www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Risessa í miðbæ Reykjavíkur
Föstudagur, 11. maí 2007

Í morgun skrapp ég úr vinnunni, fór í Melaskóla, kippti syni mínum úr tíma og fór með hann sem leið lá í Hljómskálagarðinn. Þegar við nálguðumst Hljómskálann heyrðum við svakalegar hrotur og sáum að uppá skálanum svaf svakalega stór risa stelpa sem mér skilst að sé risessa. Þarna lá hún í sólstól, steinsofandi. Doddi spurði af hverju hún væri sofandi og klukkan rúmlega tíu, ég sagði honum að líklega væri hún bara lítið stórt letidýr.

Þegar hún vaknaði, blikkaði hún augunum og horfði smá í kringum sig, áður en hún stökk ofanaf þakinu og skellti sér í hressandi morgungöngu innanum fjölmarga Íslendinga sem voru mættir til að fylgjast með ferðum hennar.

VÁ HVAÐ ÞETTA VAR MAGNAÐ!

Það er engin annar en eiginmannsígildi mitt, Glitnir, sem er samstarfsaðili götuleikhússins Royal de Luxe frá Frakklandi sem sér um að setja þetta magnaða ævintýri á svið í miðbæ Reykjavíkur og ég hvet fólk að fara og kíkja á hana í dag og/eða á morgun.

Ég er ekki lítið vel gift. Myndir og myndskeið frá því í morgun á mbl.is.

Forsaga málsins er þessi:

"Á leiðangri sínum uppgötvar Fornleifastofnun Frakklands goshver undir götum Reykjavíkurborgar. Leiðangursmenn rekast þá á sofandi risa sem hefur legið í dvala undir borginni í hundrað ár. Þegar ró risans er raskað lætur hann öllum illum látum og eyðileggur nálæga bíla með tröllvöxnum hnífapörum sínum. Yfirvöld setja sig í samband við dóttur risans, risessuna, og biðja hana um að koma til Reykjavíkur að róa almenning. Hún dvelst í borginni í tvo daga og reynir að tæla föður sinn í átt að höfninni. Hvernig lýkur sögunni?"


Prómóið þetta algjör snilld. Búið að reka strætisvagn í gegn með risa hníf í Lækjargötunni og í gær sá ég að smábíll hafði verið rekinn í gegn með gaffli við Sæbrautina. Mjög töff.

Ég frétti síðast af ferðum Risessunnar þegar hún lagði sig klukkan eitt við Hallgrímskirkju. Hún fer aftur af stað klukkan þrjú.

Föstudagur 11. maí

15.00 heldur hún aftur af stað frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg, upp Laugaveg, Snorrabraut og gengur eftir Sæbrautinni að hafnarbakkanum en þar mun hún leggjast til svefns.

Laugardagur 12. maí

10.30 Risessan vaknar á hafnarbakkanum og fer í sturtu. Hún gengur inn á Ingólfstorg, Aðalstræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg þar sem hún hittir fyrir risann um kl. 11.30.

15.00 Lokagangan hefst frá Lækjartorgi, upp Hverfisgötuna, Snorrabraut, Sæbraut og að hafnarbakkanum þar sem lokaatriðið hefst um kl. 17.00.

--

Ég ætla aftur klukkan þrjú.


| anna | 12:54 |
comments

Alltaf sama sagan með þessa Frakka, dónar upp til hópa. Haldið þið ekki að hún hafi hysjað upp um sig kjólinn og migið á götuna !! what
Annars getur hún örugglega ekki sýnt fram á framfærslu hér á landi þannig henni verður fljótlega vísað úr landi.

Nr. 1 | posted by: Hugz | 11.05.2007 | 16:00:30 | [+] |

Já. Veist þú um klósett á Íslandi sem er nógu stórt fyrir svona stelpu?

Frakkar eru og verða spes. hehe

Nr. 2 | posted by: anna | 11.05.2007 | 16:21:06 | [+] |

Vá, magnað. Mér finnst líka skemmtilegt og kannski magnað að lesa það að þú takir þér tíma til að gera þetta með stráknum þínum!!!! Skrifa svo um það.

Vá. Skítt með bankastofnun. Sorry ef ég kem við þig.

Nr. 3 | posted by: AD-lesandi sidunnar | 11.05.2007 | 17:11:26 | [+] |

Það er nú ekki á hverjum degi sem svona magnaður atburður gerist á götum borgarinnar, auðvitað fer maður með strákinn sinn að sjá þetta.

Ég hringdi reyndar fyrst í skólann og spurði hvort þau ætluðu að fara, því eldri dóttir mín fór með sínum skóla, en bekkurinn hans sonar míns var ekki að fara í bæinn svo ég rændi honum úr danstíma. happy

Mögnuð upplifun!

--
Þegar ég kom að sækja strákinn sagði hann hátt og snjallt yfir allt þegar við löbbuðum út "vá, takk mamma fyrir að bjarga mér úr dansi!"

Jæks.

Nr. 4 | posted by: anna | 11.05.2007 | 18:54:58 | [+] |

Hefði nú strax verið skárra að míga t.d. í tjörnina. Hún er nú einu sinni eitt stórt andaklósett.
Ánægður með Dodda ! Hvað er verið að senda svona pjakka í danstíma ?

Nr. 5 | posted by: Hugz | 11.05.2007 | 23:16:03 | [+] |

Frábær uppákoma. Stelpurnar mínar (2ja og 4ra) eru búnar að spyrja þúsund spurninga eins og "Meiddist fólkið í strætónum?" "Ætlar risinn að skemma bílinn okkar?" "Borðar prinsessan fólk?"
Fáeinar myndir að finna á www.hi.is/~som/risessan

Nr. 6 | posted by: forsetinn | 12.05.2007 | 8:15:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web