Laugardagur, 28. apríl 2007
Á fimmtudaginn í næstu viku mun í fyrsta skipti birtast texti eftir mig í tímariti. Þetta var einu sinni eitt elsta glanstímarit landsins en hefur skipt um gír og er í dag fréttatímarit. Viðfangsefnið er mjög eldfimt. Hjónaskilnaðir.
Ég tók nokkurn tíma í að hugsa um hvort ég ætti að gera þetta - því þetta er svona "he said - she said" dæmi sem er vandmeðfarið form auk þess sem ég er að skrifa á móti fyrrverandi eiginmanni mínum.
Ég þoli ekki þegar umfjöllun um svona mál fer fram á Jerry Springer, trailer trash leveli svo fólk sem elskar að lesa skítkast mun verða fyrir nokkrum vonbrigðum.
Á föstudaginn var ég að gera allt tilbúið fyrir q1 uppgjör bankans sem er á mánudaginn. Ég er að taka inn alveg rosalega mikið af upplýsingum um fjármálaheiminn í þessu starfi og á fimmtudaginn eignaðist ég nýtt áhugamál.
Peninga.