www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Að telja stigin
Þriðjudagur, 17. apríl 2007

Fitutalan mín er 26% BootCamp maðurinn sagði að ídeal tala væri 24% svo þarna er smá svigrúm til að bæta sig.

Annars skil ég ekki af hverju ég lét mig ekki detta niður í stiganum þegar ég mætti á staðinn. Hefði léttilega getað haldið fram að ég hafi örmagnast þar. Meina.. þetta voru pottþétt næstum nítján þrep og þrekprófið er lagt til grundvallar, öll stig sem ég fæ verða mæld útfrá þessu og ég lagði mig allt of mikið fram. Verður pain að toppa þetta.

Demit.

Svona er að vera vitur eftirá.

Mikið rosalega var þetta samt gaman. Shit. Þegar við vorum búin að teygja lágu starfsmenn deildarinnar eins og hráviði útum allt gólf fyrir fótum BootCamperanna og það var ekki fyrr en góðum þremur mínútum eftir að þeir sögðu að allt væri búið sem það sást eitthvað lífsmark með einhverjum. Þetta var svakalegt.

Ég á ekki von á að ég geti skriðið frammúr rúminu á morgun.

In fact.. þá er ég svo örmagna.. að ég er farin að sofa.


| anna | 21:42 |
comments

x_x

Nr. 1 | posted by: Þór | 18.04.2007 | 0:35:56 | [+] |

Bootcamp er mannskemmandi.....og líkamsskemmandi líkamsrækt!

KOmdu bara til mín elskan - er með meðmæli frá dóturinni winky

Nr. 2 | posted by: lindablinda | 18.04.2007 | 21:03:40 | [+] |

Þetta var nú sem betur fer bara þrekpróf, mig langar ekki í prógramm hjá bootcamp - fyrr en ég er komin í betra form!

hahaha

Nr. 3 | posted by: anna | 19.04.2007 | 13:32:45 | [+] |

Hey hmmm á að gefast strax upp? Upp með sokkana og drífa sig af stað.
Bootcamp er alltaf áreynsla fyrir alla, sama hve vel þeir eru á sig komnir, annars eru menn ekki að taka almennilega á því. Eftir því sem fólk er í betra formi, þeim mun meir er lagt á það!

Nr. 4 | posted by: Unnur | 19.04.2007 | 14:38:38 | [+] |

hehe

Ég ætla að halda mig við Laugar. Þar er ég með prógram sem styrkir og tónar hluti nákvæmlega eins og ég vil að þeir séu styrktir og tónaðir.

Works for me. wink

Nr. 5 | posted by: anna | 19.04.2007 | 14:41:00 | [+] |

Gleðilegt sumar Anna 0

Nr. 6 | posted by: baun | 19.04.2007 | 14:43:55 | [+] |

Ú! GLEÐILEGT SUMAR! 0

Nr. 7 | posted by: anna | 19.04.2007 | 14:44:48 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web