www.anna.is
ravings of a lunatic í júlí 2007
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Carlos
Sunnudagur, 01. júlí 2007

Þegar ég átti einungis eftir fjóra daga í hitanum á Spáni eignaðist ég "vin".

Carlos.

Það var hálf neyðarlegt hvernig leiðir okkar lágu saman fyrst. Ég var á salerni og hann hreinlega óð inná mig. Sem betur fer var ég búin að hysja upp um mig nærbuxurnar þegar hann ruddist inn. Ég varð allt annað en kát og honum brá. Held að hann hafi orðið skíthræddur - allavega sagði hann fátt og var fljótur að forða sér.

Daginn eftir sá ég hann aftur og var í aðstöðu til að fylgjast með honum úr fjarlægð í smá tíma. Ég þurfti ekki langan tíma til að átta mig á að þarna var komin þessi rólega týpa, hægar ákveðnar hreyfingar, serious and professional. Ekki sá fallegasti, en.. padda. Það var bleedin' obvious. Svo var hann líka svakalega brúnn og.. já. Ógnvekjandi. Og ég er búin að vera alveg rosalega. Ein.

Lengi.

Hann var ekkert að spyrja leyfis heldur, flutti bara inná herbergi en hélt veru sinni leyndri fyrir Bob Moran. Leiðir Carlosar og Bob lágu hinsvegar saman nokkrum klukkutímum áður en við Bob fórum útá flugvöll og það varð.. já. Allt vitlaust. Mikið drama. Bob ætlaði basically að drepa Carlos (hans orð), réðist á hann - en - ég náði að stoppa hann af og Carlos var á lífi þegar við keyrðum útá flugvöll.

Ég veit vel að ég mun aldrei sjá Carlos aftur, það stóð líka ekki til. Ég hef engan áhuga á að hann komi til Íslands og satt að segja er hann líklega búinn að finna sér aðra as we speak, hann er í túristunum og er ekkert að tvínóna við hlutina - en - þetta var alveg ný lífsreynsla og ég kom sjálfri mér á óvart þarna. Verulega á óvart.

Ekki oft sem það gerist.

Með réttu hefði ég átt að vera skíthrædd, af hverju var ég það ekki?


Show me heaven
Sunnudagur, 01. júlí 2007

IMG_3937.png

IMG_3798.png

IMG_3844.png

IMG_3821.png


| anna | 15:13 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Paddan Carlos
Mánudagur, 02. júlí 2007


The Power Of Nightmares - BBC Documentary
Þriðjudagur, 03. júlí 2007

In the past our politicians offered us dreams of a better world. Now they promise to protect us from nightmares.

The most frightening of these is the threat of an international terror network. But just as the dreams were not true, neither are these nightmares.

The Power of Nightmares explores how the idea that we are threatened by a hidden and organized terrorist network is an illusion.

It is a myth that has spread unquestioned through politics, the security services and the international media.

The Power Of Nightmares Part I: Baby It's Cold Outside

The Power Of Nightmares Part II: The Phantom Victory

The Power Of Nightmares Part III: The Shadows In The Cave


MK og MR
Miðvikudagur, 04. júlí 2007

Fulltrúar þessara menntaskóla komu mér til bjargar í málningadeild Húsasmiðjunnar í Skútuvogi í dag.

Ohh strákar.. takk!


| anna | 23:36 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Ken horfinn
Föstudagur, 06. júlí 2007

Kom við á Landspítalanum eftir vinnu til að hitta Ken en komst að því að maðurinn er horfinn.

Ef einhver veit hvar hann er, vill sá sami segja honum að ég er komin með nýtt símanúmer.

Djöfull helst mér illa á karlmönnum.


| anna | 17:44 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Mmmmmmmmmmm
Mánudagur, 09. júlí 2007

Á Spáni er alveg rosalega mikið af flottu kvenfólki og það fór ekkert framhjá Bob Moran sem fannst gaman að horfa á stelpurnar. Ég horfði ekki á þær, en það sem ég horfði á fékk mig oft til að slefa. Maður orðin þurfandi og svona.

Eitt kvöldið fórum við út að borða og á meðan við vorum að borða eftirréttinn var Bob Moran að taka upp hreyfimynd af mér á símann sinn. Sem ég vissi ekki. Svo skemmtilega vildi til að á meðan ég var að gæða mér á eftirréttinum, sem var nú eiginlega meira eins og fullnæging borin fram með súkkulaðisósu, sá ég..

..ja hvað sá ég?

Bob gerði þetta móment ódauðlegt og ég reyndi að klippa þetta þannig að stemmingin, og það sem gerðist, kæmist sem best til skila.

Pump up the volume.

(Þetta er smá stórt og betra að leyfa því að hlaðast inn til að losna við hökt - nema þú hafir þess betri tengingu. Hljóðið er möst)

Annars var þessi helgi mjög.. áhugaverð. Geri því betur skil seinna..


Pet project
Mánudagur, 09. júlí 2007

Já ef einhver efaðist þegar ég sagðist vera bílkynhneigð þá hef ég sumsé myndir því til sönnunar. Það fór allavega ekkert framhjá Bob Moran og ég held að hann hafi verið soldið hissa þegar ég hafði engan áhuga á karlmönnunum á svæðinu en snéri mig næstum úr hálslið ef flottur bíll keyrði framhjá. Sem var helv oft. Mér er eiginlega ennþá illt í hálsinum. Bob fannst það alltaf jafn fyndið.

