www.anna.is
ravings of a lunatic í maí 2007
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
1Q results - New board - New CEO
Þriðjudagur, 01. maí 2007

Í gær bar ég ábyrgð á að koma fréttum og réttum tölulegum upplýsingum inn á vefinn á ensku og ísl fyrir Q1 niðurstöðurnar, hluthafafundinn og stjórnarfundinn.

Af því ég hef aldrei séð um þetta áður datt mér í hug að gera þetta eftirminnilegt svo ég skipti út stjórn og bankastjóra líka. Mönnum brá talsvert, en voru fljótir að bregðast við - enda fast, smart and thorough.

Mér líst vel á nýja manninn í brúnni og finnst bara heimilislegt að hafa Bentley fyrir utan.


| anna | 11:29 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Logic
Miðvikudagur, 02. maí 2007

Þegar ég renndi í hlað hjá Glitni hugbúnaðarlausnum í morgun var bíllinn minn eini bíllinn á planinu. Enda klukkan bara rúmlega sjö. Upplýsingarnar sem ég þurfti biðu mín í tölvupósti ásamt beiðni to "confirm" them. Sem ég gerði.

Serious and professional.

Já, kemur í ljós að ég er ekki að biðja um neitt sem ég er ekki sjálf. Það væri bara ekki eins gaman að lesa bloggið ef ég væri serious and professional hér - svo ég vel að vera það ekki.

Búin að vera hryllilega dugleg í ræktinni undanfarna daga og finn hvernig vöðvarnir eru að ryðja sér rúms í fitunni. Annars fór ég um daginn og keypti mér nýjar gallabuxur.

Það var nefnilega þannig að allar gallabuxurnar mínar, tvær, voru orðnar of litlar á mig - svo ég fór að kaupa mér nýjar. Ég keypti að sjálfsögðu gallabuxur sem voru of litlar á mig - því ég ætlaði að léttast.

That's logic.

wahahahahahaha

Wait for it..

Þetta var um þar síðustu helgi. Síðan þá hef ég grennst, eins og ég vissi að ég myndi gera, því ég fór að hreyfa mig og núna passa ég í gallabuxurnar sem ég keypti of litlar þá. Enda voru þær bara einu númeri of litlar á mig á meðan gömlu eru tveimur númerum of litlar.

Get it?

Þetta er skrifað fyrir alla þá - sem skilja ekki konur.


| anna | 19:40 | permalink | comments (6) | send to facebook |
On the menu
Miðvikudagur, 02. maí 2007

Karlmenn hafa samband við mig í þrennum. Ef ég fæ tölvupóst óvænt frá einhverjum get ég verið viss um að innan fjögurra daga fæ ég tölvupóst frá tveimur öðrum. Það eru fimm menn sem sjá um að þetta kerfi gangi upp og skipta þessu samviskusamlega á milli sín, hafa gert þetta í tvö ár, en alltaf bara þrír í einu. Sömu mennirnir. Hafa ekki haft hugmynd um hvorn annan fyrr en mögulega.. núna - og í hvert skipti sem ég fæ póst frá einhverjum þeirra reikna ég með að ég heyri aldrei í viðkomandi aftur, því ég er ekkert sérlega.. vinveitt.

Í gær og í dag stimpluðu tveir af þeim sig óvænt inn í pósthólfið mitt, þannig að sá þriðji mun gera vart við sig innan tveggja daga.

Og ég er pretty sure um hver það verður. Hann hefur nefnilega alltaf samband þegar einn af hinum er búinn að hafa samband. Það er eins og hann finni það á sér eða eitthvað.

Mjög skrítið.

Annar af þeim sem er búinn að hafa samband í þessari lotu hefur yfirleitt samband við mig annaðhvort þegar hann er mjög graður eða þegar honum leiðist í vinnunni. Þetta tvennt vill reyndar oft fara saman í hans tilfelli.
Hinn er ruglaður í höfðinu og fékk þá flugu í höfuðið að ég væri sú eina rétta.
Af því hann sá mynd af mér í blaði.
Þessir tveir menn þekkjast ekki, held ég, en vinna á sama stað.

Sá sem hefur alltaf haft samband stuttu eftir að þessi graði hefur haft samband, well... ég veit satt að segja ekki alveg hvað ég á að gera við hann. I'll figure it out - ef hann er ekki búinn að gefast upp.

Ef hann hefur beilað, þá eru tveir eftir. Annar fer voða vel að mér og vill kynnast mér, hinn vill giftast mér og eignast með mér börn.

Ég get víst seint kvartað yfir að hafa ekki úrval. Þetta er samt eins og að fara á veitingastað, fá matseðil með fullt af réttum.. en.. langa eiginlega ekki í neinn þeirra. Það eru tveir réttir sem ég væri til í að prófa.. en þeir eru dýru verði keyptir, enda þyrfti að flytja allt hráefnið sérstaklega inn erlendis frá og ég veit ekki hvort ég hef stomack fyrir svoleiðis. Tveir af réttunum eru bara, ekki að gera mig svanga og eini rétturinn á seðlinum sem ég veit að mér finnst actually mjög góður, hefur svo hryllilega vont aftertaste að maður er að gretta sig vikum saman á eftir. Það hefur eitthvað klikkað verulega þegar sú uppskrift var sett saman - og það virðist ekki standa til að breyta henni.

I'd rather starve.

Segi það ekki. Um daginn datt ég inná nýjan veitingastað og sá rétt sem ég hefði verið til í að.. taka með heim og borða yfir heila helgi.

Nei. Þá er það náttúrlega eitthvað sem er búið að taka af matseðlinum!

Classic.


| anna | 22:37 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Not good enough?
Fimmtudagur, 03. maí 2007

Mannlíf komið í hús en það er rangur texti frá mér í blaðinu. Það sem þeir prentuðu er fyrsta draft. Keimlíkt því sem ég skilaði í lokin en ég hefði frekar kosið að hafa réttan texta þarna inni.

Þegar ég sá þetta varð ég fyrst mökk pirruð - en - svo rifjaðist upp fyrir mér svolítið sem ég var að hugsa um daginn. Ég var að hugsa um hvað ég fresta oft að "launch-a" hlutum af því mér finnst þeir ekki vera orðnir nógu góðir. Sumt svæfi ég alveg því mér finnst það ekki nógu gott. Mér fannst galdradúkkurnar t.d. ekki vera "nógu góðar", það voru aðrir sem eiginlega keyrðu það mál áfram fyrst - því staðreyndin var sú að þær voru nógu góðar. Ef einhver annar en ég hefði gert þær hefði mér fundist það líka. Ég er þegar búin að fá mjög jákvætt feedback á greinina þó að um draft sé að ræða. Og frá öðrum en ættingjum.

Ég hef ákveðið að draga lærdóm af þessu og reyna að tileinka mér hæfilegt kæruleysi þegar ég er að búa til hluti eða skrifa. Verð líklega helmingi afkastameiri fyrir vikið.

Magnað.

Hér að neðan er textinn eins og hann átti að birtast, hann er hinsvegar ögn lengri í tímaritinu Mannlífi. Þeir sem vilja sjá hvað fór on the cutting board verða að kaupa blaðið.

hehe

----

Umfjöllun í Mannlífi, minn hluti af "he said" / "she said" um hjónaskilnaði.

