Miðvikudagur, 28. mars 2007
Vonandi er starfsheitið listamaður ekki lögverndað því þegar ég vaknaði í morgun rann upp fyrir mér ljós. Ég er listamaður. Í hvert sinn sem gerðar verða athugasemdir við hátterni mitt eða klæðaburð hér eftir, þá segi ég: "Já, nei... ég má þetta alveg. Ég er sko listamaður."
Ég er það líka í alvörunni. Stundum þegar ég er í froðubaði bý ég til hitt og þetta rosalega flott og listrænt úr froðunni. Einu sinni þá sletti ég froðunni rosalega listamannalega á vegginn og það var alveg eins og listaverk. Listamenn eru með svo mikla tjáningarþörf. Ég hef líka eldað listaverk. Það var mikið myrkur yfir því og drungi. Ég kallaði það: "Útbrunnin húsmóðir" og ætlaði að selja það á ebay en Tóti henti því í tiltektaræði einn laugardaginn. Hann hefur engan skilning á list.
Einu sinni hellti ég kókí í glas og hélt áfram að hella þangað til kókið flæddi uppúr glasinu og myndaði poll í kringum það. Ég tók mynd af glasinu og pollinum og skýrði hana: "Góðærið".
Það er list.
Stundum sit ég og er að gera eitthvað alveg saklaust eins og að klippa á mér táneglurnar og þá dettur mér eitthvað orð í hug sem engum hefur dottið í hug áður. Þá hætti ég að klippa táneglurnar, í smá stund, fer í hvildarstellingu og hugleiði til að varðveita augnarblikið.