Ég kann nefnilega alltaf betur og betur að meta að vera ein. Ég hef aldrei búið við jafn mikið frelsi og ég bý við í dag og ég er ekki tilbúin að gefa það frelsi upp á bátinn.

Á Spáni áttaði ég mig hinsvegar á því að ég get ekki verið ein endalaust og fór að hugsa útí gæludýr aftur. Ég þarf svoleiðis. Gæludýr sem ég hef ekki ofnæmi fyrir. Ég fór yfir valkostina: fiskar, krókódílar, slöngur, köngulær, froskar.. ekkert sérlega heillandi. Mig langaði í gæludýr sem ég get strokið og verið góð við og á Spáni fattaði ég hvað ég þarf. Ég þarf karlmann sem ég get haft sem gæludýr.

Ég hugsaði mikið um þetta á meðan ég lá í sólbaði. Þvílík snilld! Ef ég gæti bara fundið einhvern sem leyfir mér að strjúka á honum bakið og hárið. Einhvern sem gæti kveikt í mér líka og..

But.. there is a catch. Hann má ekki vilja búa með mér eða eignast börn með mér eða giftast mér. Hann má bara leyfa mér að strjúka sér og refsa mér svo þegar ég er búin að því. Ég hef ekkert meira að gefa.

Það var í raun bara einn galli á þessu öllu saman, ég virðist eiga mjög erfitt að finna mann sem getur kveikt í mér - en til að dæmið gangi upp verður gæludýrið augljóslega að geta það.

Á föstudaginn fór ég seint útá lífið. Var edrú að venju, á bíl, og um nóttina var ég stödd á ónefndum skemmtistað þegar ég sá hann. Ég sat og starði heillengi, trúði varla því sem ég sá.. og fann. Því þarna var hann lifandi kominn, maðurinn sem hafði allt sem þarf til að verða gæludýrið mitt.

Ég var fljót að komast að því sem ég þurfti að vita. Hann er töluvert yngri en ég, barnlaus og örlagapiparsveinn. Hann var líka mjög drukkinn.

Perfect.

Það sem ég gerði er líklega.. refsivert athæfi.

Ég byrjaði á því að bjóða honum far heim. Ég hef keyrt drukkna menn heim af djamminu áður en þessa nótt var ég með ulterior motive. Fyrir dómi væri þetta líklega kallað "einlægur brotavilji", ég hef svoleiðis.

Á leiðinni heim til hans spurði ég hvort hann væri svangur. Hann sagðist vera það. Ég fór með hann á stað þar sem við gátum keypt pizzu því ég vissi að þessi ákveðni maður þyrfti orku og mikið af henni. Ef það er ekki orðið augljóst nú þegar, þá á ég til að vera einstaklega calculeruð og köld manneskja.

Við fórum heim til hans með pizzuna og þegar hann var búinn að borða stóð ég upp, tók í höndina á honum og leiddi hann inní svefnherbergi. Á leiðinni muldraði hann eitthvað þvoglumæltur um að þetta væri hallærislegt, að ég væri edrú á meðan hann væri svona drukkinn. Ég fullvissaði hann um að það væri allt í lagi, það væri öllum sama. Inní svefnherberginu sleppti ég takinu á höndinni hans og hann datt í rúmið. Ég brosti. Spurði hvort hann væri í alvöru svona drukkinn. Já, sagði hann, þú ert að misnota mig.

Aha. Ég veit.

Miskunnarlaust.

Ég misnotaði þennan unga mann fram undir morgun. Þá lagði ég höfuðið á bringuna hans, hagræddi handleggnum á honum þannig að hann hélt utanum mig og lagði mig í tvo klukkutíma. Þegar ég vaknaði misnotaði ég hann aðeins meira. Áður en ég fór lá ég við hliðiná honum og strauk á honum bakið og svo nuddaði ég á honum hársvörðinn. Ég er ekki viss um að hann hafi verið með meðvitund en hann gaf samt frá sér lágt grrr hljóð á meðan á milli þess sem hann stundi "ohhh.. þetta er svo gott".

Ég veit.

Þegar ég fór heim til mín leið mér dásamlega. Betur en mér hefur liðið í mjög langan tíma. Bæði hafði ég fengið að vera góð við einhvern, sem ég hreinlega þurfti á að halda, og svo var auðvitað búið að refsa mér sundur og saman. Þurfti ekkert minna á því að halda satt að segja.

Er hægt að hafa það betra?

Þegar ég hinsvegar sá honum bregða fyrir í brúðkaupinu á laugardaginn fékk ég hálfgert sjokk. Reyndar var þetta mjög fjölmenn veisla but I didn't see that one coming - ja nema þarna um nóttina, augljóslega. Hann virtist ekki þekkja mig og ég var farin að velta fyrir mér hvort hann hafi í alvöru verið svo drukkinn að hann myndi hreinlega ekki eftir þessu, en þegar töluvert var liðið á veisluna vatt hann sér uppað mér svo lítið bar á og tilkynnti mér lágum rómi að það sem gerðist heima hjá honum nóttina áður og um morguninn hafi verið gróf misnotkun af minni hálfu. Ég sagði að hann hefði ekkert á mig, róhipnólið væri farið úr kerfinu og viagrað væri mjög sennilega orðið untrace-able á þessum tímapunkti. Hann glotti. Sagði að ég gæti sloppið við kæru ef hann mætti refsa mér um kvöldið en ég yrði að átta mig á að hann gæti mögulega þurft að refsa mér alla nóttina og jafnvel langt fram á næsta dag.

