www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Third Time's a Charm?
Þriðjudagur, 08. maí 2007

Ég hélt að hann væri hættur, því það voru liðnir meira en tveir dagar síðan sá graði sendi póst - en þessi þriðji var mættur í inboxið mitt í morgun.

Það sem hann sendi mér finnst mér ferlega fyndið. Hann er nefnilega frekar fúll maður og alvarlegur, og þess vegna dó ég nærri úr hlátri þegar hann sendi mér þetta. Hann notaði mynd af sér þar sem hann er verulega fúll á svipinn, sem gerir þetta ennþá fyndnara. Hann veit líka alveg hvernig menn ég vil. Þar sem ég kann ekki við að birta myndina af honum notaði ég mynd af Jude Law þar sem hann er bloody annoyed á svipinn, til að þið fengjuð taste.

(Strákar. Ef þið viljið koma konunni í gott skap, sendið henni svona með mynd af ykkur.)

loveandkisses1.jpg

Á meðan ég var að hlæja datt mér í hug að líklega er þessi maður allt sem ég þarf. Alvarlegur, samt með beittan lúmskan húmor og þetta sannar að hann hefur það sem má ekki vanta: húmor fyrir sjálfum sér. Ógeðslega klár, flottur í laginu..

En ég má ekki vera að því að hugsa um karlmenn núna þegar eiginmannsígildi mitt, Glitnir, á hug minn allan. Eina mínútu yfir tólf á miðnætti settist ég uppí bílinn minn til að fara heim úr vinnunni.

Þetta er búið að vera hrikalega gaman - and I just can't get enough.


| anna | 0:51 |
comments

wahahahaha Góður!

Nr. 1 | posted by: Unnur | 8.05.2007 | 2:40:07 | [+] |

þetta fannst mér fyndið wahahahaha

Nr. 2 | posted by: baun | 8.05.2007 | 8:19:04 | [+] |

GEGGJAÐ!
ég sendi svona á kæró, hann verður nú happy 0

Nr. 3 | posted by: Elín | 8.05.2007 | 9:16:07 | [+] |

Byrjuð að versla í Karen Millen? Er þetta upphaf endalokanna? Maður spyr sig...
PS. Gott að bíllinn var ekki orðinn að graskeri.

Nr. 4 | posted by: Miss G | 8.05.2007 | 18:05:08 | [+] |

Já ég er byrjuð að versla í Karen Millen - en þessi poki er undan pilsi sem hafði gleymst inná lager á hlægilegu útsöluverði.

Ég er alltaf að bíða eftir að þetta breytist allt í grasker, en smám saman er að sink in.. að þetta er for real.

Hef komist að því að raunveruleiki, er ekki til.

Nr. 5 | posted by: anna | 8.05.2007 | 18:25:09 | [+] |

Líklega er raunveruleikinn túlkunaratriði, þegar upp er staðið.
Og til lukku með pilsið, er viss um að það er damn hot, þótt það hafi gleymst og verið á ha-ha-ha verði.
winky

Nr. 6 | posted by: Miss G | 8.05.2007 | 22:00:03 | [+] |

Er það sem mér sýnist að upphandleggsvöðvarnir séu farnir að fylla dálítið út í jakkaermarnar? Þarftu ekki að minnka aðeins á stönginni?

Nr. 7 | posted by: AlanHudson | 10.05.2007 | 3:31:50 | [+] |

hehehe það er nefnilega heila málið. Þetta eru ekki vöðvar, þetta er fita. Ég er nefnilega ekki í nokkurri einustu hættu á að hverfa þó ég léttist.

Ég er hinsvegar komin með ágætis mitti og magavöðvarnir eru byrjaðir að gægast útúr fitunni sem er á hröðu undanhaldi.

Upphandleggsvöðvar fara að detta inn á næstu dögum. Ég er actually með mjög flotta upphandleggi þegar ég hef nennt að hreyfa mig eitthvað.

wink

Nr. 8 | posted by: anna | 10.05.2007 | 8:18:20 | [+] |

Það verður ekki annað sagt en ég gat brosað af þessu myndbandi í grárri eymd minni þessa daganna.

Annars áður fínir magavöðvar mínir í bölvuðum keng núna, sundurskornir og bjúgaðir og marðir og bláir. Fékk öskurmikla hreyfingar og lyftingarþörf við að lesa kommentin og þarf sennilega að taka 2-3 bleikar til þess að komast í gegnum restina af deginum...

Nr. 9 | posted by: Eddið | 10.05.2007 | 10:05:32 | [+] |

http://tinyurl.com/2drol5

Nr. 10 | posted by: Andri.dk | 10.05.2007 | 14:30:41 | [+] |

Oh.. en þú sætur! happy

Nr. 11 | posted by: anna | 10.05.2007 | 14:35:01 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web