www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í sólina
Miðvikudagur, 23. maí 2007

Við förum í næsta mánuði. Hlakka ekkert lítið til og er að fara með manni sem var ekki með neitt helvítis væl, reddaði húsi, bíl, flugmiðum og málið er dautt. Það eina sem ég þarf að gera er að ganga niður stigann í blokkinni daginn sem við förum út, hann sér um rest.

What a man!

Í gær spurði Bob: "hvað er langt síðan þú varst ein með karlmanni í fríi í tvær vikur?"

Ég gretti mig á meðan ég hugsaði málið. Ætlaði varla að trúa því, en þetta hefur aldrei gerst áður. Ég hef aldrei verið ein með neinum manni í tvær vikur í fríi. Spáið í því. Bob Moran er að hirða prik alveg hægri vinstri sem hafa verið up for grabs en engin hefur haft rænu á að taka. Hann er fyrsti maðurinn sem býður mér til útlanda og fyrsti maðurinn sem mun eyða tveimur vikum með mér í fríi.

Og hann er ekki maðurinn minn.

Hann er mjög spenntur að sjá hvernig þetta fer því hann hefur prófað þetta tvisvar áður, í bæði skiptin með kærustum og í bæði skiptin var það disaster. Sem segir mér að þessi maður hefur balls. En hann passaði líka uppá að húsið sé á tveimur hæðum, með tveimur veröndum og tvennu af öllu svo ef við förum að rífast getum við verið á sitthvorri hæðinni. Ég mun hvort sem er sofa mest megnis í sólinni og finn örugglega einhvern vinalegann til að bera sólarvörn á bakið á mér í næstu húsum - ef illa fer.

Þegar ég sagði Dodda frá þessu varð hann pínu fúll vegna þess að ég verð ekki á landinu þegar hann á afmæli. Amma hans spurði hvort það væri alveg hræðilegt og þá sagði þessi elska. "Nei það er ekkert hræðilegt. Mamma þarf að fá time out." Svo tók hann utanum mig.

Annars er ég að prufa mig áfram með brúnkukrem þessa dagana. Stinka eins og viðbjóður en þar fyrir utan er þetta alveg að gera sig og frekar lítið appelsínugult í gangi (sjá vaxmynd - sem er ekki photoshoppuð). Vinnufélagar mínir hafa náð að skemmta sér þónokkuð síðustu vikur þar sem ég hef mætt til vinnu ýmist eins og litli svarti sambó eða lík, stundum eins og illa air brushed monster. Það er ekki hægt að segja að ég hafi ekki verið búin að vara þau við.

Þegar ég er búin að finna út hvernig er best að gera þetta og þegar ég get meikað það í gegnum daginn án þess að hengja á mig furuilm frá essó mun ég deila með lesendum mínum hvernig maður verður fallega brúnn á hagkvæman hátt heima hjá sér.

Þetta er mjög vísindaleg tilraun, serious and above all.. professional.

--

Gimme, gimme
gimme just a little smile
that its all i ask of you

Gimme, gimme
gimme just a little smile
we got a message for you

Sunshine, sunshine reggae
don't worry
don't hurry
take it easy

Sunshine, sunshine reggae
Let the good wibes
get a lot stronger


| anna | 17:37 |
comments

já fýlan sem kemur af manni með þessu brúnkudóti colgate Ég spreya svona á mig á kvöldin svo ég sofi í gegn um mesta stinkinn (þá sjaldan að ég nota - þegar ég er hætt að sjá mig í speglinum fyrir glæru)

En ferðin hljómar vel...

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 23.05.2007 | 19:41:08 | [+] |

Af hverju í fjandanum er svona vond lykt af þessu? Veit það einhver?

En djöfull verður maður flottur!

Nr. 2 | posted by: anna | 23.05.2007 | 20:08:17 | [+] |

Hey bara nota body lotion med svona smá lit.. ekki brúnkukrem.

Góð lykt og enginn verður appelsínugulur eða röndóttur.


ps. Ef ég ætti ekki heima í 25 stiga hita þá myndi ég alveg öfunda þig af ferðinni 0

Nr. 3 | posted by: Elín | 23.05.2007 | 21:36:34 | [+] |

Hvaða fricking bodylotion er með brúnku OG góðri lykt?

Nr. 4 | posted by: anna | 23.05.2007 | 22:08:38 | [+] |

lyktin er ekki af kremunum heldur efnahvörfunum sem verða í húðinni við að brúnast, sorrí sad

Nr. 5 | posted by: hildigunnur | 23.05.2007 | 23:55:06 | [+] |

GADDEMIT!

En af hverju verður maður þá ekki svona illa lyktandi í sól?

Nr. 6 | posted by: anna | 24.05.2007 | 0:15:56 | [+] |

Dove framleiðir til dæmis svoleiðis... hægt að kaupa útí Hagkaup bara.... skal senda þér linka smile

Nr. 7 | posted by: Elín | 24.05.2007 | 8:47:35 | [+] |

Ja hérna - þú ert sæt. Hafði ekki pælt í því áður.

Það er þó ekki brúnkukremið - held ég.

kv, tobs

Nr. 8 | posted by: Tobbi G. | 24.05.2007 | 20:58:00 | [+] |

Mér finnst vond lykt af Dove kreminu og það er ekki heldur nógu heavy duty fyrir mig.

Svona professionals eins og ég geta ekkert notað svona kettlingakrem! hehe

Ja hérna Tobbi.

Nr. 9 | posted by: anna | 25.05.2007 | 7:24:21 | [+] |

maður verður það, bara í miklu minna mæli

Nr. 10 | posted by: hildigunnur | 28.05.2007 | 22:54:10 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web