What a man, what a man, what a man..
Mánudagur, 23. apríl 2007
Ef það er að þvælast fyrir einhverjum hvað ég er nákvæmlega að meina þegar ég segist þurfa serious and professional mann.. þá getur sá hin sami skellt sér í bíó að sjá myndina Shooter.
Reyndar skoraði þessi leikari svo feitt þegar hann skaut gerpið Matt Damon í fésið í síðustu mynd sem ég sá hann í, að já. Líklega féll ég fyrir honum þar. I'm evil, what are you gonna do..
Hann var bara ekki svona fokking flottur í þeirri mynd.
Konur, plottið í þessari mynd er gloppóttara en 80's netabolur - en - þessi maður...
..fyllilega 900 króna virði. Jude Law er djók, ég vil ekki þannig sykurgæja, þessi maður er það hinsvegar ekki - þó handritið hafi reyndar verið það á köflum. Maður er ekkert að fetta fingur útí þannig smáatriði með svona hunk beran að ofan á breiðtjaldi. Reyndar fá þeir tíu fyrir "how about the guy from u2 with the glasses?"
Meina. Í alvöru talað.

--
Maðurinn sem var með mér í bíó var að segja mér að strákarnir sem sátu fyrir framan okkur leiddist ekki á myndinni. Þeir fóru víst alltaf að hlæja þegar ég fór að hlæja í mestu sprengiatriðunum, enda voru þau mjög fyndin.
Uppáhaldslínan mín í allri myndinni "Hit it - the napalm!"
Dásamlegt. Þetta er alvöru skjóti drepi mynd.
Síðasta atriði myndarinnar var bara klikkað, hann var svo hryllilega serious and professional að það hálfa hefði verið nóg fyrir mig - og svo keyrði hann í burtu á Mustang.
Og ég veik í hjánum fyrir..