sshhh...
Miðvikudagur, 04. apríl 2007
Mér er svo illt í rasskinnunum að það er tóm þvæla! Líka handleggjunum og brjóstvöðvunum. Strákarnir í vinnunni fengu lánaðan hjólastól fyrir mig niðrí Europris í morgun. Þessar elskur. Einn af þeim spurði hvort ég væri fucked. Það er reyndar ekki rétt, ég var bara að taka armbeygjur í gær. Annars er ég soldið hissa að þeir skuli hreinlega ekki selja hjólastóla í Europrís, hafa þá við hliðiná akkerunum - greinilega ekki alveg í takt við tímann, innkaupastjórinn.
Skil ekki alveg hvaða mál þetta er með rassinn á mér, gerði mér ekki grein fyrir hvað ég nota hann mikið þegar ég geri armbeygjur. Sem bendir eiginlega til þess að ég sé ekki að gera þær rétt. Held ég. Ætti náttúrlega að vera illt í hjartanu, set það alveg hundrað prósent í þetta.
Ég spái því að ég muni ná.. já kannski tveimur armbeygjum í kvöld. Kannski ég taki þetta - tvær og tvær og reyni svo við þrjár á morgun.
I'll keep you posted.
Það er svo margt að gerast í lífi mínu þessa daga - sem er allt trúnaðarmál - að ég get bara bloggað um armbeygjur. Svona getur þetta verið.. já og hættið svo að spyrja mig hvað ég ætla að gera yfir páskana. Það er leyndó. Ég veit það ekki einu sinni sjálf!