnn og.. já. Ógnvekjandi. Og ég er búin að vera alveg rosalega. Ein.

Lengi.

Hann var ekkert að spyrja leyfis heldur, flutti bara inná herbergi en hélt veru sinni leyndri fyrir Bob Moran. Leiðir Carlosar og Bob lágu hinsvegar saman nokkrum klukkutímum áður en við Bob fórum útá flugvöll og það varð.. já. Allt vitlaust. Mikið drama. Bob ætlaði basically að drepa Carlos (hans orð), réðist á hann - en - ég náði að stoppa hann af og Carlos var á lífi þegar við keyrðum útá flugvöll.

Ég veit vel að ég mun aldrei sjá Carlos aftur, það stóð líka ekki til. Ég hef engan áhuga á að hann komi til Íslands og satt að segja er hann líklega búinn að finna sér aðra as we speak, hann er í túristunum og er ekkert að tvínóna við hlutina - en - þetta var alveg ný lífsreynsla og ég kom sjálfri mér á óvart þarna. Verulega á óvart.

Ekki oft sem það gerist.

Með réttu hefði ég átt að vera skíthrædd, af hverju var ég það ekki?


| anna | 3:22 |
comments

leit hann út eins og Carlos í desp. housewifes? mmm....

Nr. 1 | posted by: baun | 1.07.2007 | 12:13:17 | [+] |

Nei hann var aðeins öðruvísi en hann

Nr. 2 | posted by: anna | 2.07.2007 | 0:23:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web