Ég sagði að hann mætti refsa mér að vild gegn einu skilyrði: ég yrði að fá að strjúka honum fyrst. Lengi.

Hann þagði í ca þrjár sekúndur áður en hann sagði: fine.

Til að gera langa og *censored* frásögn stutta þá kom ég seint heim til mín á sunnudagskvöldið. Kom í ljós að gæludýrið les síðuna mína, vissi nákvæmlega hver ég var og þegar ég á einum tímapunkti hvíslaði "jesús" glotti hann, enda veit hann hvað það þýðir..


| anna | 19:05 | permalink | comments (6) | send to facebook |
A night to remember
Miðvikudagur, 11. júlí 2007

Í gærkvöldi leið mér eins og ég væri falleg. Samt var ég ekkert tilhöfð því hann kom þegar ég var ennþá í baði. Var með handklæði utanum mig þegar ég opnaði dyrnar og vatnið lak úr hárinu á mér.

"Jesss, ég var að vona að ég næði þér nákvæmlega svona" sagði hann og glotti.

Padda. Ég sagði honum að ég ætlaði í bað og hann kom hálftíma of snemma.

Hann kemur samt einhvernvegin þannig fram við mig að mér líður eins og ég sé falleg. Ekki af því ég er svo vel máluð eða greidd, enda var ég það ekki. Og það er ekki vegna þess að hann kom með vín og mat eða af því hann eldaði fyrir mig ljúffengan mat. Nei. Honum finnst ég vera falleg og.. svo miklu meira en það. Honum finnst ég frábær - og ég finn það. Dem hvað það er góð tilfinning.

Einhverra hluta vegna þekkir hann mig. Vel, og mér stendur ekki ógn af honum því ég veit að það er ekkert á milli okkar sem kemur til með að þróast lengra. Við erum bæði mjög meðvituð um það.

Það sveif hratt á mig af víninu og þegar Bobby Darin söng "Call me irresponsible" bað ég hann að dansa við mig. Ég átti ekki von á að hann segði já. Mér leið eins og ég hefði ferðast í tímavél aftur um tugi ára og það var góð tilfinning - eins og við værum í öðrum heimi en þessum. Í heimi þar sem menn hafa integrity og eru.. gentlemen. Galant.

Það hefur engin komið svona fram við mig áður en mér leið samt eins og ekkert væri eðlilegra. Honum fannst ekkert eðlilegra.

Ég sagði honum að vinkonur mínar segðu að ég sé eins og Mrs Solice og hann fór að hlæja.
Ja, það stemmir nú eiginlega ekki. Ég er ekki unglingur, ekki garðyrkjumaður og bý ekki hjá foreldrum mínum.
Sem er hálfgert stílbrot fyrir mig, sagði ég. Hann hló. Svo er ég ekki gift heldur.
Þú ert ekki eins og Mrs Solice, Anna. Þú ert meira eins og.. predator. Menn sjá ekki hvað þú ert hættuleg fyrr en of seint.

There's something out there waiting for us - and it ain't no man?
Já. Enda ertu kona.

Ég er ekki svona hættuleg.
Ég veit.

Demit.

Ég var með verk í bakinu og hann nuddaði á mér bakið þangað til verkurinn var að mestu horfinn, svo lagðist hann hjá mér og hélt utanum mig þangað til ég sofnaði.

Hann er basically.. já. Góður við mig.

Það er eiginlega nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér að það væri.

Bara betra.


Heilræði dagsins
Fimmtudagur, 12. júlí 2007

If it feels like fate, it's probably stalking.


| anna | 15:46 | permalink | comments (2) | send to facebook |
That was a bit of luck!
Fimmtudagur, 12. júlí 2007

Lykkjufall dauðansÞegar ég settist upp í bílinn minn áðan á leið minni frá vinnu rak ég höndina í lærið á mér og fann samstundis eitthvað skríða niður fótlegginn á mér.

Mér datt sem snöggvast gæludýrið mitt í hug en það passaði ekki. Bæði kemst gæludýrið ekki fyrir þarna við fæturnar á mér í bílnum auk þess sem það hefur hingað til farið sem leið liggur upp fótinn, ekki niður. Sokkurinn átti aldrei séns, sá það þegar ég leit niður á lærið á mér. Með hringnum sem ég ber á vinstri hönd hafði ég búið til lykkjufall dauðans.

Ég panikkaði. Af hverju hugsaði ég aldrei útí þetta fyrr? Hvað ef þetta hefði gerst í hádeginu? Og ég hélt að ég væri svona kona sem hugsaði fyrir öllu! Hver vill fara á fund með svo stórt lykkjufall á vinstri fótlegg að það er eins og þú sért á leiðinni á Ninu Hagen tribute tónleika???

Úff. Var ekki lítið fegin að ég var á leiðinni heim.