Ég held að það gifti sig enginn uppá grín. Áður en ég tók ákvörðunina hafði ég velt vandlega fyrir mér hvort ég væri tilbúin að gefa þetta loforð, og svarið var já. Ég var viss um að grunnurinn sem við höfðum til að byggja á væri sterkur, enda höfðum við verið vinir frá því við vorum í grunnskóla. Ég var auðvitað hrædd, enda er þetta stórt loforð að gefa. Ég taldi mig geta staðið undir því. Það sem ég tók ekki með í reikninginn var að fólk breytist með aldrinum, þroskast og fullorðnast. Í allar áttir. Reynslunni ríkari veit ég í dag að það að fólk hafi sömu markmið í lífinu er traustari grunnur fyrir hjónaband en vinátta.

Að vera fráskilin var ekki eitthvað sem mér fannst spennandi staða í lífinu, fyrr en ég hafði verið gift í nokkurn tíma. Enda stefndum við í sitthvora áttina og það sem hafði tengt okkur í byrjun, vináttan, tærðist upp með hverju árinu. Við bárum gæfu til að skilja áður en vináttan varð að engu.

Það skrítna er að eftir þessa reynslu hef ég öðlast meiri trú á hjónabandið en ég hafði áður. Af því við leituðum okkur hjálpar áður en skilnaðurinn varð þrautalendingin veit ég hvað við gerðum rangt, ég veit hvað vantaði hjá okkur og ég veit líka að ég hef allt sem þarf til að vera aðili að farsælu hjónabandi sem endist ævina á enda. Með rétta manninum.

Í nútíma þjóðfélagi þar sem allir eru á þönum, uppteknir í vinnu eða í ræktinni til að líta vel út gleymist oft að rækta hjónabandið. Allir sem hafa átt plöntu vita að ef hún fær ekki næringu deyr hún. Manneskjur eru ekkert öðruvísi og við þurfum meira en mat til að næra okkur. Við þurfum stuðning og hvatningu. Viðurkenningu og öryggi. Athygli og ást.

Þegar maður er ástfangin er dómgreindin því miður ekki alveg uppá sitt besta og sá sem þú ert ástfangin af hefur mikil völd. Það er gild ástæða fyrir því að þjóðfélagið er fullt af fólki sem þorir ekki að taka sénsinn aftur, það er mjög sárt að standa frammi fyrir því að sá sem þú elskar metur þig ekki að verðleikum, bregst trausti þínu eða hreinlega elskar þig ekki til baka.

Að vera hamingjusamur gerist ekki að sjálfu sér, það kostar tíma og vinnu en með rétta aðilanum skilar sú vinna sér margfalt til baka. Ef þú ert svo heppin að finna einhvern sem hefur þetta óskilgreinda eitthvað sem engin getur lýst með orðum, hæfileikan til að láta þér líða svo vel í hjartanu að þér finnst heimurinn betri staður en áður. Ef þessi manneskja veitir þér jákvæða athygli, hefur raunverulegan áhuga á hver þú ert, vill sömu hluti útúr lífinu og þú, talar við þig, sýnir þér traust, hlýju, virðingu og trúir að þú sért rétt/ur fyrir sig.

Ef þér líður eins, þá ertu komin með grunninn sem hægt er að byggja farsælt hjónaband á.


| anna | 19:20 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Ef þetta kreistir ekki fram bros..
Föstudagur, 04. maí 2007


| anna | 14:41 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Reinemachefrau
Sunnudagur, 06. maí 2007

Var í morgunkaffi hjá mömmu og sagði henni m.a. frá áformum mínum. Þessum sem munu gera mig auðuga.

Hún lyftist öll á loft, sagði að hún hefði verið hjá spákonu fyrir löngu síðan sem sagði að ég myndi verða farsæl viðskiptakona sem myndi eyða miklum tíma erlendis. Bíddu, bíddu, bíddu, sagði ég. Þú varst búin að segja mér frá þessari spákonu og ég man ekki betur en að hún hafi sagt að ég myndi læra sálfræði og gerast sálfræðingur?

Mamma hló. Nei, hún sagði reyndar að eldri dóttir mín yrði farsæl viðskiptakona sem myndi eyða miklum tíma erlendis en sú yngri yrði sálfræðingur. Þegar ég tók með í reikninginn þá staðreynd að þú hefur aldrei haft nokkurn einasta áhuga á peningum á meðan systir þín hefur alltaf verið meðvituð um hvað þeir skipta miklu máli, var ég viss um að konan hefði ruglast - og þú yrðir sálfræðingurinn og hún viðskiptakonan. En miðað við það sem þú varst að segja mér, þá hafði konan rétt fyrir sér eftir allt saman.

Áhugavert. Ég trúi samt ekki á spákonur. Þetta hefur verið fluke.

Þegar ég kom til mömmu hafði hún orð á því hvað ég liti vel út. Alveg sama hvert ég fer þessa dagana, fólk hefur orð á hvað ég líti vel út og nú veit ég af hverju. Það er vegna þess að allar pabbahelgar kemur hingað ung pólsk kona sem þrífur íbúðina mína.

Að hugsa sér. Öll þessi ár hafði ég ekki hugmynd um að það sem myndi gera mig raunverulega hamingjusama væri kona sem kæmi og þrifi íbúðina mína tvisvar í mánuði. Hún vændi mig um að þrífa sjálf þegar hún kom í gær "it is so clean, you have cleaned?"

No no no no no no, I do not clean, no no, no cleaning, no no.

Hún gerir þetta bara svo vel að það endist í tvær vikur.

Jæja, má ekki vera að þessu, ætla að fara inní eldhús að spegla mig í stálvaskinum...


| anna | 11:52 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Third Time's a Charm?
Þriðjudagur, 08. maí 2007

Ég hélt að hann væri hættur, því það voru liðnir meira en tveir dagar síðan sá graði sendi póst - en þessi þriðji var mættur í inboxið mitt í morgun.

Það sem hann sendi mér finnst mér ferlega fyndið. Hann er nefnilega frekar fúll maður og alvarlegur, og þess vegna dó ég nærri úr hlátri þegar hann sendi mér þetta. Hann notaði mynd af sér þar sem hann er verulega fúll á svipinn, sem gerir þetta ennþá fyndnara. Hann veit líka alveg hvernig menn ég vil. Þar sem ég kann ekki við að birta myndina af honum notaði ég mynd af Jude Law þar sem hann er bloody annoyed á svipinn, til að þið fengjuð taste.

(Strákar. Ef þið viljið koma konunni í gott skap, sendið henni svona með mynd af ykkur.)

loveandkisses1.jpg

Á meðan ég var að hlæja datt mér í hug að líklega er þessi maður allt sem ég þarf. Alvarlegur, samt með beittan lúmskan húmor og þetta sannar að hann hefur það sem má ekki vanta: húmor fyrir sjálfum sér. Ógeðslega klár, flottur í laginu..

En ég má ekki vera að því að hugsa um karlmenn núna þegar eiginmannsígildi mitt, Glitnir, á hug minn allan. Eina mínútu yfir tólf á miðnætti settist ég uppí bílinn minn til að fara heim úr vinnunni.

Þetta er búið að vera hrikalega gaman - and I just can't get enough.


What a week I'm having
Fimmtudagur, 10. maí 2007

Á þriðjudaginn fékk ég tilboð sem ég gat ekki hafnað - svo ég tók því.

Á miðvikudagsmorgun sagði ein af lykil manneskjunum í mínum lífi mér leyndarmál og ég fékk alveg nýja sýn á ákveðið mál. Ég held að það sé ekki hægt að vera heppnari með börn en ég er.

Ég er búin að vera meira og minna hjá eiginmannsígildi mínu þessa viku, fram á kvöld og nótt og ef þetta heldur svona áfram styttist í að litlir glitnar fari að trítla um sali bankans.

