Föstudagur, 08. júní 2007
Fyrrverandi maðurinn minn fær stundum bækur gefins og þegar hann langar ekki að eiga bókina á hann til að gefa mér hana. Þannig fékk ég bók í hendurnar sem heitir "Burt með draslið". Ég fékk þessa bók líklega fyrir tæpu ári síðan og þegar hún kom heim til mín breyttist hún strax í drasl.
Í gær breytti ég henni úr drasli í bók aftur og las hana og sjá.. himnarnir opnuðust og ég sá ljósið!
Nú hef ég ákveðið að uppræta eins mikið af tilfinningalegum tengslum við hluti og ég get. Er með þrjá svarta ruslapoka:
rusl
föt
dót sem á að gefa

Þegar ég hugsa útí það meikar nákvæmlega ekkert sense að geyma gamla síma. Ef einhver vill eiga þetta í varahluti þá eru þeir hér í poka. Eitthvað af þessu virkar en batteríin eru léleg í öllum.

Á næstu dögum verður hægt að gera reifarakaup hjá Góða hirðinum þegar Albert í "W.M.D*" bolnum sínum verður kominn þar í einhverja hillu. Hann var bara ekki alveg að rock my world. Mig langaði líka að eiga alvöru hund og það er smá munur.

Snyrtivörur sem ég nota ekki lengur. Af hverju hendi ég þeim þá ekki?

Þetta var erfiðast. Duran grifflan. Ég er búin að henda þessari grifflu sem núverandi maðurinn minn gaf mér þegar hann bauð uppá vínveitingar í partíi sem hann hélt í tjaldi við Egilshöll þegar Duran Duran hélt tónleika. Hann hét Íslandsbanki á þeim tíma en þurfti að skipta um nafn þegar hann fór að gera sig gildandi útí löndum.
Hann er svo flottur.
En mér tókst að gera það! Ég sleit tilfinningalegu tengslin sem ég hafði við þessa grifflu, svoleiðis reif þau upp með rótum því það verður ekkert minna gaman að rifja upp hvað þetta var æðislegt þó ég eigi ekki þessa grifflu. Ég verð að hætta að skrifa um hana núna, áður en ég fer og veiði hana uppúr ruslinu.. þarf að halda áfram..
Börnin eru að taka þessu mjög illa. Sjá að ég er orðin algjörlega miskunnarlaus og óttast mjög þegar ég byrja inní barnaherbergi. Ég hef verið brútal, but never like this.
*Weapon of mass destruction