Fimmtudagur, 26. apríl 2007
Ég er á endorfín high. Þetta rúlar. Fíkill sem ég er.
Vöðvarnir eru alveg þarna undir smá fitulagi. Finn fyrir þeim núna. Tók hrikalega á brjóstvöðvunum. Á ekki eftir að geta lyft hárblásaranum í fyrramálið.
Ég sumsé fór í ræktina. Tók rútínuna, teygði og endaði meira að segja á brettinu sveitt en samræðuhæf í rúmar tíu mínútur. Já ekkert svona! Tíu mínútur er mökkur.
Samtals 65 mínútur af hita og svita sem ég skrái í "flottest" keppnina.
Það sér ekki fyrir endan á góða skapinu sem ég fór í á föstudaginn þegar ég datt og meiddi mig. Ég datt ekki á höfuðið, bara hnén.
Hafði þessi undarlegu áhrif á mig.