Bankabörn. Hálf mennsk.

Í dag var kvittað undir ákveðna pappíra.

He is ready to commit.


| anna | 18:32 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Risessa í miðbæ Reykjavíkur
Föstudagur, 11. maí 2007

Í morgun skrapp ég úr vinnunni, fór í Melaskóla, kippti syni mínum úr tíma og fór með hann sem leið lá í Hljómskálagarðinn. Þegar við nálguðumst Hljómskálann heyrðum við svakalegar hrotur og sáum að uppá skálanum svaf svakalega stór risa stelpa sem mér skilst að sé risessa. Þarna lá hún í sólstól, steinsofandi. Doddi spurði af hverju hún væri sofandi og klukkan rúmlega tíu, ég sagði honum að líklega væri hún bara lítið stórt letidýr.

Þegar hún vaknaði, blikkaði hún augunum og horfði smá í kringum sig, áður en hún stökk ofanaf þakinu og skellti sér í hressandi morgungöngu innanum fjölmarga Íslendinga sem voru mættir til að fylgjast með ferðum hennar.

VÁ HVAÐ ÞETTA VAR MAGNAÐ!

Það er engin annar en eiginmannsígildi mitt, Glitnir, sem er samstarfsaðili götuleikhússins Royal de Luxe frá Frakklandi sem sér um að setja þetta magnaða ævintýri á svið í miðbæ Reykjavíkur og ég hvet fólk að fara og kíkja á hana í dag og/eða á morgun.

Ég er ekki lítið vel gift. Myndir og myndskeið frá því í morgun á mbl.is.

Forsaga málsins er þessi:

"Á leiðangri sínum uppgötvar Fornleifastofnun Frakklands goshver undir götum Reykjavíkurborgar. Leiðangursmenn rekast þá á sofandi risa sem hefur legið í dvala undir borginni í hundrað ár. Þegar ró risans er raskað lætur hann öllum illum látum og eyðileggur nálæga bíla með tröllvöxnum hnífapörum sínum. Yfirvöld setja sig í samband við dóttur risans, risessuna, og biðja hana um að koma til Reykjavíkur að róa almenning. Hún dvelst í borginni í tvo daga og reynir að tæla föður sinn í átt að höfninni. Hvernig lýkur sögunni?"


Prómóið þetta algjör snilld. Búið að reka strætisvagn í gegn með risa hníf í Lækjargötunni og í gær sá ég að smábíll hafði verið rekinn í gegn með gaffli við Sæbrautina. Mjög töff.

Ég frétti síðast af ferðum Risessunnar þegar hún lagði sig klukkan eitt við Hallgrímskirkju. Hún fer aftur af stað klukkan þrjú.

Föstudagur 11. maí

15.00 heldur hún aftur af stað frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg, upp Laugaveg, Snorrabraut og gengur eftir Sæbrautinni að hafnarbakkanum en þar mun hún leggjast til svefns.

Laugardagur 12. maí

10.30 Risessan vaknar á hafnarbakkanum og fer í sturtu. Hún gengur inn á Ingólfstorg, Aðalstræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg þar sem hún hittir fyrir risann um kl. 11.30.

15.00 Lokagangan hefst frá Lækjartorgi, upp Hverfisgötuna, Snorrabraut, Sæbraut og að hafnarbakkanum þar sem lokaatriðið hefst um kl. 17.00.

--

Ég ætla aftur klukkan þrjú.


| anna | 12:54 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Í vímu
Föstudagur, 11. maí 2007

Ég ætlaði að blogga um eitthvað, en ég man ekki hvað það var. Var að hugsa um það á brettinu í Laugum áðan.

Djöfull er ég búin að vera skuggalega dugleg.

En eins og ég sagði - man ekki hvað ég ætlaði að skrifa um. Er bara í endorfín rússi hérna við vélina, búin að taka út statusinn á rassi, maga og lærum og þetta er stórglæsilegt. Appelsínuhúð á undanhaldi, enda keypti ég appelsínuhúðadrepikrem um daginn. Auk þess er appelsínuhúð búin til úr fitu, síðast þegar ég vissi, og allt svoleiðis er á hröðu undanhaldi.

Vá hvað það er gott að djöflast svona. Ahhhhhhhh...

Líklega ætlaði ég að skrifa um hvað mér finnst þetta Risessu dót magnað, af því ég fór að hugsa um hvaða eldhugi kom þessari hugmynd á koppinn. Sé þetta fyrir mér:

"Já hæ. Heyrðu.. þú átt fullt af peningum og mig langar að búa til riiiiisa stóra strengjabrúðu sem er nokkur tonn og það þarf krana og tíu manns minnst til að stjórna og svo ætla ég að ferðast um heiminn og setja á svið ævintýri með þessum brúðum í hinum og þessum borgum og fólk mun koma og fylgjast með og heillast. Ertu til í að fjárfesta í þessari hugmynd?"

Þetta hljómar insane, en er in fact snilldar hugmynd. Maður heillast gjörsamlega og ég veit ekki af hverju. Kannski bara af því einhverjum datt í hug að gera þetta. Kannski af því barnið í manni finnst gaman að sjá í alvöru hvernig það er að hafa risa í borginni sinni. Ég veit það ekki. Veit ekkert núna, er bara í vímu - en ég er mjög þakklát þeim gerði þessa hugmynd að veruleika.

En kannski er ég bara heilluð því ég trúi á ævintýri. Hlakka ekkert lítið til á morgun, veit einhver hvort pabba risinn mætir á svæðið í alvöru? Shit, ég er eins og krakki að drepast úr spenningi. Ætla að setja plástur á þessa blöðru og fara að sofa svo ég verði úthvíld þegar ég kíki á risessuna og risapabbann á morgun.

Mér finnst þetta svo sæt saga - enda er ég veik fyrir mönnum sem eru frekar erfiðir í skapinu.

Sem þessi risi virðist klárlega vera.


| anna | 23:32 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Enginn nógu góður til að stjórna landinu
Laugardagur, 12. maí 2007

Þórarinn Þórarinsson, 8 ára

Doddi

Hluti úr viðtali sem tekið var við son minn og birtist í Fréttablaðinu í dag:

Hvað finnst þér að stjórnmálamenn eigi að gera fyrir fólkið í landinu?
Ég vil ekkert láta fullt af fólki gera eitthvað fyrir mig. Ég þarf ekkert svoleiðis. En það vantar rólur hjá Melaskóla. Þar er kastali og klifurgrind og eitthvað dót sem snýst. Mér finnst líka mjög pirrandi að það er búið að byggja þrjá ljóta kofa á Melaskóla. Mér og Jóni* finnst það skemma Melaskólann. Þeir geta tekið kofana og sett rólur í staðinn.

Lesa allt viðtalið
--
Ármann neglir þetta á blogginu sínu.

Nokkrum blaðsínum framar í blaðinu er mynd af pabba hans sem ber sama nafn, og var nefndur einn besti bloggari landsins, hvorki meira né minna - enda magnaður penni þar á ferð.

* Doddi kom af fjöllum þegar hann las þetta, "Jón hvað? Ha? Ég sagði Jóhanna".


| anna | 21:30 | permalink | comments (7) | send to facebook |
Körfubolti og kvikmynd
Mánudagur, 14. maí 2007

Þetta er úr mynd sem ég var að horfa á frá árinu 1985.

Í kvöld fór ég með krökkunum útí Melaskóla og við spiluðum körfubolta.

