Þriðjudagur, 29. maí 2007
Það er langt síðan ég hef verið svona veik. Við erum að tala um sofandi í sófanum. Seinfeld rúllar.
Ég reyndar slökkti á Seinfeld rétt áður en ég sofnaði alveg.
Mig dreymdi alveg furðulegan draum. Hvað er í gangi þegar það er vont að tyggja líka? Bygons.
Pepp/svepp/hakk/skinkudraumurinn.
Í byrjun draumsins var ég heima hjá mér. Í Kópavogi. Ég á ekki heima í Kópavogi og þetta leit auk þess ekki út eins og Kópavogur. Ég var að fara uppá spítala, man ekki hvern ég var að fara að hitta, nema ég hringdi í Eldsmiðjuna (sem var í Kópavogi) og pantaði pizzu með pepp/svepp/hakki og skinku. Ég var mjög particular með skinkuna.
Næst er ég komin á hótelherbergi í Reykjavík á einhverju svona milliklassa hóteli. Var lengst uppi. Í herberginu var ég búin að koma fyrir allskonar innkaupapokum með furðulegu innihaldi. Ég get ekki munað hvað það var, en ég man að það var skrítið. Ég t.d. man eftir að hafa tekið homeblest kex og sett ofaní einn pokann sem ég er nokkuð viss um að hafi geymt borðspil fyrir.
Hrikalegt að verða svona veikur. Börnin hjá pabba sínum og ef ég dey á ég ekki einu sinni hund sem borðar af mér andlitið svo engin sjái hvað ég þjáðist EIN síðustu metrana.
Á þessu hótelherbergi vaknaði ég í draumnum (það var um svipað leyti og ég rumskaði og teygði mig í fjarstýringuna til að slökkva á Seinfeld) og áttaði mig á því að ég gleymdi alltaf að sækja pizzuna fyrr um kvöldið. Þarna pepp/svepp/hakk/skinku dæmið. Og ég held að á þeim tímapunkti hafi ég staðið í þeirri meiningu að ég væri að kaupa þessa pizzu fyrir tvo hesta sem ég þekki.
In real life þekki ég enga hesta. Ég þekki mikið ágætisfólk plús örfáa pappakassa en þeir eru nánast alveg hættir að bögga mig.
Hvar var ég.
Já. Ég vaknaði í draumnum og fattaði að ég gleymdi að sækja pizzuna. Svo ég hringdi og þá var allt í einu massa erfitt að ná inn á pizzustaðinn í gegnum síma. Og ég sá svo illa númerin. var fyrst eitthvaðþþ 66 einn en núna var það meira.. 5 eitthvað, þrír. Mjög spes allt saman. Endaði á að ég gerði bara eitthvað útí bláinn og þá náði ég samband við par. Ég get svo svarið.. þetta var krípí par. Og þau sögðu að þau myndu koma upp því þau heyrðu ekki í mér í símanum en pizzastaðurinn. Voru niðrí andyrinu á hótelinu.
Þau komu upp, ég þurfti að opna fyrir þeim inná stigagangi því þau höfðu ekki lykla. ?? Ég sagði þeim að ég gleymdi að sækja pizzuna og þá kom svona svipur á strákinn "helvítis djöfulsins tík, hún er ein af þeim" en þegar ég sagði að pizzan hafi vefið pepp/svekk/happ/skinka pizza þá brosti hann eins og ég væri vangefin og að hann vorkenndi mér fyrir að panta svona pappakassapizzu, og sagði að þetta væri allt í lagi. Þegar þau fundu ekki viðtakanda.. þá settu þau pizzuna inní ísskáp og þau gætu hitað hana upp.
Ég var in high spirits og þegar þau voru farin klæddi ég mig úr öllu að ofan og klæddi mig í einhvern þann ógeðslegasta loðna bol sem ég bara hef séð. Og til að toppa það fór ég í svona pappakassavesti yfir. Djöfull var ég orðin flott. Svo fór ég út með alla pokana mína og ætlaði að setja þá útí bíl - en þá var bíllinn á kafi í snjó. Og ekki bara að utan, heldur að innan líka. Ég mátti skafa bæði af honum og innanúr honum.
Það er eins og ég hafi áttað mig hérna á mistökum svo í draumnum fór ég til baka og leit í spegil, sá að þetta loðna bola dæmi var tískuslys svo ég fór úr því og í gömlu fötin. Þá kom wird parið með pizzuna, ég þakkaði fyrir og hugsaði um hestana sem yrðu nú glaðir en svo lak pizzan í gólfið og þegar ég var að koma henni aftur fyrir í kassanum tók ég eftir að hún var skreytt með jólaskrauti.
38° and rising