www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Enginn nógu góður til að stjórna landinu
Laugardagur, 12. maí 2007

Þórarinn Þórarinsson, 8 ára

Doddi

Hluti úr viðtali sem tekið var við son minn og birtist í Fréttablaðinu í dag:

Hvað finnst þér að stjórnmálamenn eigi að gera fyrir fólkið í landinu?
Ég vil ekkert láta fullt af fólki gera eitthvað fyrir mig. Ég þarf ekkert svoleiðis. En það vantar rólur hjá Melaskóla. Þar er kastali og klifurgrind og eitthvað dót sem snýst. Mér finnst líka mjög pirrandi að það er búið að byggja þrjá ljóta kofa á Melaskóla. Mér og Jóni* finnst það skemma Melaskólann. Þeir geta tekið kofana og sett rólur í staðinn.

Lesa allt viðtalið
--
Ármann neglir þetta á blogginu sínu.

Nokkrum blaðsínum framar í blaðinu er mynd af pabba hans sem ber sama nafn, og var nefndur einn besti bloggari landsins, hvorki meira né minna - enda magnaður penni þar á ferð.

* Doddi kom af fjöllum þegar hann las þetta, "Jón hvað? Ha? Ég sagði Jóhanna".


| anna | 21:30 | send to facebook |
comments

Já hann Doddi var alveg rosalega cool í Fréttablaðinu! Ég brosti alveg hringinn þegar ég las þetta. Og svo er svo hrikalega fyndið að á myndinni er hann með algjöra engilsásjónu angel Hins vegar hefði ég viljað sjá bloggið þitt nefnt sem eitt af bestu bloggunum!

Nr. 1 | posted by: Sigga | 13.05.2007 | 0:33:16 | [+] |

Sammála Siggu, klárlega miklu betra blogg en þíns fyrrverandi, að honum ólöstuðum að sjálfsögðu. doubt

Nr. 2 | posted by: Guðrún | 13.05.2007 | 0:54:02 | [+] |

Nah, ég á ekkert erindi inní þessa upptalningu.

Sonur minn með engilsásjónuna. Var ég búin að skrifa um þegar hann var alltaf að segja "þegar ég verð engill"? Mér fannst það mjög óþægilegt og bað hann að hætta. Ég vil ekki að þessi drengur verði engill nærri, nærri strax. Ekki fyrr en ég er löngu orðin engill!

Nema.. svo rennur upp fyrir mér að ég er náttúrlega engill - sem flækir málið og gerir það erfiðara viðureignar allt saman..

Hann má verða engill þegar ég er löngu dauð. Skulum orða það þannig.

Nr. 3 | posted by: anna | 13.05.2007 | 10:28:22 | [+] |

þetta er afskaplega myndarlegur piltur, til hamingju með hann happy

Nr. 4 | posted by: baun | 13.05.2007 | 13:50:44 | [+] |

Mikið áttu greindan og skynsaman dreng. Hann má stjórna landinu anytime.

Nr. 5 | posted by: Gummi | 14.05.2007 | 12:26:19 | [+] |

Hann er yndislegur.

Nr. 6 | posted by: anna | 14.05.2007 | 15:59:22 | [+] |

Hann er æði. Verst að ég er gift...

Nr. 7 | posted by: Kristín | 15.05.2007 | 7:01:51 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web