Það þarf ekki mikið til að ég nái upp góðri snerpu, það er ljóst.
Ég þarf hinsvegar að læra að hitta í helv andsk djöf körfuna.

vanity.jpg

"You sure look like a master to me"
[Þetta er alvöru 80's túbering - og hvað mig langaði að hafa svona hár - jesús]

shonuff.jpg

"Kiss my Converse!"
[Sho'nuff having one of his chronic bad-hair days]

familiar.jpg

Þekkiði þennan? Töff jakki sem hann er í, eh..

Kom mér verulega á óvart hvað þessi mynd eldist vel.

--
Did you do this just to please me?


| anna | 23:56 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Why I'd rather be alone
Fimmtudagur, 17. maí 2007

| anna | 21:49 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Sweet dreams (are made of this)
Föstudagur, 18. maí 2007

Anna says: ég er að fara út í eina viku
Anna says: til að sofa í sólinni
*censored* says: heitasta...
Anna says: kem endurnærð heim
*censored* says: dísus
*censored* says: hnipptu í mig ef þig vantar félagsskap á sólarströnd
Anna says: ég vil bara sofa í sólinni
Anna says: helst á verönd fyrir framan húsið mitt
Anna says: ekki við sundlaug eða þannig
Anna says: og ekki á strönd
Anna says: nenni ekki að vera með sand á stöðum sem ég vissi ekki að ég hefði staði
Anna says: bara ein og í friði
Anna says: svalir myndu líka virka
Anna says: sofa í sólinni
Anna says: sofa á nóttunni
Anna says: og sofa í sólinni
Anna says: borða kannski
Anna says: tvisvar
Anna says: en annars bara sofa
Anna says: í sólinni
Anna says: ekki að fara neitt
Anna says: nema útí búð
Anna says: að kaupa vatn eða ís
Anna says: ekki versla neitt
Anna says: ekki gera neitt
Anna says: ekki skoða neitt
Anna says: bara sofa
Anna says: og
Anna says: svo myndi ég sofa í flugvélinni á leiðinni heim
Anna says: hahahaha
Anna says: DRAUMAferðin
*censored* says: lol, ég elska þig
*censored* says: smile
*censored* says: og þekki alveg staðinn, rakst á hann í Kaliforníu síðasta sumar
Anna says: hvað heitir hann?
Anna says: sleepy walley
*censored* says: ef ég myndi það hefði ég nefnt hann á nafn
*censored* says: rifja það upp einhverntíman, þetta var lítil strönd í Kaliforníu, við lítinn smábæ, þar sem litlir hundar komu til manns.
Anna says: já
Anna says: ég vil þannig
Anna says: lítill bær
Anna says: þar sem helst engin býr
Anna says: og hús
Anna says: og sólstóll
Anna says: og sól
Anna says: og ég
Anna says: sofandi
*censored* says: við fórum á lítinn stað og átum litla máltíð frá afar litlu og vingjarnlegu fólki
Anna says: ekkert fólk
Anna says: bara sól
*censored* says: kommon
Anna says: jú
Anna says: það má vera eitt fólk
Anna says: til að bera á bakið á mér
Anna says: annars ekkert fólk
*censored* says: eitt fólk til að bera á bakið
Anna says: en ég finn örugglega leið til að bera á bakið á mér
Anna says: sjálf
Anna says: jafnvel á meðan ég er sofandi


| anna | 19:38 | permalink | comments (0) | send to facebook |
The Glow
Föstudagur, 18. maí 2007

theglow.jpg

Bruce Leroy búinn að finna "the glow", þegar hann fattaði að hann er meistarinn, ekki Sho'nuff. Það var smá tímabil þar sem þetta var vinsælt - a.m.k. í tveimur bíómyndum - að lita útlínur fólks. Ég man að þetta skemmdi The Last Dragon myndina fyrir mér, fannst þetta glatað. Þegar ég horfi á myndina í dag finnst mér þetta soldið sætt.

Hin myndin sem þetta var notað í (og ég veit um) er stórmyndin Xanadu.

xanadu.jpg

Þetta er bíó. In real life virðist hefð fyrir því að ófrískar konur séu einu manneskjurnar sem fá eitthvað glow og um daginn var ég í boði hjá Visa þegar ég var spurð hvort ég væri ófrísk. Konan sem spurði sagðist sjá öll merkin. Stærri brjóst, þrýstnar varir, the glow - og svo var ég ekki að drekka.

Ég sprakk úr hlátri. Brjóstin á mér stækka þegar ég fitna, og ég hef fitnað síðan ég byrjaði að vinna hjá Glitni. Varirnar á mér eru bara svona, ég var edrú af því ég var að fara aftur í vinnuna seinna um kvöldið en..

theglow.png

..ég get ekki þrætt fyrir the glow.

Það á sínar eðlilegu skýringar - ég er búin að vera að borða plútoníum.


| anna | 23:19 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Mr Deity
Laugardagur, 19. maí 2007

mrdeity.png

Just in case ef allir sem fara hingað inn hafa ekki nú þegar kynnt sér þessa snilld, þá er það skylda. Ef þú trúir á Guð - for real - skaltu bara skreppa í messu í staðinn eða eitthvað.

Talandi um trú. Þegar ég horfði á The Last Dragon um daginn, og fékk þetta líka netta nostalgíukast, skrapp ég á netið að leita að henni Vanity.

Kemur í ljós að loksins á ég eitthvað í alvöru sameiginlegt með þessari konu sem mér fannst svo æðisleg. Ef þið kíkið á síðuna hennar þá fattiði hvað ég á við - þurfið ekki að bíða eftir að öll herlegheitin lódist, ég er bara að tala um setninguna sem birtist fyrst.

Við erum reyndar ekki að tala um sama hlutinn, en hver lætur þannig smáatriði þvælast fyrir sér?


| anna | 11:27 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Bob Moran strikes again
Laugardagur, 19. maí 2007

Bob Moran says: hvert ertu að fara út ?
Anna says: ég er að hugsa um að fara til kanarí
Anna says: eða bara einhvert þar sem er sól, ætla að ákveða það eftir helgi
Anna says: langar að fara í slökun
Bob Moran says: ekkert búin að ákveða ?
Anna says: nei
Bob Moran says: ein?
Anna says: fyrst ætlaði ég að taka krakkana með
Anna says: en svo vill stelpan ekki fara með ellismellinum mömmu sinni
Anna says: ekki fer ég með dodda ein, honum myndi bara leiðast, svo mér datt í hug að taka vin hans með
Anna says: en þá er þetta nákvæmlega ekkert frí fyrir mig og ég _þarf_ frí
Anna says: svo ég ákvað að fara ein
Bob Moran says: þú hefur gott af því
Bob Moran says: það er svo mikið að gera í bankanum að ég er ekki einusinni farinn að spá í frí
Bob Moran says: varð að fresta Cannes
Anna says: það er svona að vera sérfræðingurinn
Bob Moran says: ætti að gauka því að þeim að þeir ætti að splæsa á mig vikufríi í sólinni f. 2 að launum...
Anna says: úú hvernig væri það hehe
Anna says: ég þarf akkúrat einhvern til að bera sólarvörn á bakið á mér!
Anna says: (og þú einhvern til að bera á þig - væntanlega)
Anna says: smile
Bob Moran says: líkast til jú er samt svo dökkur að sól er ekki vandi f. mig, nema bara fyrstu 2 dagana
Bob Moran says: veistu.. ég er alveg til í að skella mér með þér í vikuferð
Bob Moran says: þú ert svo problem frí
Anna says: hahaha
Anna says: nennirðu að liggja og gera ekkert í viku?
Bob Moran says: já ef Londonferðin er eitthvað til að miða við, þá efa ég ekki að við gætum gert gott úr afslöppunarferð í sólina
Bob Moran says: já, ég nenni því
Bob Moran says: ég er með smá hugmynd
Bob Moran says: þú veist að *censored* á 2 sumarhús á spáni ?
Anna says: ha nei
Anna says: í alvöru?
Bob Moran says: já
Anna says: mig nefnilega langar ekki á strönd
Anna says: mig dreymir um að vera með verönd
Bob Moran says: sjáðu: *link censored*
Bob Moran says: eldra húsið..
Bob Moran says: 2 verandir
Anna says: omg
Bob Moran says: netsamband svo einhver getur bloggað þarna hehe
Anna says: vá
Anna says: þetta er klikkað
Bob Moran says: og nýja húsið er enn flottara
Anna says: shiii
Bob Moran says: gætum leigt bíl, slakað á og skoðað okkur um ef þú nennir
Anna says: hey
Anna says: eigum við að vera í tvær vikur?
Bob Moran says: hehe
Anna says: kanntu að grilla?
Bob Moran says: kann ég að grilla?
Bob Moran says: pifft
Anna says: hvenær förum við?
--

