www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Unpublished - 2 dögum fyrir árshátíð
Laugardagur, 14. apríl 2007

Tveir íbúa Hagamels liggja lífshættulega særðir eftir sprengingu sem átti sér stað um níu leitið í gærkvöldi.

Ég var að máta árshátíðarkjólinn í gær, þennan sem ég ætlaði að vera í á Glitnis árshátíðinni þegar hann sprakk utanaf brjóstunum á mér. Ég er ekki að grínast.

Börnin veltust um úr hlátri á meðan ég stóð þarna eins og fáviti með kjólinn í henglum og brjóstin útum allt. Helvítis - en meira að segja ég gat ekki annað en hlegið þegar Doddi lýsti þessu í svona "instant replay" stíl með þessum orðum:

"Mamma! Ég hef aldrei séð föt SPRINGA svona! Þetta var frábært!!"

Segið svo að ég geri aldrei neitt skemmtilegt með fjölskyldunni.

Þessi kjóll passaði eins og sniðinn á mig þegar ég fékk hann frá útlöndum fyrir einhverjum nokkrum vikum síðan en nú er ég byrjuð að fitna og þar sem fita sest alltaf fyrst á brjóstin á mér eru þau þessum kjól ofviða í dag. Glatað. Ég tók mynd af brjóstunum en ákvað að birta hana ekki. Það eru takmörk fyrir hvað ég get lagt á lesendur mína.

Ég er auðvitað búin að laga rennilásinn og hann virkar. En.. það blasir við að ef ég fer í kjólnum.. verð ég tifandi tímasprengja. Og - ef kjóllinn springur utanaf mér á árshátíðinni, má líklega gera því skóna að ég sé búin að stimpla mig rækilega í minnið hjá öllu nýja samstarfsfólkinu - for life.

Ég er bara ekkert yfir mig spennt að stimpla mig á þennan hátt inn.

Skrítið.
--

Today:

Þetta reddaðist að sjálfsögðu. Fékk ég lánaðan æðislegan topp hjá vinkonu minni sem ég var í utanyfir kjólinn svo ég var úr allri sprengihættu.

Í dag frétti ég svo af því að það er fitness keppni í vinnunni svo verkefni helgarinnar er að safna eins mikilli fitu og mögulega er hægt utaná mig - fyrir mælinguna á þriðjudaginn. Það verða nefnilega veitt verðlaun fyrir mesta fitutapið og eitthvað þannig. Þetta hentar mér einstaklega vel þar sem ég er hætt að passa í megnið af fötunum mínum og hef stundað það undanfarið að mæta í kápu og nylon sokkabuxum innanundir í vinnuna.

Held að fólkið sem ég vinn með sé farið að sjá í gegnum það hjá mér.

Not to worry, eftir þriðjudaginn mun operation "back to D" hefjast eftir að fitan mín hefur verið samviskusamlega mæld í bak og fyrir og að sjálfsögðu mun mín deild vinna þessa fitness keppni, en ekki hvað. Nú þarf ég hinsvegar að fara og úða í mig þessum þremur pizzum sem ég var að panta og skola niður með kóki. Í eftirrétt er harðfiskur með smjöri.

Ég verð komin uppí F á sunnudaginn - shit you not.


| anna | 0:34 |
comments

Þakka þér fyrir að hlífa okkur við myndinni. Ég held að lesendum þínum þyki nóg um það sem þú setur ofan í þig þó það sem hleðst utan á þig sé ekki birt líka melodramatic

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 14.04.2007 | 2:36:58 | [+] |

lol

Nr. 2 | posted by: anna | 14.04.2007 | 2:38:40 | [+] |

Páskaeggin hljóta að hafa hjálpað! Ef til vill eru ennþá til nokkur í búðinni. Bara tips evil

Nr. 3 | posted by: Sigga | 14.04.2007 | 9:55:58 | [+] |

Ég er andskotann ekkert búin að borða af páskaeggjum þessa páska. Hef bara verið að búa mig líkamlega og andlega undir þessa keppni - held ég. angel

Nr. 4 | posted by: anna | 14.04.2007 | 11:31:59 | [+] |

wahahahaha wahahahaha

Nr. 5 | posted by: Miss G | 14.04.2007 | 12:28:56 | [+] |

wahahahaha

Vá hvað ég hefði viljað vera fluga á vegg þegar sprengingin átti sér stað wahahahaha

Ekki það að maður eigi að hlæja að óförum annarra, en þetta hefur bara verið OF fyndið til að hlæja ekki wahahahaha

Annars segi ég bara eins og Hawk...

Boobies ? WHERE ?

Nr. 6 | posted by: Þór | 14.04.2007 | 13:18:52 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web