Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Var að senda mér afrakstur kvöldsins í tölvupósti.
Í morgun mætti ég í vinnuna og horfði á síður sem ég átti að breyta - then it hit me. Ég fattaði hvað ég vildi gera og ég held að þetta komi alveg rosalega vel út þegar góður grafískur hönnuður hefur farið um það höndum. Ég er með mann í huga sem ég mun hringja í ef ég fæ the grænt á þetta.
Ég var varla viðræðuhæf megnið af deginum. Var að fá hugmyndir á öðru hundraðinu og reyna að missa þær ekki, ná þeim niður á blað, notepad, msn, póst - einhvert! Þetta gerist svo hratt. Finna myndir á netinu og skoða layout. Samræður mínar við annað fólk vildu á tímabili einkennast af "ha?" mín megin. Það var of mikið að gerast í hausnum á mér.
Ég var líka í einstaklega góðu formi þegar ég mætti í morgun enda varð ég fyrir þvílíkri trúarvakningu í gærkvöldi með frelsaranum - við erum að tala náttúruhamfarir. Flugeldar and shit. Man.. hvað gott kynlíf getur gert fyrir mann. Þetta var bara þvæla. Spáiði hvernig ég hefði orðið ef það hefði verið karlmaður á staðnum - shiii
Ég er búin að vera að spjalla öðru hvoru við emperor Zurg núna síðasta korterið á meðan ég var að wrap up. Þennan sem ég geymi ofaná skjánum mínum. Sem talar. Líklega ætti ég að fara að sofa núna. Hvað finnst þér um það mál Zurg? Sjís.. djöfull ertu leiðinlegur, fæ aldrei nein svör - hann talar bara í hringi.
Karlmenn.
hehe