Já. Stórmerkilegt. Þetta er líklega í fyrsta skipti ever sem ég fæ jákvætt feedback frá karlmanni fyrir að vera laus við vesen. Svo það er actually til maður sem kann að meta þannig konu. Gefur mér von, hélt að þeir væru ekki til, satt að segja. Mín reynsla er nefnilega að þegar ég er ekki með vesen reyna menn allt hvað þeir geta til að búa til vesen eða fá vesen og drama frá mér. Annars leiðist þeim. Karlmenn geta nefnilega verið dramadrottningar dauðans.

Bob Moran kemur ekki fram við mig eins og bjáni. Það er þess vegna sem það er ekkert ves. Þetta er ekki svo ýkja flókið. Hugsið ykkur, það tekur suma menn þrjátíu og fimm ár eða jafnvel fleiri að fatta þetta og allan þann tíma væla þeir yfir því að allar konur séu geðveikar. Ekki það, ég veit alveg að það eru til svo ruglaðar konur þarna úti að það mætti kalla þær geðveikar og sumar eru það jafnvel. Það sem ég hef aldrei skilið er þegar þessir menn finna konu sem er ekki geðveik, virðast þeir reyna allt hvað þeir geta til að gera hana geðveika.

Spes.

Ætti ég annars að vara hann við og segja honum núna að ég vil vera berbrjósta í sólbaði - eða á ég bara að leyfa honum að komast að því, the hard way..


| anna | 20:20 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Awwww
Laugardagur, 19. maí 2007

Ég var að fá svo sætt símtal.

"Hæ, heyrðu.. við erum á leiðinni á djammið og við ætluðum að tékka á hvort þú vilt koma og hitta okkur".

tíhíhí

Af hverju í fjandanum ætti ég að blúsa yfir því að eiga ekki einn mann þegar ég er gift banka sem inniheldur yfir 800 stykki sem eru í þokkabót allir í jakkafötum.

Hello?


| anna | 20:53 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Hringitónar
Sunnudagur, 20. maí 2007

Gallinn við að hafa lag sem manni finnst flott sem hringingu er að maður hættir eiginlega að svara símanum.

Þarf reyndar ekki endilega að vera galli..


| anna | 21:44 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Auðar dagur
Sunnudagur, 20. maí 2007

Anna náttúrubarn

Það er svo mikilvægt að halda kúlinu - við allar aðstæður - alltaf.

hehehe


| anna | 23:46 | permalink | comments (3) | send to facebook |
You got mail
Mánudagur, 21. maí 2007

Ég skildi aldrei fólk sem vill fá tölvupóstinn í símann sinn - þangað til ég fór að fá tölvupóstinn minn í símann sjálf.

Ég hefði hreinlega ekki trúað hvað þetta er þægilegt, og að hafa dagbók sem er sync-uð við símann er nú bara tóm snilld. Staðan í mínu lífi er þannig, að ef ég er spurð hvort ég geti gert þetta eða hitt, þennan eða hinn daginn, þá spyr ég símann minn og ef hann segir að ég sé ekkert að gera bóka ég mig og þarf ekki að hugsa um það meir. Stuttu áður en ég á að fara eða gera það sem þarf að gera pípir síminn á mig og lætur mig vita. Með þessu hef ég minnkað smámál sem ég þarf að muna eftir um heil 40% og get nýtt höfuðið á mér til að hugsa um annað. Þetta skilar sér þvílíkt, maður nær að skipuleggja sig betur og gera það sem maður ætlaði að gera.

Ætla ekki að fara útí hvað ég er búin að gera mikið frá því ég fékk svona fullkominn síma, það er nú bara þvæla - því ég var frekar afkastamikil fyrir.

Þetta hefur einnig haft aðra breytingu í för með sér. Ég nota persónulega tölvupóstinn minn miklu minna í dag en ég gerði og spái því að það sé ekki langt í að sá dagur renni upp sem ég tékka hreinlega ekkert á póstinum mínum þar enda er ég farin að beina öllum mínum tölvupóstsamskiptum í gegnum netfangið sem ég fæ í símann.

Á reyndar eftir að tékka hvort síminn geti höndlað tvo póst accounts.

Ef ekki, þá eru þetta merk tímamót í mínu lífi. Ég fékk mér jú anna.is upprunalega til þess eins að geta átt netfangið anna (at) anna.is.

Merkilegt. Ég hafði svo mikla fordóma gagnvart svona símum og var viss um að fólk myndi deyja úr stressi með þetta kvikindi pípandi á sig alla daga og nætur. Nú þegar ég hef prófað sjálf átta ég mig á því að þetta actually minnkar stress því nú man ég allt, er aldrei tvíbókuð og með því að bóka sig ekki of þétt er ég aldrei of sein!

Vá. Þetta er uppþvottavélin all over again!


ALBEEEEEEEEEEEERT!
Mánudagur, 21. maí 2007

Albert gæti orðið að veruleika eftir kannski þrjú ár!

Það hlaut auðvitað að koma að því að vísindamenn fyndu lausn á þessu hvimleiða vandamáli sem ofnæmi er. Ég reiknaði bara ekki með að það yrði in my lifetime.

Voff.


| anna | 20:53 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Í sólina
Miðvikudagur, 23. maí 2007

Við förum í næsta mánuði. Hlakka ekkert lítið til og er að fara með manni sem var ekki með neitt helvítis væl, reddaði húsi, bíl, flugmiðum og málið er dautt. Það eina sem ég þarf að gera er að ganga niður stigann í blokkinni daginn sem við förum út, hann sér um rest.

What a man!

Í gær spurði Bob: "hvað er langt síðan þú varst ein með karlmanni í fríi í tvær vikur?"

Ég gretti mig á meðan ég hugsaði málið. Ætlaði varla að trúa því, en þetta hefur aldrei gerst áður. Ég hef aldrei verið ein með neinum manni í tvær vikur í fríi. Spáið í því. Bob Moran er að hirða prik alveg hægri vinstri sem hafa verið up for grabs en engin hefur haft rænu á að taka. Hann er fyrsti maðurinn sem býður mér til útlanda og fyrsti maðurinn sem mun eyða tveimur vikum með mér í fríi.

