www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Not good enough?
Fimmtudagur, 03. maí 2007

Mannlíf komið í hús en það er rangur texti frá mér í blaðinu. Það sem þeir prentuðu er fyrsta draft. Keimlíkt því sem ég skilaði í lokin en ég hefði frekar kosið að hafa réttan texta þarna inni.

Þegar ég sá þetta varð ég fyrst mökk pirruð - en - svo rifjaðist upp fyrir mér svolítið sem ég var að hugsa um daginn. Ég var að hugsa um hvað ég fresta oft að "launch-a" hlutum af því mér finnst þeir ekki vera orðnir nógu góðir. Sumt svæfi ég alveg því mér finnst það ekki nógu gott. Mér fannst galdradúkkurnar t.d. ekki vera "nógu góðar", það voru aðrir sem eiginlega keyrðu það mál áfram fyrst - því staðreyndin var sú að þær voru nógu góðar. Ef einhver annar en ég hefði gert þær hefði mér fundist það líka. Ég er þegar búin að fá mjög jákvætt feedback á greinina þó að um draft sé að ræða. Og frá öðrum en ættingjum.

Ég hef ákveðið að draga lærdóm af þessu og reyna að tileinka mér hæfilegt kæruleysi þegar ég er að búa til hluti eða skrifa. Verð líklega helmingi afkastameiri fyrir vikið.

Magnað.

Hér að neðan er textinn eins og hann átti að birtast, hann er hinsvegar ögn lengri í tímaritinu Mannlífi. Þeir sem vilja sjá hvað fór on the cutting board verða að kaupa blaðið.

hehe

----

Umfjöllun í Mannlífi, minn hluti af "he said" / "she said" um hjónaskilnaði.

Ég held að það gifti sig enginn uppá grín. Áður en ég tók ákvörðunina hafði ég velt vandlega fyrir mér hvort ég væri tilbúin að gefa þetta loforð, og svarið var já. Ég var viss um að grunnurinn sem við höfðum til að byggja á væri sterkur, enda höfðum við verið vinir frá því við vorum í grunnskóla. Ég var auðvitað hrædd, enda er þetta stórt loforð að gefa. Ég taldi mig geta staðið undir því. Það sem ég tók ekki með í reikninginn var að fólk breytist með aldrinum, þroskast og fullorðnast. Í allar áttir. Reynslunni ríkari veit ég í dag að það að fólk hafi sömu markmið í lífinu er traustari grunnur fyrir hjónaband en vinátta.

Að vera fráskilin var ekki eitthvað sem mér fannst spennandi staða í lífinu, fyrr en ég hafði verið gift í nokkurn tíma. Enda stefndum við í sitthvora áttina og það sem hafði tengt okkur í byrjun, vináttan, tærðist upp með hverju árinu. Við bárum gæfu til að skilja áður en vináttan varð að engu.

Það skrítna er að eftir þessa reynslu hef ég öðlast meiri trú á hjónabandið en ég hafði áður. Af því við leituðum okkur hjálpar áður en skilnaðurinn varð þrautalendingin veit ég hvað við gerðum rangt, ég veit hvað vantaði hjá okkur og ég veit líka að ég hef allt sem þarf til að vera aðili að farsælu hjónabandi sem endist ævina á enda. Með rétta manninum.

Í nútíma þjóðfélagi þar sem allir eru á þönum, uppteknir í vinnu eða í ræktinni til að líta vel út gleymist oft að rækta hjónabandið. Allir sem hafa átt plöntu vita að ef hún fær ekki næringu deyr hún. Manneskjur eru ekkert öðruvísi og við þurfum meira en mat til að næra okkur. Við þurfum stuðning og hvatningu. Viðurkenningu og öryggi. Athygli og ást.

Þegar maður er ástfangin er dómgreindin því miður ekki alveg uppá sitt besta og sá sem þú ert ástfangin af hefur mikil völd. Það er gild ástæða fyrir því að þjóðfélagið er fullt af fólki sem þorir ekki að taka sénsinn aftur, það er mjög sárt að standa frammi fyrir því að sá sem þú elskar metur þig ekki að verðleikum, bregst trausti þínu eða hreinlega elskar þig ekki til baka.

Að vera hamingjusamur gerist ekki að sjálfu sér, það kostar tíma og vinnu en með rétta aðilanum skilar sú vinna sér margfalt til baka. Ef þú ert svo heppin að finna einhvern sem hefur þetta óskilgreinda eitthvað sem engin getur lýst með orðum, hæfileikan til að láta þér líða svo vel í hjartanu að þér finnst heimurinn betri staður en áður. Ef þessi manneskja veitir þér jákvæða athygli, hefur raunverulegan áhuga á hver þú ert, vill sömu hluti útúr lífinu og þú, talar við þig, sýnir þér traust, hlýju, virðingu og trúir að þú sért rétt/ur fyrir sig.

Ef þér líður eins, þá ertu komin með grunninn sem hægt er að byggja farsælt hjónaband á.


| anna | 19:20 |
comments

Fallegur texti og eins og talað út úr mínu hjarta! smile

Nr. 1 | posted by: Sigga | 3.05.2007 | 22:01:03 | [+] |

Já, ég ætla að lesa þetta vel áður en ég gifti mig. Enginn er verri þótt hann vökni hins vegar er þaggi. Live on the edge. Farðu í rjómatertukjól og eyddu milljón og skítt með skilnað seinna meir.

Rosa fínt hjá þér, þarft sko ekki að skammast þín fyrir neitt smile

Nr. 2 | posted by: Guðrún | 4.05.2007 | 0:07:32 | [+] |

var að lesa greinina í Mannlífi, stórgott hjá þér wave

Nr. 3 | posted by: baun | 4.05.2007 | 11:39:49 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web