www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Final Cut
Þriðjudagur, 26. júní 2007

Síðustu daga hef ég legið eins og skata útí sólbekk á daginn, farið út að borða, horft á Boston Legal á kvöldin (erum að verða búin með seríu 2) og þegar ég er ekki að gera neitt af þessu sem ég er búin að telja upp, eyði ég tíma mínum í að kenna sjálfri mér á forritið Final Cut.

Mér til hryllings liggur ljóst fyrir að ég þarf að fá mér makka því þetta er lang besta hreyfimynda-editing forrit sem ég hef unnið með. Kann auðvitað ekki mikið. Ennþá.

Já. Það átti að vera Internet í húsinu en það var því miður búið að fjarlægja það. Seagalinn sjálfur verður að sýna þessu skilning, þetta er ástæðan fyrir því að ég hef ekki gefið daglegt rapport eins og ég var búin að lofa. Can't be helped, can't be helped.

Allavega. Hér er stutt heimildarmynd, drama, um tiltektina ógurlegu sem ég réðst í áður en ég fór út. Fékk kvartettinn sem spilar á kaffihúsinu hérna útá horni til að spila undir. Þeir eru bara alveg ágætir.


| anna | 11:33 |
comments

Vá....draslið.....Þetta er bara svipað mikið og ég henti þegar ég flutti út smile Til hamingju með þetta.

Nr. 1 | posted by: Ina Dogg Eythorsdottir | 26.06.2007 | 14:05:18 | [+] |

Anna þó! Þú ert að plata, þetta er enginn kvartett what

Nr. 2 | posted by: hildigunnur | 26.06.2007 | 17:01:09 | [+] |

He he, brjálæðislega vel gerð stuttmynd, flott ris og allt.
Ef þú kemur og tekur til í geymslunni minni færðu fría gistingu og fararstjórn í París eins lengi og þú vilt.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 27.06.2007 | 6:47:47 | [+] |

áhrifarík mynd weepy

Nr. 4 | posted by: baun | 27.06.2007 | 8:29:03 | [+] |

Ótrúlegt! Spáðu í kjaftæði að vera að hrúga svona vitleysu í kringum sig. En myndin var æði. Fékk tár í augun ....en eingöngu vegna áhrifa tónlistarinnar. Hehe

Nr. 5 | posted by: lindablinda | 27.06.2007 | 11:02:19 | [+] |

Hmm, mér sýnist að þú búir of rúmt.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 27.06.2007 | 18:33:35 | [+] |

Denny Crane! (nuff said)

Nr. 7 | posted by: Andri | 1.07.2007 | 2:38:51 | [+] |

Ókey.. þetta er ekki kvartett. Þetta er samt flott! hehe

Denny Crane.

Nr. 8 | posted by: anna | 2.07.2007 | 0:24:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web