Og hann er ekki maðurinn minn.

Hann er mjög spenntur að sjá hvernig þetta fer því hann hefur prófað þetta tvisvar áður, í bæði skiptin með kærustum og í bæði skiptin var það disaster. Sem segir mér að þessi maður hefur balls. En hann passaði líka uppá að húsið sé á tveimur hæðum, með tveimur veröndum og tvennu af öllu svo ef við förum að rífast getum við verið á sitthvorri hæðinni. Ég mun hvort sem er sofa mest megnis í sólinni og finn örugglega einhvern vinalegann til að bera sólarvörn á bakið á mér í næstu húsum - ef illa fer.

Þegar ég sagði Dodda frá þessu varð hann pínu fúll vegna þess að ég verð ekki á landinu þegar hann á afmæli. Amma hans spurði hvort það væri alveg hræðilegt og þá sagði þessi elska. "Nei það er ekkert hræðilegt. Mamma þarf að fá time out." Svo tók hann utanum mig.

Annars er ég að prufa mig áfram með brúnkukrem þessa dagana. Stinka eins og viðbjóður en þar fyrir utan er þetta alveg að gera sig og frekar lítið appelsínugult í gangi (sjá vaxmynd - sem er ekki photoshoppuð). Vinnufélagar mínir hafa náð að skemmta sér þónokkuð síðustu vikur þar sem ég hef mætt til vinnu ýmist eins og litli svarti sambó eða lík, stundum eins og illa air brushed monster. Það er ekki hægt að segja að ég hafi ekki verið búin að vara þau við.

Þegar ég er búin að finna út hvernig er best að gera þetta og þegar ég get meikað það í gegnum daginn án þess að hengja á mig furuilm frá essó mun ég deila með lesendum mínum hvernig maður verður fallega brúnn á hagkvæman hátt heima hjá sér.

Þetta er mjög vísindaleg tilraun, serious and above all.. professional.

--

Gimme, gimme
gimme just a little smile
that its all i ask of you

Gimme, gimme
gimme just a little smile
we got a message for you

Sunshine, sunshine reggae
don't worry
don't hurry
take it easy

Sunshine, sunshine reggae
Let the good wibes
get a lot stronger


Mr Shine
Miðvikudagur, 23. maí 2007

Vinur minn sendi mér mynd af sér, sagði að konan hefði verið soldið fúl útí sig um daginn þegar hann vildi ekki skúra. Stuttu síðar sendi hann mér mynd þar sem hann hafði photoshoppað mig og hann saman.

Mér fannst ég ekki hafa nógu illilegt - serious og professional boxnafn, svo ég breytti því...


| anna | 19:45 | permalink | comments (4) | send to facebook |
777 - skál!
Föstudagur, 25. maí 2007

skal.jpg

0 No read, no write, no execute: ---
1 No read, no write, execute: --x
2 No read, write, no execute: -w-
3 No read, write, execute: -wx
4 Read, no write, no execute: r--
5 Read, no write, execute: r-x
6 Read, write, no execute: rw-
7 Read, write, execute: rwx


It's a kind of magic
Föstudagur, 25. maí 2007

Af ástæðum sem verða ekki gefnar upp hér tók ég leigubíl í vinnuna í morgun þegar ég var búin að taka á móti konunni sem þrífur íbúðina mína. Leigubílstjórinn spurði hvort ég ynni í bankanum og ég sagði já. Veit ekki af hverju, en hann sagði: "Þú ert galdrakona".

I am.

Í morgun var ég með svo mikið glow þegar ég mætti í vinnuna að það fer að verða erfitt að halda því fram að ég sé ekki ófrísk. Trúir mér enginn þegar ég segi að leyndarmálið á bak við þetta glow sé þessi kona sem þrífur heima hjá mér - þannig að ég er farin að gefa upp aðra skýringu.

Ken vaknaði til lífsins í gær og kynlíf fer mér bara svona vel.

Annars langar mig að kynna stutt brot úr óskarsverðlaunamyndinni
"Meðvirki mottu-maðurinn". Framleiðandi er engin annar en Seagal sjálfur, ókrýndur kóngur Bollywood mynda á 21. öldinni. Maðurinn er snillingur.

Enjoy.


| anna | 10:20 | permalink | comments (2) | send to facebook |
An Officer And Environmentalist
Föstudagur, 25. maí 2007

| anna | 15:07 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Anna - v. 35.9
Sunnudagur, 27. maí 2007

Ég var í matarboði um helgina. Þetta er svona klassískur para matarklúbbur en ég fæ að vera með. Ferlega skemmtilegt fólk og það var æðislega gaman. Á einhverju tímabili fórum við að ræða um Desperate Housewives - sem ég er komin langt á eftir með. Þarf að fara að drullast til að horfa á sjónvarpið en það er önnur saga.

Þegar ég spurði stelpurnar hverja af þeim ég minnti þær á sögðu þrjár þeirra í kór "Mrs. Solice".

MRS SOLICE!

Ég átti ekki til orð. Það má teljast ljóst að ekki gifti ég mig til fjár, ekki hef ég unnið fyrir mér sem fyrirsæta og langar ekki til þess, ég er ekki jóga sjúklingur og ég þrífst ekki á að kaupa mér föt og skartgripi. Enda var það ekkert ástæðan fyrir því að þær voru á þessari skoðun - nei... kom á daginn að þær sjá mig allar fyrir sér.. MISNOTA UNGAN FLOTTANN GARÐYRKJUMANN!

Ma - ma - ma bara..

Ég er auðvitað engin Mrs. Solice og eins og karlmennirnir í matarklúbbnum bentu á er frekar erfitt fyrir mig að misnota karlmenn með því að sofa hjá þeim.

Veit ekki hvaða týpu úr Desperate Housewives ég líkist mest, þær eru svo ýktar að ég held að það sé ekki hægt að vera nein af þeim. En hvað týpur varðar þá er ég löngu hætt að vera dased and confused því ég veit nákvæmlega hvað ég vil.

Svo ég hef skipt myndinni á anna.is sem ég hef kallað "dased and confused" út fyrir mynd sem ég kalla: "don't waste my time"


| anna | 21:20 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Þegar maður er single..
Mánudagur, 28. maí 2007

..er gott að rifja upp hvernig það er að eiga kærasta from time to time..

Anna says: I DO
*censored* says: I DO NOT
*censored* says: but i like you
Anna says: are we arguing?
*censored* says: YES
Anna says: darnit
*censored* says: BITCH
*censored* says: COW
Anna says: and we can't have makeup sex
Anna says: BASTARD
Anna says: ASSHOLE
*censored* says: CUNT!!
Anna says: O
Anna says: M
Anna says: G
Anna says: DID YOU JUST CALL ME A CUNT !
*censored* says: yes i did
Anna says: you...
*censored* says: bring it girl
Anna says: YOU PIECE OF..
Anna says: SHIT!!!!
*censored* says: see, there's no coming back from that one
Anna says: is cunt the worst?
*censored* says: cunt is as bad as it gets
*censored* says: and i went there first
Anna says: you did
Anna says: asshole
*censored* says: bad me
*censored* says: now we *really* have to work hard at the makeup sex
Anna says: no shit
*censored* says: i'll have to sh*g you harder than ever now
Anna says: promises, promises..
*censored* says: hehe
Anna says: GO
Anna says: LEAVE
Anna says: NEVER COME BACK
*censored* says: have a nice day sweet icelandic princess
Anna says: you too hon


| anna | 12:06 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Pulp Fiction
Mánudagur, 28. maí 2007

Þegar ég var búin að rífast við kærasta-substitute-ið mitt kom Bob Moran online..