Ég startaði bílnum og keyrði af stað. Það er spes að vera að keyra og finna á sama tíma lykkjufall skríða sífellt lengra niður lærið á þér. Mjög spes. Ég hef líklega verið mjög undarleg á svipinn því það eru einhverjar taugar þarna sem liggja.. já. Förum ekki nánar útí það.

Á morgun mun ég byrja daginn á að stock up on stockings. And it makes sense. Meina, maður fer ekki útúr bænum án þess að vera með varadekk undir bílinn.

Maður fer ekki heldur í vinnuna án þess að hafa auka sokka í skúffunni. Tóm heppni að ég hafi lært þetta við svona aðstæður, classic ef það hefði verið á leiðinni á fund með einhverjum stórlöxum..


| anna | 22:43 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Er eitthvað að?
Laugardagur, 14. júlí 2007

Þegar ég vakaði í morgun var ekkert að. Þegar ég fór heim til mín var ekkert að.

Þetta er í raun fyrsta skiptið sem ég fer að hitta hann til að spjalla. Hann hringdi í morgun til að tékka á hvert ég fór í gærkvöldi, stuttu síðar sagði hann mér að hætta að tala í símann, koma í heimsókn og við myndum fara að fá okkur ís. Ég fór þó mér liði alls ekki vel.

Byrjuðum á American style því hann var skelþunnur. Þegar búið var að færa okkur matinn spurði hann hvort eitthvað væri að. Frá því ég hitti hann hefur hann haft furðulegt lag á að vita hvenær það er eitthvað að, það var reyndar augljóst þarna en hann hefur fundið það áður, jafnvel þegar ég er að reyna mitt besta til að breiða yfir það.

Þegar hann hringdi var ekkert að, en svo, með öðru símtali var mér kippt aftur um tugi ára, aftur til þess tíma sem ég var búin að gleyma því það er of sárt fyrir mig að muna það og ég hef valið að muna það ekki. En það er samt þarna.

Ég fór að gráta. Þegar ég byrjaði að tala og heyrði mig segja upphátt það sem ég hafði hugsað síðasta klukkutímann varð það svo raunverulegt fyrir mér. Kunnuglegt og sárt. Ég var í sannleika sagt búin að gleyma hvernig þetta var. Hélt að þetta tilheyrði fortíðinni og væri búið en ég hafði rangt fyrir mér. Um leið og ég gerði mér grein fyrir því fór ég að gráta. Ég sat þarna á American Style og grét í hljóði við hliðiná honum. Ég græt venjulega ekki fyrir framan fólk. Hvað þá á skyndibitastöðum. Í dag, í fyrsta skipti í mjög mörg ár, grét ég fyrir framan karlmann.

Hann huggaði mig. Tók utanum mig og hélt í höndina mína, strauk á mér bakið og huggaði mig. Án þess að segja orð. Ég var svo þakklát og það var svo gott.

Ég hélt áfram að segja honum hvað var að, talaði lágt. Röddin brast í sífellu og tárin hættu ekki að streyma niður kinnarnar á mér. Ég hafði ekki undan að þurrka þau með servéttunni. Þegar ég hafði sagt honum allt leit ég á hann og mætti augum sem voru full af skilningi. Væntumþykju.

Hann átti eftir að hugga mig meira en með orðum. Það er svo mikill fjársjóður í fólki sem er í lagi. Yfirvegað. Laust við helvítis drama og rugl. Hann er þannig.

Mér leið betur þegar ég hafði talað um þetta, ég hafði virkilega þurft á því að halda án þess að gera mér alveg grein fyrir því. Eftir American Style fórum við að kaupa ís og á eftir fórum við heim til hans í garðinn. Þar sátum við, fyrst í garðstólunum en svo náði hann í teppi og kodda og við lágum á teppinu með kodda undir höfðunum. Lágum bara í leti og létum sólina baka okkur á meðan. Töluðum um allt og ekkert.

Þegar ég fór heim var ekkert að.

Ég mun berjast, með öllum tiltækum ráðum, fyrir að halda því þannig.


| anna | 19:50 | permalink | comments (1) | send to facebook |
The agony of choice
Fimmtudagur, 19. júlí 2007

Ég get ekki ákveðið fyrir hvern ég ætla að hlaupa.


The Rose
Föstudagur, 20. júlí 2007

Some say love it is a river
that drowns the tender reed
Some say love it is a razor
that leaves your soul to bleed

Some say love it is a hunger
an endless aching need
I say love it is a flower
and you; it's only seed

It's the heart afraid of breaking
that never learns to dance
It's the dream afraid of waking
that never takes the chance
It's the one who won't be taken
who cannot seem to give
and the soul afraid of dying
that never learns to live

When the night has been too lonely
and the road has been too long
and you think that love is only
for the lucky and the strong

Just remember in the winter
far beneath the bitter snows
lies the seed
that with the sun's love
in the spring
becomes the rose
--

Ég vona það.

Þetta er búin að vera alveg mögnuð vika, ofboðslega skemmtileg og mikið að gera. Á morgun fer ég í brúðkaup hjá tveimur yndislegum manneskjum sem hafa ákveðið að eyða ævinni saman. Ég hlakka svo til.

