www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
75% af draslinu farið
Þriðjudagur, 12. júní 2007

Alla helgina var ég að fara í gegnum íbúðina og geymsluna og henda drasli. Endaði á að fá miðstóran sendiferðabíl í hádeginu á mánudag til að koma þessu öllu í Sorpu.

Í Sorpu stoppaði ég starfsmann til að spyrja hvort ég þyrfti að borga.

Maður: hmm.. þú ert nú eiginlega á ólöglegum skóm
(Var í hælum, fór heim í hádeginu til að græja þetta.)

Hann horfði inní opinn sendiferðabílinn: Hvað er þetta?
Ég: Dót sem ég fann heima hjá mér og í geymslunni.
Hann horfði á mig, á draslið og aftur á mig: Ef þú tekur af þér gleraugun þarftu ekki að borga.
Ég: ha?
Hann: Ef þú tekur af þér gleraugun þarftu ekki að borga.
Ég tók af mér gleraugun.
Hann: Aha..
Ég: Hvað?
Hann: Þú ert 75% fallegri án gleraugna.
Ég setti gleraugun aftur á mig: Veit, mér finnst gott að eiga það inni.

hehehe
--

Ég er ekki búin. Það er meira drasl sem ég ætla að losa mig við en þvílík
f r e l s u n.

Næstu jól get ég farið niður í geymslu og náð í jóladótið, gengið að því uppí hillu í stað þess að hafa kvíðahnút í maganum í tvo mánuði fyrir jól af því mig langar ekki að grafa mig inní ruslið í geymslunni til að finna það - og - ég get pakkað jólunum niður á þrettándanum og komið þeim niður. Strax.

Á eftir að grisja jóladótið all verulega líka. Ég er hætt að skreyta nema bara jólatréð. Finnst það alveg nóg.

Ég trúi ekki hvað ég var með mikið drasl bæði inní íbúðinni og í geymslunni. Ég gutteraði náttúrlega geymsluna, má segja að ég hafi tæmt hana. Er með einhverja örfáa kassa þar núna og í geymslunni er dót sem ég nota þó ég noti það sjaldan.

Ég er hinsvegar gjörsamlega uppgefin eftir þessa helgi og hlakka ekki lítið til að fara til Spánar á laugardaginn til að sofa í sólinni. Í einbýlishúsi með tveimur veröndum og sundlaug.

Það fer mér svo vel.


| anna | 13:53 |
comments

Næstu jól verður ekkert jólaskraut í geymslunni því þú hentir því í tiltektarkastinu !

Ertu búin að telja börnin nýlega ? what

Nr. 1 | posted by: Hugz | 12.06.2007 | 15:07:56 | [+] |

Hvaða rugl er þetta, ég henti ekkert jóladótinu - iss.

Börnin eru á fullu heima að fara í gegnum sitt dót, henda og taka til dót til að gefa.

Tiltekt getur verið mjög smitandi.

Nr. 2 | posted by: anna | 12.06.2007 | 15:32:41 | [+] |

Ef ég vísa þér veginn, gætirðu tekið lúnatíska rispu í bílskúrnum mínum?
Þyrfti örugglega stærri gerð af sendibíl samt.

Sama hvort ég er með gleraugun eða ekki, ég þarf alltaf að borga á Sorpu.

Nr. 3 | posted by: rato | 14.06.2007 | 13:12:57 | [+] |

Hey, endirinn hjá þér minnir mig á þegar Hyacinth Bucket (Bouquet) taldi alltaf upp attribute fínu systur sinnar. var það ekki ...and a room for a pony! í restina?

Maður getur alltaf fundið not fyrir tvær verandir og sundlaug cool

góða ferð og skemmtu þér vel 0

Nr. 4 | posted by: Atviksorða-Anna | 15.06.2007 | 23:55:43 | [+] |

Rato, hvernig get ég tekið til í bílskúrnum þínum ef ég veit ekki hvar þú átt heima?

A-Anna, oh já ég fann sko not fyrir tvær verandir og sundlaug. Þetta var svo yndislegt..

Nr. 5 | posted by: anna | 2.07.2007 | 0:27:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web