Anna says: hvernig gekk um helgina?
Bob Moran says: eins og í lygasögu
Anna says: all systems go?
Bob Moran: ójá
Anna says: snilld
Anna says: til hamingju!
Bob Moran says: "kallinn þinn" er ánægður núna og leggur eflaust blessun sína yfir að ég reyni að skemmta þér og hugsa um þig í 2 vikur á spáni...
Anna says: glitnir er ánægður með góða menn
Bob Moran says: á meðan þú færð þér ekkert í nös...
Anna says: í nös???
Bob Moran says: já var það ekki þannig í Pulp fiction þegar "verktakinn" var látinn fara með eiginkonu foringjans út?
Anna says: lol


| anna | 12:53 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Operation Terrific Tan
Mánudagur, 28. maí 2007

fake_tan.jpg

Eftir margar óeigingjarnar tilraunir hef ég loksins fundið út hvaða brúnkukrem virkar best af öllu þessu dóti sem ég hef prufað. Ég er m.a. búin að prófa krem frá Dove og fullt af mis dýrum kremum frá flottum snyrtivöruframleiðendum. Af því mér fannst dýru kremin hrein hörmung ætla ég að sleppa því að gefa upp nöfnin á þeim. Mér hefur fundist liturinn frá Dove einna skárstur af þessu sulli en lyktin af því fer verulega í mig. Eitthvað í henni minnir mig á milda klósett-ilmsteins lykt og ég er ekki spennt fyrir þannig ilmi. Kannski er eitthvað að nefinu á mér, ætla ekki að útiloka það. Á endanum datt ég niður á lausnina sem virkar fyrir mig, krem sem heitir Fake Bake. Skemmtilega hallærislegt nafn.

Það er auðvitað vond lykt af kreminu og svo máttu búa þig undir vonda lykt sem kemur víst af húðinni sjálfri þegar hún er að búa til litinn. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Það er vel hægt að díla við þessa lykt með því annaðhvort að nota rakakrem sem hefur góða lykt eða vera bara slétt sama þótt þú lyktir ekki eins og engill í blómadal. Vont en það venst. Af öllum þeim kremum sem ég hef notað verð ég ekki appelsínugul af þessu og þeir sem hafa séð mig (eftir að ég lærði að setja þetta almennilega á mig) dettur ekki annað í hug en að ég sé nýkomin frá útlöndum.

Það sem þú þarft að eiga er..

  • Fake Bake self tanning lotion - fæst í Hagkaup á rúmar 3 þús
  • Vichy Lipidiose Cranular Exfoliating Cream - fæst útí apóteki
  • Nivea Visage Gentle Face Scrub - Apótek
  • Natural Vitamin E-oli - fæst í Heilsuhúsinu
  • Skrúbbhanski - fæst í apótekum
  • Latexhanskar - fást.. tjah.. allavega í bónus!
  • Gott rakakrem
  • Einhvern til að bera á bakið á þér

Undirbúningur að kvöldi dags:

Farðu í bað eða sturtu. Skrúbbar þig hátt og lágt með skrúbbhanskanum og notar Vichy skrúbbkremið á líkamann - Nivea í andlitið. Ekki sleppa þessu ferli. Fjarlægir dauðar húðfrumur og ef þú sleppir þessu aukast líkurnar á að þú verðir flekkótt.

Hér gera margir þau mistök að stökkva úr sturtu/baði, þurrka sér og skella drullunni á sig - sem er algjört no no. Ef þú berð á þig brúnkukremið áður en húðin hefur balansað PH gildið síðan úr baðinu/sturtunni eru meiri líkur á því að þú verðir appelsínugulur. Bíða í klukkutíma og svo má fara að vinna í þessu. Ekki vitlaust að bera á sig gott rakakrem strax eftir baðið.
Vitamin E-olían er borin á þurr svæði, t.d. ef þú ert með þurrkublett og er bráðnauðsynleg á handabökin. Eftir að ég fór að nota þessa olíu á handabökin verður liturinn mjög jafn og flottur á þeim - og muna að þegar þú berð á fingurna að hafa þá bogna. Þegar E-olían er komin á þurru staðina skellirðu þér í latexhanska og byrjar að smyrja "Fake Bake" kreminu á. Það er mjög dökkt og þú munt líta út eins og fáviti. Það er fórn sem þú þarft að færa og trust me.. nobody cares.

Ekki setja þykkt lag, þess þarf ekki. Bara þunnt lag og bera á allan líkamann. Hafa hnén bogin og olboga á meðan þú berð á þau svæði. Ég nudda þessu nokkuð vel inní húðina og jafna. Af því kremið er svo dökkt er mjög auðvelt að sjá hversu vel þetta er gert hjá þér. Þú færð aðstoðarmanneskjuna til að klára verkið á bakinu á þér. Ef þú ert svo leiðinleg/ur að engin vill þekkja þig eða hjálpa geturðu líka bara verið í fötum sem hylja bakið. Eða pantað pizzu og borgað pizzasendlinum fyrir að skella þessu á - eða þannig. Næst bíður þú eftir að allt gumsið þorni utaná þér. Tekur ca 20 mín í mínu tilfelli og á meðan sit ég í flísteppi og sörfa á netinu. Það er optional hvað þú gerir þennan tíma.

Þegar þú ert orðinn þurr geturðu farið í náttföt ef þú átt einhver voða fín damask sængurföt, nú ef ekki þá ferðu bara stark naked uppí rúm. Works for me. Kremið smitar lit en ég hef geta þvegið það vandræðalaust úr öllu sem það hefur klínst í. Mér finnst gott að bera aftur á mig E-olíuna á handabökin þegar hingað er komið og jafna aðeins út litinn. Svo fer maður að sofa. Það er mjög gott að fá minnst sjö tíma svefn, hvort sem þú ert að nota brúnkukrem eða ekki. Hafa það í huga.

Þegar þú vaknar daginn eftir muntu fá sjokk ef þú gleymdir brúnkukreminu og lítur í spegil. Eftir sjokkið ferðu í bað/sturtu og þværð þér eins og venjulega. Vatnið mun líkjast skólpvatni og það er eðlilegt. Þegar þú kemur úr baði mun lítið kraftaverk hafa átt sér stað.

Þú ert brún.

Þar sem þetta þurrkar húðina er gott að vera duglegur að bera á sig rakakrem á meðan á "meðferð" stendur. Það minnkar líka flekki þegar liturinn fer að dofna.

Ég er búin að nota Fake Bake núna fjórum sinnum á allan líkamann og það er slatti eftir. Allt hitt dótið, Vichy, Nivea og E-olían er mjög drjúgt þannig að all in all er þetta ekki mjög dýr aðgerð. Plús.. húðin á þér verður ekki eins og leður og þú sleppur við húðkrabbamein. Viltu hafa það eitthvað betra?

Það fer svo eftir því hversu brún þú vilt vera hversu oft þú notar kremið.

Ekki flókið.

Ég hef það fyrir satt að Madonna og félagar í þeim bransa noti helst þetta krem. Miðað við hvað kremið virkar vel trúi ég því alveg.


Yo-ho, yo-ho
Mánudagur, 28. maí 2007

Davy Jones: Love. What dreadful bond it is.

Vitringur.

Fór með krökkunum ásamt fyrrverandi eiginmanni í bíó að sjá Pirates of the Caribbean: At World's End. Doddi á heiðurinn að þessari óvæntu sameiningu kjarnafjölskyldunnar sem einu sinni var - í fricking þrjá klukkutíma á meðan ræman var að rúlla.