Þetta er ungt par, þau sem eru að gifta sig á morgun. Töluvert mikið yngri en ég, og ég öfunda þau.

Það er alveg sama hvað ég spyr gæludýrið mitt um, það hefur upplifað það með annarri konu. Samt er það yngra en ég. Að hluta til finnst mér þetta svo dapurt hjá fólki á mínum aldri. Það er ekkert nýtt lengur og ekkert sem við komum til með að uppgötva saman. Þó við gæludýrið séum ekki par og komum ekki til með að verða það, kem ég aldrei til með að hitta mann sem getur gert neitt fyrir mig, sem einhver annar hefur ekki gert áður.

En - svo fattaði ég. Það er alveg hellingur sem ég hef aldrei upplifað með karlmanni. Þó ég hafi upplifað að vera kysst, á Þjóðarbókhlöðunni af öllum stöðum, þannig að hnén gáfu sig, þá vildi hann ekki taka það lengra. Og þó ég hafi upplifað brúðkaupsdag þar sem ég gaf loforð um að vera trú í gegnum súrt og sætt, stuttu seinna, gerðust atburðir sem urðu til þess að mig langaði ekki að standa við það lengur.

Ég hef aldrei upplifað að kikna í hnjáliðunum og fá að halda því. Ég hef ekki upplifað að einhver lofi mér að eyða með mér ævinni, og standi við það.

Ég er sek um að trúa að ástin sé bara fyrir þá heppnu og ég er líka sek um að þora ekki að taka sénsinn. En stundum verð ég líka einmana og þreytt á að standa ein og vera sterk endalaust.

Þá hugsa ég um hvað mig langar að hafa einhvern hjá mér. Einhvern sem getur og finnst gott að kyssa mig þannig að hnén gefa sig. Einhvern sem er ekki hræddur við að vera svo einlægur að halda í höndina á mér. Einhvern sem heldur fast utanum mig þannig ég heyri hjartsláttinn hans og finn hitann frá líkamanum hans. Einhvern sem veit hvað þarf til að fá mig til að brosa, og hvað hann þarf að segja ef ég er þreytt og uppgefin. Einhvern sem vill vera hjá.. mér.

Ég held að fólk sem er eitt, tapi með aldrinum hæfileikanum til að finna til kærleika. Alveg eins og börn tapa sakleysi sínu þegar þau kynnast hvað heimurinn getur verið ljótur. Ég öfunda fólk sem þorir að trúa og tekur sénsinn. En það er ekki ég. Ennþá.

Og þessi tilfinning líður hjá.

Having said that, kemur kannski á óvart.. að á morgun fer ég í brúðkaup hjá fólki sem ég trúi í alvöru að komi alltaf til með að vera saman.

Skrítið.


| anna | 21:10 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Póker
Föstudagur, 20. júlí 2007

poker.jpg

Það er ekkert gaman að spila póker og veðja engu, mér finnst sætt að veðja kossum og ef maður vill vinna í póker, þá bara kennir maður ekki mótspilurum sínum reglurnar - og tekur pottinn!


| anna | 22:30 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Always Coca-Cola
Sunnudagur, 22. júlí 2007

cocacola.jpg

1908 "Good To The Last Drop"
1924 "Pause and Refresh Yourself"
1934 "When It's Hard To Get Started, Start With A Coca-Cola"
1943 "A Taste All It's Own"
1948 "It's The Real Thing"
1950 "Help Yourself To Refreshment"
1963 "Things Go Better With Coke"
1966 "Coke...After Coke...After Coke"
1979 "Have a Coke and a Smile"
1982 "Coke Is It"
1989 "Can't Beat The Feeling"


Die Hard 4.0
Mánudagur, 23. júlí 2007

Fór á Die Hard 4.0 í kvöld. Þegar ég kom var salurinn að fyllast. Ég spurði hvort sætið við hliðiná myndarlegum og ungum strák, sem er mjög sennilega garðyrkjumaður, væri laust. Hann bauð mér að setjast en þar sem þetta var endasæti og augljóst að ég væri ein á ferðinni held ég að hann hafi fengið sjokk strax þegar hann hafði sleppt orðinu og hugsað: "I immediately regret this decision", enda vill það oft taka mjög unga menn á taugum að hafa eigulegar konur í flegnum bol og þröngum gallabuxum við hliðiná sér. Þessi var engin undantekning. Ég tók hann á orðinu, en ekki eins og ég hefði viljað. Vinum hans fannst þetta voða fyndið og gerðu smá grín að honum. Restina af myndinni höguðu þeir sér eins og hin mestu prúðmenni enda gæti ég mjög sennilega verið mamma þeirra - ef ég hefði byrjað mjög ung. Sá sætasti var að sjálfsögðu þessi sem ég sat við hliðiná og christ hvað var góð lykt af honum.

<POTENTIAL SPOILER>

Mér fannst gaman að sjá Star Wars vísanir í myndinni og held að strákarnir hafi verið impressed yfir því að ég skildi þessa nokkru beinu vísanir í Star Wars. Í einu atriðinu vantaði nú bara Svarthöfða á svæðið. Líklega er ég orðin too old for this shit því mér finnst yfirgengilegu atriðin eins og MAÐUR VS SPRENGJUÞOTA óborganlega fyndin. Strákarnir, sem eru líklega þetta.. tuttugu árum yngri en ég, fannst þetta ekki eins fyndið og halda líklega að ég sé escape lunatic. Mér er bara slétt sama.

