Talandi um trúarbrögð..
Sunnudagur, 22. apríl 2007
Ég trúi ekki á Guð. Ég held að maðurinn hafi skapað Guð en ekki öfugt en ég held að það sé í eðli mannskepnunar að þurfa að trúa á eitthvað. Það er eins og fólki finnist almennt hálf skerí að það sé ekkert "æðra" til.
Ég er ekkert öðruvísi.
Ég trúi samt ekki á Guð.
Við erum öll úr sama efninu. Hvert eitt og einasta okkar, sama efni. Er það ekki magnað?
Hvað ef við erum bara eitt stórt líffæri en ekki meðvituð um það?
Hvað ef við, sameinuð, erum.. æðri máttur?
Vita frumurnar í heilanum á okkur af öllum hinum frumunum? Þekkjast þær allar með nafni? Hitta þær allar hvora aðra at one time? Er hægt að hitta alla í heiminum? Heilanum?
Af hverju tengjast tvær lífverur? Ekkert áþreifanlegt sem tengir. Órjúfanleg bönd. Er það trú? Hvaðan kemur tengingin? Hvernig myndast þetta? Var það alltaf þarna? Hver ákveður það? Eru það við? Er þetta valkvænt? Eru aðrir þættir sem spila inní? Líffræðilegir? Af hverju? Hversu mikið vægi hafa þeir? Hversu mikið vægi höfum við? Getum við ráðið þessu öllu?
Já.
In the end, skiptir þá engu máli hverjum þú tengist? Er það alltaf eins?
Nei.
Af hverju hefur sumt fólk meiri áhrif á mann en annað? Afgerandi. Hvernig getur fólk breyst? Er það hægt?
Já.
Af hverju líður mér svona vel? Hvað kom eiginlega fyrir mig?