Á hvaða ofskynjunarlyfjum er fólkið sem skrifar þetta?

Reyndar var síðasti klukkutíminn ágætur - eða við orðin svona samdauna krappinu. Það gæti líka verið.

Það sem er að þarna er að það eru ekki færri en fjórar sögur í gangi og hver einasta þeirra í fullri bíómyndalengd. Ekki vænlegt til árangurs og einhver myndi benda á míníseríu formið eða hreinlega framhaldsþætti í sjónvarpi. Breytir ekki að þarna komu gullkorn inná milli og Jack, þó hann sé óþolandi í of mörgum eintökum, er skemmtilegur.

Elizabeth Swann: It would never have worked out between us.
Jack Sparrow: Keep telling yourself that, darling.

Barbossa er nú samt sem áður minn maður. Langflottastur.

Tónlistin í myndinni finnst mér líka töff.

En O M G. Í trailer á undan myndinni sá ég ástina mína: Wayne Jarvis. Hann kemur í kvikmyndahús næst sem Marty í myndinni Evan Almighty, sem ég hef töluverða trú á. Ég fékk hinsvegar hálfgert taugaáfall þegar ég fletti manninum upp (í fyrsta skipti ever) og sé að hann leikur flaming homosexual í þeirri annars snilldar mynd Best In Show.

Kræst. Þvílíkt turnoff.

Sleppur samt fyrir horn því hann er ekki með gleraugu í þeirri mynd.

Ég velti fyrir mér, ef ég ætti svona áttavita, eins og Jack Sparrow. Á hvað myndi hann benda?


| anna | 22:31 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Pepp/svepp/hakk/skinka?
Þriðjudagur, 29. maí 2007

Það er langt síðan ég hef verið svona veik. Við erum að tala um sofandi í sófanum. Seinfeld rúllar.

Ég reyndar slökkti á Seinfeld rétt áður en ég sofnaði alveg.

Mig dreymdi alveg furðulegan draum. Hvað er í gangi þegar það er vont að tyggja líka? Bygons.

Pepp/svepp/hakk/skinkudraumurinn.

Í byrjun draumsins var ég heima hjá mér. Í Kópavogi. Ég á ekki heima í Kópavogi og þetta leit auk þess ekki út eins og Kópavogur. Ég var að fara uppá spítala, man ekki hvern ég var að fara að hitta, nema ég hringdi í Eldsmiðjuna (sem var í Kópavogi) og pantaði pizzu með pepp/svepp/hakki og skinku. Ég var mjög particular með skinkuna.

Næst er ég komin á hótelherbergi í Reykjavík á einhverju svona milliklassa hóteli. Var lengst uppi. Í herberginu var ég búin að koma fyrir allskonar innkaupapokum með furðulegu innihaldi. Ég get ekki munað hvað það var, en ég man að það var skrítið. Ég t.d. man eftir að hafa tekið homeblest kex og sett ofaní einn pokann sem ég er nokkuð viss um að hafi geymt borðspil fyrir.

Hrikalegt að verða svona veikur. Börnin hjá pabba sínum og ef ég dey á ég ekki einu sinni hund sem borðar af mér andlitið svo engin sjái hvað ég þjáðist EIN síðustu metrana.

Á þessu hótelherbergi vaknaði ég í draumnum (það var um svipað leyti og ég rumskaði og teygði mig í fjarstýringuna til að slökkva á Seinfeld) og áttaði mig á því að ég gleymdi alltaf að sækja pizzuna fyrr um kvöldið. Þarna pepp/svepp/hakk/skinku dæmið. Og ég held að á þeim tímapunkti hafi ég staðið í þeirri meiningu að ég væri að kaupa þessa pizzu fyrir tvo hesta sem ég þekki.

In real life þekki ég enga hesta. Ég þekki mikið ágætisfólk plús örfáa pappakassa en þeir eru nánast alveg hættir að bögga mig.

Hvar var ég.

Já. Ég vaknaði í draumnum og fattaði að ég gleymdi að sækja pizzuna. Svo ég hringdi og þá var allt í einu massa erfitt að ná inn á pizzustaðinn í gegnum síma. Og ég sá svo illa númerin. var fyrst eitthvaðþþ 66 einn en núna var það meira.. 5 eitthvað, þrír. Mjög spes allt saman. Endaði á að ég gerði bara eitthvað útí bláinn og þá náði ég samband við par. Ég get svo svarið.. þetta var krípí par. Og þau sögðu að þau myndu koma upp því þau heyrðu ekki í mér í símanum en pizzastaðurinn. Voru niðrí andyrinu á hótelinu.

Þau komu upp, ég þurfti að opna fyrir þeim inná stigagangi því þau höfðu ekki lykla. ?? Ég sagði þeim að ég gleymdi að sækja pizzuna og þá kom svona svipur á strákinn "helvítis djöfulsins tík, hún er ein af þeim" en þegar ég sagði að pizzan hafi vefið pepp/svekk/happ/skinka pizza þá brosti hann eins og ég væri vangefin og að hann vorkenndi mér fyrir að panta svona pappakassapizzu, og sagði að þetta væri allt í lagi. Þegar þau fundu ekki viðtakanda.. þá settu þau pizzuna inní ísskáp og þau gætu hitað hana upp.

Ég var in high spirits og þegar þau voru farin klæddi ég mig úr öllu að ofan og klæddi mig í einhvern þann ógeðslegasta loðna bol sem ég bara hef séð. Og til að toppa það fór ég í svona pappakassavesti yfir. Djöfull var ég orðin flott. Svo fór ég út með alla pokana mína og ætlaði að setja þá útí bíl - en þá var bíllinn á kafi í snjó. Og ekki bara að utan, heldur að innan líka. Ég mátti skafa bæði af honum og innanúr honum.

Það er eins og ég hafi áttað mig hérna á mistökum svo í draumnum fór ég til baka og leit í spegil, sá að þetta loðna bola dæmi var tískuslys svo ég fór úr því og í gömlu fötin. Þá kom wird parið með pizzuna, ég þakkaði fyrir og hugsaði um hestana sem yrðu nú glaðir en svo lak pizzan í gólfið og þegar ég var að koma henni aftur fyrir í kassanum tók ég eftir að hún var skreytt með jólaskrauti.

38° and rising


| anna | 21:42 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Series Of Pain
Miðvikudagur, 30. maí 2007

Ég vaknaði áðan og fékk mér panodil hot. Í fimmta skipti s.l. sólarhring.
Þetta er búið að vera svona: vakna, dragnast á lappir. Fæ mér panodil hot. Sofna aftur í sófanum.

Frumburðurinn og bróðir hennar eru búin að taka myndir af mér í dag sem þau vilja kalla "series of pain".

series_of_pain_4.jpg

series_of_pain_2.jpg

series_of_pain_3.jpg

series_of_pain_1.jpg

Ég held reyndar að ég sé að skríða saman. Finn að ég er að verða svöng.


| anna | 18:33 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Ekki fleiri myndir.. please
Fimmtudagur, 31. maí 2007

imgonnaki.jpg

Djöfull er maður hress.

Þegar Doddi var búinn að taka þessa mynd kom hann í sófann til mín og strauk mér um hárið. Sagði: "það er svo gaman að vera góður við þig þegar þú ert veik, þú ert svo góð við mig þegar ég er veikur."

Awwww



ravings í maí 2007
monthly archive

links
blogs
links - web