Bruce er orðinn.. of gamall fyrir mig. Sorglegt. Vondi kallinn í myndinni var fullkomlega kraftlaus, borderline boring og nörda strákurinn var ekki að gera neitt fyrir mig heldur. Hafði alveg húmor fyrir aumingjabröndurunum, þeir eru ekkert alltaf að lyfta þessar elskur en goddamn nomansland sem þetta er alltaf hreint í bíó. Hvar í fjandanum er Clooney þegar maður þarf á honum að halda?

Getur svo einhver gefið mér inn með dropateljara af hverju litla gerpið Matt Damon virðist fá að vera í James Bond leik over, and over, and over again í þessu Bourne rugli? Hjá hvaða konum sefur hann eiginlega til að fá þessa díla?

Maður spyr sig.

Nice touch að láta yfirmann FBI vera Osama Bin Laden.

Að lokum verð ég að viðurkenna að just once myndi ég vilja sjá að einhver í vinaliðinu sem maður reiknar í alvöru ekki með að verði drepinn, fái að bite the big green banana of death. Sá sem þekkir þetta expression og veit hvaðan það kemur fær verðlaun.

Í alvöru talað. Það myndi kannski kalla fram smá púls eða adrenalín eða.. einhverja tilfinningu. Ég veit að formúlan virkar en hún er orðin fokk boring.

</POTENTIAL SPOILER>

Die Hard 4.0 er ágætis skemmtun ef þú hefur nákvæmlega ekkert merkilegra að gera - eða ef þú ert bara þreyttur eftir helgina og langar að leggjast í heiladoða í tvo klukkutíma.


Ég fullyrði..
Mánudagur, 23. júlí 2007

..að hlaupaföt eru eitt það ósmekklegasta sem fundið hefur verið upp í heiminum to date og nú á ég svoleiðis.

Ég mun hinsvegar ekki láta nokkurn mann sjá mig í þessu ógeði svo ég mun hlaupa á næturna - eftir að það er orðið dimmt. Ég hef séð fólk hlaupa á þessum tíma og nú veit ég af hverju.

Þess á milli mun ég hlaupa á staðnum inní stofu.
---

Update I (20:30)

Þetta eru ekkert venjulega þægileg föt, ég efast um að ég eigi eftir að fara úr þessu aftur - ever.
---

Update II (23:06)

ÉG ELSKA HLAUPAFÖTIN MÍN! Djöfull eru þau ógeðslega cool.


| anna | 19:05 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Every breath you take..
Miðvikudagur, 25. júlí 2007

Í gær áreitti ég mann kynferðislega sem vinnur með mér þegar ég sagði að það væri synd að hann myndi ekki hlaupa í spandex af því hann væri með svo flottan rass. Í dag stóð ég mig að því að segja öðrum manni sem ég vinn með að hann væri sexý með skegg.

"Já þú ert ein", sagði hann, "komin með breglaða sýn á karlmenn".

Ég þorði ekki öðru en að ræða við yfirmann minn og bað hann að láta mig vita ef honum fyndist ég ganga of langt í þessum kynferðislegu ofsóknum mínum á samstarfsmenn. Hann horfði lengi á mig áður en hann svaraði..

"ég ætlaði nú alltaf að minnast á það, geturðu nokkuð lagt bílnum þínum fyrir neðan húsið hjá mér þessi kvöld þegar þú ert að stalka mig. Það eru ekki það mörg stæði þarna fyrir ofan og ég er með matarboð í kvöld."


| anna | 12:00 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Catch and release
Miðvikudagur, 25. júlí 2007

Ég er búin að sleppa gæludýrinu mínu lausu útí náttúruna. It was the humane thing to do.

Það er náttúrlega tómt RUGL að geyma svona stórt dýr í búri en það sem gerði útslagið var tilfinning. Ég var búin að gleyma að ég gæti haft þannig. Þessi frostklumpur sem hjartað í mér er, fór að þiðna en ég náði sem betur fer að grípa inní áður en illa fór. Hann er horfinn inní frumskóginn og ég ætla að gista í frystinum í nótt til að ná alkul. En ég hafði verulega gott af því að rifja upp hvernig þetta fer fram allt saman. Hélt að ég væri búin að gleyma því.

Ég var actually búin að gleyma því.


| anna | 20:18 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Stalkers Reprise
Miðvikudagur, 25. júlí 2007

Every breath you take
And every move you make
Every bond you break
Every step you take
I'll be watching you

Every single day
And every word you say
Every game you play
Every night you stay
I'll be watching you

Oh can't you see
You belong to me
How my poor heart aches
with every step you take

Every move you make
And every vow you break
Every smile you fake
Every claim you stake
I'll be watching you

Since you've gone I've been lost without a trace
I dream at night, I can only see your face
I look around but it's you I can't replace
I feel so cold and I long for your embrace
I keep crying baby, baby please......

Oh can't you see
You belong to me
How my poor heart aches
with every step you take

Every move you make
Every vow you break
Every smile you fake
Every claim you stake
I'll be watching you

Every move you make
Every vow you break
Every smile you fake
Every claim you stake
I'll be watching you.....

