www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ísland - best í heimi!
Föstudagur, 27. apríl 2007

Þær fréttir bárust í vikunni frá Kína að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið koparvíra. Kínversk stjórnvöld segja að þetta sýni svo að ekki verði um villst að Kínverjar hafi verið búnir að finna upp símann fyrir 1.000 árum.

Daginn eftir bárust þær fréttir frá Þýskalandi að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið ljósleiðara. Stjórnvöld þar í landi segja og Evrópusambandið líka að þetta sýni að þjóðir meginlandsins hafi fundið upp stafrænar símstöðvar fyrir 1000 árum.

Í gær bárust þær fréttir frá íslandi að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m ofan í jörðina og fundið ekkert . Íslensk stjórnvöld fagna þessu mjög og segja hafið yfir allan vafa að það hafi verið íslenskir landnámsmenn sem fundu upp þráðlaust kerfi.


| anna | 23:40 |
comments

Ég sá þetta einmitt á vefnum um daginn og þótti þetta alger snilld.

Þetta lýsir einstaklega vel óendanlegri bjartsýni okkar örþjóðar og hvernig okkur tekst ávallt að snúa aðstæðum okkur í hag.

Sá sem samdi þetta eða staðfærði á hrós skilið.

Nr. 1 | posted by: egill | 28.04.2007 | 10:17:14 | [+] |

Var einmitt búinn að heyra þetta líka. Hélt samt að það vissu þetta allir, auðvitað fundum við upp þráðleysið! Best í heimi!

Nr. 2 | posted by: Andri.dk | 28.04.2007 | 18:38:23 | [+] |

Þegar ég las þetta fannst mér þetta svo ógeðslega íslenskt og á sama tíma óborganlega fyndið.

Íslendingar eru akkúrat þjóðin sem myndi túlka "ekkert" sér í hag. hehehe

Ísland - best í heimi!

Nr. 3 | posted by: anna | 28.04.2007 | 19:49:25 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web