www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
On the menu
Miðvikudagur, 02. maí 2007

Karlmenn hafa samband við mig í þrennum. Ef ég fæ tölvupóst óvænt frá einhverjum get ég verið viss um að innan fjögurra daga fæ ég tölvupóst frá tveimur öðrum. Það eru fimm menn sem sjá um að þetta kerfi gangi upp og skipta þessu samviskusamlega á milli sín, hafa gert þetta í tvö ár, en alltaf bara þrír í einu. Sömu mennirnir. Hafa ekki haft hugmynd um hvorn annan fyrr en mögulega.. núna - og í hvert skipti sem ég fæ póst frá einhverjum þeirra reikna ég með að ég heyri aldrei í viðkomandi aftur, því ég er ekkert sérlega.. vinveitt.

Í gær og í dag stimpluðu tveir af þeim sig óvænt inn í pósthólfið mitt, þannig að sá þriðji mun gera vart við sig innan tveggja daga.

Og ég er pretty sure um hver það verður. Hann hefur nefnilega alltaf samband þegar einn af hinum er búinn að hafa samband. Það er eins og hann finni það á sér eða eitthvað.

Mjög skrítið.

Annar af þeim sem er búinn að hafa samband í þessari lotu hefur yfirleitt samband við mig annaðhvort þegar hann er mjög graður eða þegar honum leiðist í vinnunni. Þetta tvennt vill reyndar oft fara saman í hans tilfelli.
Hinn er ruglaður í höfðinu og fékk þá flugu í höfuðið að ég væri sú eina rétta.
Af því hann sá mynd af mér í blaði.
Þessir tveir menn þekkjast ekki, held ég, en vinna á sama stað.

Sá sem hefur alltaf haft samband stuttu eftir að þessi graði hefur haft samband, well... ég veit satt að segja ekki alveg hvað ég á að gera við hann. I'll figure it out - ef hann er ekki búinn að gefast upp.

Ef hann hefur beilað, þá eru tveir eftir. Annar fer voða vel að mér og vill kynnast mér, hinn vill giftast mér og eignast með mér börn.

Ég get víst seint kvartað yfir að hafa ekki úrval. Þetta er samt eins og að fara á veitingastað, fá matseðil með fullt af réttum.. en.. langa eiginlega ekki í neinn þeirra. Það eru tveir réttir sem ég væri til í að prófa.. en þeir eru dýru verði keyptir, enda þyrfti að flytja allt hráefnið sérstaklega inn erlendis frá og ég veit ekki hvort ég hef stomack fyrir svoleiðis. Tveir af réttunum eru bara, ekki að gera mig svanga og eini rétturinn á seðlinum sem ég veit að mér finnst actually mjög góður, hefur svo hryllilega vont aftertaste að maður er að gretta sig vikum saman á eftir. Það hefur eitthvað klikkað verulega þegar sú uppskrift var sett saman - og það virðist ekki standa til að breyta henni.

I'd rather starve.

Segi það ekki. Um daginn datt ég inná nýjan veitingastað og sá rétt sem ég hefði verið til í að.. taka með heim og borða yfir heila helgi.

Nei. Þá er það náttúrlega eitthvað sem er búið að taka af matseðlinum!

Classic.


| anna | 22:37 | send to facebook |
comments

var einmitt að hlæja að litlum manni í gær á pínulitlum eldgömlum dúndí (hyundai) sem var með eftirfarandi stuðborða:
men are like parking spaces, all the good ones are always taken and the ones left are handicapped or too small.

Sá þig einhvernveginn fyrir mér nöldrandi!

Nr. 1 | posted by: LangiSleði | 3.05.2007 | 12:06:45 | [+] |

Þú virkar soldið bitur stundum.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.05.2007 | 12:28:51 | [+] |

Þetta er allt spurning um hugarástand. Þú ert greinilega á þeim staða að allir fráteknu réttirnir eru spennandi en þeir sem eru á matseðlinum ekki. It´s your mind playing with you. Sama þó að guð allra rétta væri standandi fyrir framan þig þá fyndiru einhverja ástæðu til þess að finnast hann ólistugur þegar hugarástandi er ekki rétt.

Nr. 3 | posted by: BavarianJoe | 3.05.2007 | 13:17:18 | [+] |

Þetta er mikill misskiliningur Joe, ég hef aðeins fundið einn rétt sem mig langaði í sem var ekki á matseðlinum.

Það var meira að segja mjög nýlega.

Hvað hugarástandið varðar hefurðu rétt fyrir þér, enda er ég ekki að leita mér að manni þannig lagað þessa dagana/árin.

Ég trúi hinsvegar að rétti maðurinn muni ekki eiga í erfiðleikum með að rata réttu leiðina að hjartanu mínu.

Sú leið liggur hinsvegar ekki í gegnum tölvupóst.

Nr. 4 | posted by: anna | 3.05.2007 | 17:56:45 | [+] |

vá, ég var hálf ringlaður eftir að hafa lesið þetta... varstu ennþá að tala um mat?

Nr. 5 | posted by: Andri.dk | 4.05.2007 | 10:17:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web