Every breath you take
Every move you make
Every vow you brake
Every smile you fake [I'll be watching you]
Every single day
Every word you say
--

Einu sinni fannst mér þetta svo sætt lag. Að hann skuli hafa verið svona ofboðslega hrifinn af þeirri sem hann syngur um að hann ætlaði alltaf að vera tveimur skrefum fyrir aftan hana og fylgjast með henni.

Mér finnst lagið ennþá gott, en í dag finnst mér hann twisted and sick. Augljóst að þessi maður er haldin þráhyggjuröskun á mjög háu stigi og þarf á hjálp fagaðila að halda.

Það sem ég pældi aldrei í þegar ég var yngri, var.. að kannski vildi sú sem hann var svona hrifin af, ekkert með hann hafa lengur. Og kannski var bara verulega góð ástæða fyrir því.

Every move you make
Every bond you brake
Every step you take
Every smile you fake
Every claim you stake
Every single day
Every word you say
Every game you play
Every night you stay

I'll be watching you..


| anna | 20:55 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Congrats girl!
Föstudagur, 27. júlí 2007

congratsgirl.jpg

Hæfir tilefninu fullkomlega og gerir mig svo hamingjusama.
Þetta er til.

Thank you so much!


| anna | 18:27 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Astaire - Shame
Laugardagur, 28. júlí 2007

Þetta er svo ótrúlegt.

Ég var að ákveða að fara til Ítalíu næsta sumar í viku og hvað gerist.. í gærkvöldi, aðeins nokkrum dögum eftir að ég ákvað þetta, fæ ég tölvupóst frá Ítalíu. Ég veit ekki hvort þetta er stelpa eða strákur sem sendi mér póstinn en í honum var fyrirspurn um lag sem ég hafði sem lag vikunnar árið 2001. Ég var búin að taka mp3 fælinn af síðunni en setti hann aftur inn. Núna á viðkomandi þetta lag og er in high spirits á meginlandi Evrópu.

Þetta er 80's lag sem er næstum ómögulegt að finna í dag, ég hafði sjálf mikið fyrir því að finna það á sínum tíma en mig vantar textann. Ítalinn og ég settum saman tillögu.

Hér er lagið.
Heyrir þú hvað hún er að syngja þarna? Endilega leiðréttið ef þetta er rangt.

Skil ekki af hverju það er svona erfitt að nálgast þetta lag í dag. It's... a shame.

Astaire - Shame

She slams the door so tight,
that the building shakes and the whole street comes to life.
People look and the rumors fly,
its another day with another painful night.
She wants so much from life
Look around, every street, see her name lit up in lights.
He doesn't think it's right,
Its a passing phase that will fade into the night.

Such a shame, boy
Such a shame, boy
Such a shame
When I consider all the pain, boy
All the pain, boy
All the pain
One day I´ll show you how I'm named

She sits in the darkened hall
And she dreams she's a picture hanging on the wall.
What she wants to be
Its so close, yet so far, for everyone to see,
She lights a cigarette
And then dances 'round with her silhouette
She needed you to light the flame
But it turned into regret, now who's to blame

Such a shame, boy
Such a shame, boy
Such a shame,
When I consider all the pain, boy
All the pain, boy
All the pain
I'll take my chances just the same, boy
Just the same, boy
Just the same
I'm good enough to win this game, boy
Win this game, boy
Win this game
One day I´ll show you how I'm named


GULIR ERU BESTIR
Sunnudagur, 29. júlí 2007

IMG_4224.jpg

IMG_4230.jpg

IMG_4232.jpg

IMG_4235.jpg

IMG_4256.jpg

IMG_4358.jpg


| anna | 14:36 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Blús í G
Sunnudagur, 29. júlí 2007

Á laugardagsnóttina var ég í partíi í heimahúsi. Á staðnum var einn karlmaður að spila á bassa, annar á gítar, enn einn á trommur en laaaangflottastur var Organistinn sem var á hljómborði.

Þarf eiginlega að gera þessu betri skil seinna. Klukkan var fimm um morguninn þegar ég kvaddi manninn sem reykti half and half fyrir utan húsið og svo gekk ég brosandi heim á leið - ef tjald getur kallast heim.

Stemmarinn var blús og rokk. Eitt af lögunum sem Organistabandið tók í gærkvöldi var Blús í G eftir Magnús Kjartansson. Einn gesturinn í partíinu tók míkrafóninn og söng þetta bara helvíti vel!

Blús í G

Mánudagsmorgunn á fætur ég fer,
höfuðið á mér þunnt eins og gler.
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Hvað var ég að gera, hvar fékk ég að vera
í ókunnri borg svo fjarri þér.
Ég þrái að sjá þig – fá þig
fíla eina nótt hjá þér.

Tungan við góminn er eins og gróin,
gerbragð í munni af öldrykkju er.
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Ég horfi út um dyrnar, geng út um gluggann,
geri allt vitlaust hvar sem ég fer.
Ég þrái að sjá þig – fá þig
fíla eina nótt hjá þér.

Í hillingu heyri ég þig syngjandi sálma.
Svona ertu heilög í augum á mér
Ég þrái að fá þig – sjá þig
sofa eina nótt hjá þér.

