Mánudagur, 28. maí 2007

Eftir margar óeigingjarnar tilraunir hef ég loksins fundið út hvaða brúnkukrem virkar best af öllu þessu dóti sem ég hef prufað. Ég er m.a. búin að prófa krem frá Dove og fullt af mis dýrum kremum frá flottum snyrtivöruframleiðendum. Af því mér fannst dýru kremin hrein hörmung ætla ég að sleppa því að gefa upp nöfnin á þeim. Mér hefur fundist liturinn frá Dove einna skárstur af þessu sulli en lyktin af því fer verulega í mig. Eitthvað í henni minnir mig á milda klósett-ilmsteins lykt og ég er ekki spennt fyrir þannig ilmi. Kannski er eitthvað að nefinu á mér, ætla ekki að útiloka það. Á endanum datt ég niður á lausnina sem virkar fyrir mig, krem sem heitir Fake Bake. Skemmtilega hallærislegt nafn.
Það er auðvitað vond lykt af kreminu og svo máttu búa þig undir vonda lykt sem kemur víst af húðinni sjálfri þegar hún er að búa til litinn. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Það er vel hægt að díla við þessa lykt með því annaðhvort að nota rakakrem sem hefur góða lykt eða vera bara slétt sama þótt þú lyktir ekki eins og engill í blómadal. Vont en það venst. Af öllum þeim kremum sem ég hef notað verð ég ekki appelsínugul af þessu og þeir sem hafa séð mig (eftir að ég lærði að setja þetta almennilega á mig) dettur ekki annað í hug en að ég sé nýkomin frá útlöndum.
Það sem þú þarft að eiga er..
- Fake Bake self tanning lotion - fæst í Hagkaup á rúmar 3 þús
- Vichy Lipidiose Cranular Exfoliating Cream - fæst útí apóteki
- Nivea Visage Gentle Face Scrub - Apótek
- Natural Vitamin E-oli - fæst í Heilsuhúsinu
- Skrúbbhanski - fæst í apótekum
- Latexhanskar - fást.. tjah.. allavega í bónus!
- Gott rakakrem
- Einhvern til að bera á bakið á þér
Undirbúningur að kvöldi dags:
Farðu í bað eða sturtu. Skrúbbar þig hátt og lágt með skrúbbhanskanum og notar Vichy skrúbbkremið á líkamann - Nivea í andlitið. Ekki sleppa þessu ferli. Fjarlægir dauðar húðfrumur og ef þú sleppir þessu aukast líkurnar á að þú verðir flekkótt.
Hér gera margir þau mistök að stökkva úr sturtu/baði, þurrka sér og skella drullunni á sig - sem er algjört no no. Ef þú berð á þig brúnkukremið áður en húðin hefur balansað PH gildið síðan úr baðinu/sturtunni eru meiri líkur á því að þú verðir appelsínugulur. Bíða í klukkutíma og svo má fara að vinna í þessu. Ekki vitlaust að bera á sig gott rakakrem strax eftir baðið.
Vitamin E-olían er borin á þurr svæði, t.d. ef þú ert með þurrkublett og er bráðnauðsynleg á handabökin. Eftir að ég fór að nota þessa olíu á handabökin verður liturinn mjög jafn og flottur á þeim - og muna að þegar þú berð á fingurna að hafa þá bogna. Þegar E-olían er komin á þurru staðina skellirðu þér í latexhanska og byrjar að smyrja "Fake Bake" kreminu á. Það er mjög dökkt og þú munt líta út eins og fáviti. Það er fórn sem þú þarft að færa og trust me.. nobody cares.
Ekki setja þykkt lag, þess þarf ekki. Bara þunnt lag og bera á allan líkamann. Hafa hnén bogin og olboga á meðan þú berð á þau svæði. Ég nudda þessu nokkuð vel inní húðina og jafna. Af því kremið er svo dökkt er mjög auðvelt að sjá hversu vel þetta er gert hjá þér. Þú færð aðstoðarmanneskjuna til að klára verkið á bakinu á þér. Ef þú ert svo leiðinleg/ur að engin vill þekkja þig eða hjálpa geturðu líka bara verið í fötum sem hylja bakið. Eða pantað pizzu og borgað pizzasendlinum fyrir að skella þessu á - eða þannig. Næst bíður þú eftir að allt gumsið þorni utaná þér. Tekur ca 20 mín í mínu tilfelli og á meðan sit ég í flísteppi og sörfa á netinu. Það er optional hvað þú gerir þennan tíma.
Þegar þú ert orðinn þurr geturðu farið í náttföt ef þú átt einhver voða fín damask sængurföt, nú ef ekki þá ferðu bara stark naked uppí rúm. Works for me. Kremið smitar lit en ég hef geta þvegið það vandræðalaust úr öllu sem það hefur klínst í. Mér finnst gott að bera aftur á mig E-olíuna á handabökin þegar hingað er komið og jafna aðeins út litinn. Svo fer maður að sofa. Það er mjög gott að fá minnst sjö tíma svefn, hvort sem þú ert að nota brúnkukrem eða ekki. Hafa það í huga.
Þegar þú vaknar daginn eftir muntu fá sjokk ef þú gleymdir brúnkukreminu og lítur í spegil. Eftir sjokkið ferðu í bað/sturtu og þværð þér eins og venjulega. Vatnið mun líkjast skólpvatni og það er eðlilegt. Þegar þú kemur úr baði mun lítið kraftaverk hafa átt sér stað.
Þú ert brún.
Þar sem þetta þurrkar húðina er gott að vera duglegur að bera á sig rakakrem á meðan á "meðferð" stendur. Það minnkar líka flekki þegar liturinn fer að dofna.
Ég er búin að nota Fake Bake núna fjórum sinnum á allan líkamann og það er slatti eftir. Allt hitt dótið, Vichy, Nivea og E-olían er mjög drjúgt þannig að all in all er þetta ekki mjög dýr aðgerð. Plús.. húðin á þér verður ekki eins og leður og þú sleppur við húðkrabbamein. Viltu hafa það eitthvað betra?
Það fer svo eftir því hversu brún þú vilt vera hversu oft þú notar kremið.
Ekki flókið.
Ég hef það fyrir satt að Madonna og félagar í þeim bransa noti helst þetta krem. Miðað við hvað kremið virkar vel trúi ég því alveg.