Sunnudagur, 06. maí 2007
Var í morgunkaffi hjá mömmu og sagði henni m.a. frá áformum mínum. Þessum sem munu gera mig auðuga.
Hún lyftist öll á loft, sagði að hún hefði verið hjá spákonu fyrir löngu síðan sem sagði að ég myndi verða farsæl viðskiptakona sem myndi eyða miklum tíma erlendis. Bíddu, bíddu, bíddu, sagði ég. Þú varst búin að segja mér frá þessari spákonu og ég man ekki betur en að hún hafi sagt að ég myndi læra sálfræði og gerast sálfræðingur?
Mamma hló. Nei, hún sagði reyndar að eldri dóttir mín yrði farsæl viðskiptakona sem myndi eyða miklum tíma erlendis en sú yngri yrði sálfræðingur. Þegar ég tók með í reikninginn þá staðreynd að þú hefur aldrei haft nokkurn einasta áhuga á peningum á meðan systir þín hefur alltaf verið meðvituð um hvað þeir skipta miklu máli, var ég viss um að konan hefði ruglast - og þú yrðir sálfræðingurinn og hún viðskiptakonan. En miðað við það sem þú varst að segja mér, þá hafði konan rétt fyrir sér eftir allt saman.
Áhugavert. Ég trúi samt ekki á spákonur. Þetta hefur verið fluke.
Þegar ég kom til mömmu hafði hún orð á því hvað ég liti vel út. Alveg sama hvert ég fer þessa dagana, fólk hefur orð á hvað ég líti vel út og nú veit ég af hverju. Það er vegna þess að allar pabbahelgar kemur hingað ung pólsk kona sem þrífur íbúðina mína.
Að hugsa sér. Öll þessi ár hafði ég ekki hugmynd um að það sem myndi gera mig raunverulega hamingjusama væri kona sem kæmi og þrifi íbúðina mína tvisvar í mánuði. Hún vændi mig um að þrífa sjálf þegar hún kom í gær "it is so clean, you have cleaned?"
No no no no no no, I do not clean, no no, no cleaning, no no.
Hún gerir þetta bara svo vel að það endist í tvær vikur.
Jæja, má ekki vera að þessu, ætla að fara inní eldhús að spegla mig í stálvaskinum...