Lagið í flutningi Mannakorna

Þeir tóku að sjálfsögðu lagið Hey Jude - veit nú bara ekki hver bað um það.. hehehe
NA-NA-NA-NANANANA!

Takk fyrir mig, þetta var æðislegt kvöld!


10%
Mánudagur, 30. júlí 2007

*censored* says: þú ert 70% hot, 20% funky og 10% plain weird
Anna says: funky
Anna says: er það ekki eitthvað sem er illa lyktandi og óbragð af
*censored* says: nei, lærðu ensku kona
Anna says: læra ensku?
Anna says: hvað þýðir þetta í þínum huga?
*censored* says: http://tinyurl.com/2hulvy
*censored* says: þetta er funky
Anna says: já
Anna says: þú vilt sumsé meina að ég sé svört kona
Anna says: með afró
Anna says: finnst þér ég orðin of dökk? á ég að greiða mér oftar?
*censored* says: svört? hvað ertu að tala um ?
Anna says: ég er aðeins að rugla í þér, bear with me here..
Anna says: er ekki til neitt annað orð?
Anna says: sem er ekki hægt að nota yfir illa lyktandi og bragðvont sæði eins og Samantha gerir í sex and the city
*censored* says: what!
Anna says: funky spunk
*censored* says: lol
Anna says: afraid so
Anna says: farið að slá í það
Anna says: ég er ekki svo framliðin
Anna says: komdu með betra orð
*censored* says: ok ...
*censored* says: 20% toblerone
Anna says: við erum útí móa hérna
Anna says: toblerone?
Anna says: er liturinn ójafn?
Anna says: ég veit að ég er með þrjá hvíta bletti á bakinu..
*censored* says: nice and perky :D
Anna says: ok sold
Anna says: hehehe
Anna says: KOMDU MEÐ BETRA ORÐ
Anna says: ég er ekkert fricking toblerone
*censored* says: rofl
*censored* says: men ... ok, en ég þarf smá tíma til að finna það
*censored* says: 20% spunk
Anna says: jájá
Anna says: þú vilt bara eyrað alveg af?
*censored* says: lol
Anna says: útskýrðu fyrir mér af hverju þetta orð varð fyrir valinu
Anna says: fyrir hvaða qualities stendur það
Anna says: í setningu
*censored* says: Brunswick is a hip and funky area of Melbourne
Anna says: ég er... _Brunswick_
Anna says: sem er hluti af Melbourne
Anna says: steik
*censored* says: nei ...
*censored* says: meaning, original, different, cool,
Anna says: ahh
Anna says: ég er cool
Anna says: ég er different
Anna says: ég er original
Anna says: gæti gengið
Anna says: en bara ef ég hef þessar skýringar með
*censored* says: já, ég finn ekki annað orð sem lýsir því
Anna says: formúlan er sumsé þessi
Anna says: 70% hot, 20% spunk og 10% plain weird
*censored* says: ég læt þig vita þega ég finn rétta orðið

Anna says: næsta mál
Anna says: 10% plain weird
Anna says: eigum við að skoða það aðeins saman..
Anna says: hehehe
*censored* says: lol
*censored* says: þú hefur sumsé ekkert á móti "hot" partinum
*censored* says: bara ánægð
*censored* says: fullnægð og brosir út að eyrum
Anna says: já ég er fullnægð í kvöld
Anna says: það er sjálfsafgreiðsla inní svefnherbergi
Anna says: svínvirkar
*censored* says: var einmitt að spá í þessu ... ert á msn og fullnægð, var að spá í hvort það væri stóllinn eða hvað
Anna says: nei ég er handlagin
Anna says: hef alltaf verið
Anna says: nýtist til ýmissa verka
*censored* says: já ég skil ... pikkar semsagt með annari hendi
*censored* says: á lyklaborðið sko
Anna says: smíða skútu, skerpi skauta, deita denna, gunna og gauta
Anna says: haltu kjafti!
*censored* says: lol
*censored* says: ég pakkaði skautunum í kassana sem ég er að flytja til ástralíu... ég veit ekki afhverju
Anna says: snilingur
Anna says: það er vegna þess
Anna says: og svo þori ég að veðja að þú endir á að gefa þá í góðgerðarsöfnun til afríku
Anna says: smile
*censored* says: lol
*censored* says: ég þarf að finna mér nýtt hobby þegar ég kem til ástralíu
*censored* says: ... og þú þarft að finna þér nýtt hubby
Anna says: i'm good
Anna says: má ég koma með recommendation?
Anna says: bus surfing
*censored* says: ok
*censored* says: bus surfing?
Anna says: já
Anna says: surfa á strætisvögnum
*censored* says: ?
Anna says: stökkva bara útum gluggann
Anna says: lenda á þakinu
*censored* says: lol
Anna says: ég sagði aldrei að þetta yrði auðvelt sko..
*censored* says: ok ... 10% plain weird
*censored* says: !!!
Anna says: wink
Anna says: þetta var bara á lagernum


| anna | 23:04 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Reykjavíkurmaraþon Glitnis
Þriðjudagur, 31. júlí 2007

Hljóp fimm km í dag. Þriðji dagurinn sem ég æfi.

Ætla fimm aftur á morgun.



ravings í júlí 2007
monthly archive

links
blogs
links - web